05.12.1983
Efri deild: 24. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1313 í B-deild Alþingistíðinda. (1150)

11. mál, launamál

Þórður Skúlason:

Virðulegi forseti. Afstaða mín til þessa máls kemur fram í nái. á þskj. 153, sem ég stend að ásamt hv. 11. þm. Reykv. Afstaða Alþb. til málsins er skýr og fyrir henni hefur verið gerð ítarleg grein hér á Alþingi af öðrum talsmönnum flokksins, m.a. hv. 2. þm. Austurl. í þessari þd. Ég tel þó rétt að rifja lítillega upp þá staðreynd, að um alllangt skeið hefur orðið að heyja harða varnarbaráttu til verndar lífskjörum launafólks í þessu landi. Þetta var hlutverk Alþb. í síðustu ríkisstj. og var ekki alltaf létt verk.

Þrátt fyrir mikil ytri áföll, verðfall afurða, minnkandi afla o.s.frv., tókst þó að halda þannig á málum að launakjör héldu nokkurn veginn sínu hlutfalli gagnvart framfærsluvísitölu og þjóðartekjum allt tímabilið. Var yfirlýst stefna Alþb. í kosningabaráttunni á s.l. vetri að þannig yrði að halda á málum áfram, að umfram allt yrði að verja kjör hins vinnandi manns. Hins vegar gerðum við okkur alltaf grein fyrir að ýmsir erfiðleikar steðjuðu að og vorum reiðubúnir til aðgerða til að hamla gegn verðbólgu. Allt annað er auðvitað alrangt.

Við vöruðum hins vegar alltaf við því, að ef afturhaldsöflin í Framsfl. og Sjálfstfl. næðu saman yrðu þau óvönd að meðulum. Engum held ég þó að hafi dottið í hug að gripið yrði til jafnharkalegra aðgerða og raunin hefur orðið á. Til þeirra aðgerða hefur verið gripið á sama tíma og ýmsar ytri aðstæður hafa farið batnandi. Síldveiðin hefur aukist, rækju- og skelfiskafli hefur stóraukist og verðið einnig stórhækkað á þeim afla og nú er aftur tekið til við að veiða loðnu eftir langt hlé. Ætli þessir þættir einir næðu ekki langt til að vega upp þá aflaminnkun á þorski sem búist er við að verði í ár og hv. 4. þm. Austurt. Tómas Árnason gerði að verulegri uppistöðu í sínu máli til réttlætingar á launaskerðingarfrv. því sem hér er til umr.?

Þessar aðgerðir eru réttlættar með því að allt verði að gera til að ná niður verðbólgunni, allt verði að leggja í sölurnar og öllu að fórna. Gallinn er bara sá, að eingöngu er ætlast til að launafólkið í landinu beri herkostnaðinn í stríðinu við verðbólguna. Engir aðrir eru látnir blæða. Hér er um að ræða eina mestu fjármagnstilfærslu sem átt hefur sér stað í þjóðfélaginu um langan tíma frá launþegum til atvinnurekenda, enda ríkir nú mikill fögnuður í herbúðum atvinnurekenda og milliliða, sem víðast berast mikið á og standa í miklum fjárfestingum. Gengisfelling og einhliða lækkun launa er fljót að skila sér til þessara aðila.

Launafólkið hefur sýnt umburðarlyndi og það hefur verið tilbúið til fórna til að leitast við að ná niður verðbólgunni. En öllu eru takmörk sett. Hér er um svo miskunnarlausa einhliða kjaraskerðingu að ræða að langt þarf að leita og tæpast hægt að finna samjöfnuð. Um áhrif kjaraskerðingarinnar væri vissulega hægt að nefna mörg dæmi af láglaunafólki sem er með börn á skólaaldri, af einstæðum foreldrum, af húsbyggjendum, af lífeyrisþegum almannatrygginganna o.s.frv., dæmi um hvernig aðgerðir ríkisstj. koma harðast niður á þessum hópum í þjóðfélaginu, og það hefur margoft verið gert hér í þessari launamálaumr.

Það er búið að þrýsta þannig niður laununum að engin leið er að leita til nálægra þjóða um samjöfnuð í kjörum. Búum við þó við hærri þjóðartekjur en flestar þeirra, enda víða til peningar í þessu landi og blasir raunar alls staðar við. Hér gætu því allir búið við góð kjör ef réttlátlega væri á málum haldið.

Það er búið að kosta miklum fjármunum og það opinberum fjármunum til áróðurs fyrir aðgerðir stjórnvalda í efnahags- og launamálum. Forsrh. hefur sem kunnugt er ferðast vítt um landið og gefið út rándýra áróðursbæklinga til stuðnings við stefnu stjórnarinnar. Talsmenn stjórnarinnar hafa verið iðnir við að lýsa ófögru ástandi í efnahags- og verðbólgumálum þegar stjórnin tók við. Forsrh. hefur gjarnan nefnt 130% verðbólgu, annar ráðh. 150% verðbólgu og utanrrh. hélt því fram á landsfundi Sjálfstfl., ef ég man rétt, að verðbólgan hafi verið í 180% og stefnt í 200% eða þar yfir ef ekkert yrði að gert. Svo koma þessir herramenn núna og segja að verðbólgan sé ekki nema 30% og verði komin niður í 10% um áramót. Mikill og góður er nú árangurinn. Svona tölur geta menn e.t.v. fengið með því að horfa á verðlagshækkanir á örskömmum tíma, mánuði í senn eða svo. Þó tel ég það hæpið. Svo kemur Þjóðhagsstofnun og staðfestir verðbólguspána, en auðvitað staðfestir Þjóðhagsstofnun ekki þær tölur, sem nefndar eru um verðbólgustigið þegar stjórnin tók við í maí, enda eru þær alrangar.

Umreiknuð til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar var framfærsluvísitalan 68% í febr. s.l. og 87% í maí og byggingarvísitalan var 75% í mars og 82% í júní. Þetta eru tölur Þjóðhagsstofnunar um verðbólgustigið eins og það var við stjórnarskiptin eftir þriggja mánaða upplausn í stjórnmálum, m.a. vegna kosninga. Verðbólgan hefur því ekki lækkað um 150%, eins og sumir eru að reyna að halda fram, heldur mun minna.

Ef notuð er sama reikningsaðferð til að mæla verðbólgustigið nú í haust og þriggja mánaða hækkanir færðar á ársgrundvöll, þá er verðbólgustig framfærsluvísitölunnar 50% í okt. og byggingarvísitölunnar 34%. Þetta eru líka opinberar tölur Þjóðhagsstofnunar.

Um reikninga Þjóðhagsstofnunar er það að segja, að á þeim bæ eins og víðar er betra að reikna út orðna hluti en spá í framtíðina. Þjóðhagsstofnun hefur svo sem spáð fyrr í verðbólgustigið og spárnar sjaldnast gengið eftir. Málið er líka það, að síðan stjórnin tók við og festi laun og bannaði samninga um verðbætur hafa orðið gífurlegar verðhækkanir. Það hefur hins vegar ekki verið upplýst í fjh.- og viðskn. hve miklar hækkanir hafa verið leyfðar frá því að ráðstafanirnar voru gerðar, en þær eru miklar og þessar hækkanir halda áfram. Það hefur nefnilega ekkert verið gert nema festa kaupið og ekki verið tekið á neinu öðru. Í því sambandi langar mig til að vitna í leiðara Morgunblaðsins frá sunnudeginum 13. nóv. s.l. Þessi leiðari ber yfirskriftina „Talnaleikur og sjálfsblekking“. Með leyfi forseta langar mig til að lesa hérna upphafsorð leiðarans:

„Að undanförnu hafa ráðherrar haft á orði, að verðbólgan væri komin niður í 30% á ári og væri þar til marks um, að efnahagsaðgerðir ríkisstj. væru að bera árangur. Ef ráðherrarnir sjálfir taka þennan talnaleik alvarlega er hætta á ferðum.

Það er auðvelt verk að hægja á verðbólgunni um skeið með því að taka kaupgjaldsvísitöluna úr sambandi. Spurningin hefur alltaf verið sú, hvort pólitísk skilyrði væru til slíkra aðgerða. Þau voru til staðar s.l. vor.“

Síðan segir áfram í leiðaranum, að prófsteinninn á það hvort ríkisstj. sé að ná þeim árangri sem sköpum skipti sé hvort átak verði gert á öðrum sviðum, m.a. í rekstri útgerðar. — Og niðurlagsorð leiðarans eru á þessa leið, með leyfi forseta:

„Fari hins vegar svo, að ríkisstj. treysti sér ekki til að leggja út í þessi átök mun verðbólgan fara vaxandi á næsta ári og í ljós kemur, að talnaleikur ráðherranna nú er eintóm sjálfsblekking“.

Þetta segir Morgunblaðið og það er ekki oft sem það ályktar svona skarplega. Niðurstaðan er talnaleikur og sjálfsblekking, því að ekkert hefur verið gert annað en taka kaupgjaldsvísitöluna úr sambandi.

Svo kemur hæstv. forsrh. hingað í þessa virðulegu þingdeild og það er ekki von að hann hafi mikið að segja þegar hann mælir fyrir þessum þvingunar- og kaupskerðingarlögum. Hann minnist auðvitað ekkert á aðrar aðgerðir, sem engar hafa verið gerðar, en heldur þess í stað langa tölu um skoðanakönnun Hagvangs hf. varðandi afstöðu fólks til aðgerða stjórnarinnar — skoðanakönnun sem var lögð upp með svo leiðandi spurningum að tæpast var hægt að ætlast til að niðurstöðurnar gætu orðið nema á einn veg. Hagvangur hefur áður gert skoðanakannanir, m.a. fyrir kosningar, og hafa þær reynst marklausar og mjög fjarri lagi. Auðvitað er eins með þessa og furðulegt að sjálfur forsrh. skuli grípa til svo ómerkilegra hluta í framsögu fyrir þessu launamálafrv.

Það er margt sem bendir til að ríkisstj. hafi vissar efasemdir um meginaðgerðir. Verðbætur á laun eru bannaðar í tvö ár. Ekki mundu laun hækka þó verðtryggð væru ef engin verðbólga væri. Rekstrarliðir fjárlagafrv., t.d. kostnaður rn., hækka mun meira en allar spár um verðfagsþróun sem opinberaðar eru. Þar eru allt aðrar verðlagsforsendur notaðar til að tryggja rekstur ráðuneytanna í áframhaldandi verðbólgu.

Auðvitað eru líka margar aðrar aðgerðir þessarar ríkisstj. vafasamar að ekki sé meira sagt. Atvinnumálastefna, uppbygging hernaðarmannvirkja hér syðra í Helguvík, ný risaflugstöð á Keflavíkurflugvelli, stækkun álversins í straumsvík, þetta eru einu hugmyndir stjórnvalda um sókn í atvinnumálum á sama tíma og alger uppgjöf virðist gagnvart erfiðleikum hefðbundinna innlendra atvinnuvega. Á sama tíma er dregið stórlega úr opinberum framkvæmdum víða um land.

Stórhætta er á að þessi stefna leiði til nýrrar byggðaröskunar og fólksflótta af landsbyggðinni, sem þegar er farið að bera á. E.t.v. er hæfilegt atvinnuleysi það markmið sem stefnt er að til að draga kjark úr launþegum til nýrrar sóknar í kjaramálum. slíkar fyrirmyndir er auðvelt að sækja til annarra landa. En atvinnuleysið er sá háski sem tekist hefur að forða frá undanfarna tíma, þó nú séu dekkri bhkur á lofti í þeim efnum en oftast áður.

Um fyrirliggjandi frv. til l. um launamál er það að segja, að afnám gildandi og í sumum tilfellum nýgerðra kjarasamninga, eins og gert er ráð fyrir, er gróft brot á lýðræðislegum hefðum í landinu og bein ögrun við verkalýðshreyfinguna og gengur þvert á hugmyndir a.m.k. sumra talsmanna stjórnarflokkanna um frjálsan ákvörðunarrétt aðila vinnumarkaðarins.

Afnám verðbóta á laun hlýtur fyrr eða síðar að leiða til ófriðar á vinnumarkaðinum og styttri samningatíma ellegar enn frekari rýrnunar kaupmáttar. Staðreyndin er að afnám verðbóta á laun hefur aldrei leitt til verulegrar hjöðnunar verðbólgu og gerir það ekkert frekar nú. Aðgerðirnar í launamálum eru bæði ósanngjarnar og ósvífnar og auka stórlega á misréttið í þjóðfélaginu. Launþegar einir eru látnir greiða herkostnaðinn í stríðinu við verðbólguna, en ekki hafðir uppi neinir tilburðir til að jafna byrðunum. Launafólkið var orðið langþreytt á verðbólgunni og var tilbúið til að leggja sitt af mörkum í verðbólgustríðinu. Það verða því mikil vonbrigði þegar í ljós kemur að enn á það eftir að taka á sig versnandi lífskjör og verðbólguhjólið heldur áfram að snúast.