05.12.1983
Efri deild: 24. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1325 í B-deild Alþingistíðinda. (1156)
11. mál, launamál
Helgi Seljan:
Virðulegi forseti. Hér er auðvitað hægt að iðka þrætubókarlist lengi, ég skal reyna að gera það sem allra minnst og sem styst. Hér kom upp áðan sá mæti maður hv. 3. þm. Vesturl., Valdimar Indriðason með nokkrum þjósti sem ólíkt er þeim ágæta manni. Hann sá ástæðu til að snúa út úr og taka sérstaklega setningu út úr hjá hv. 3. þm. Norðurl. v. og flokkaði það svo undir það að Alþb. sæi allt bjart. Ég segi það nú að miklu betra er að reyna að líta á björtu hliðarnar en það sem mér finnst skína út úr orðum allt of margra stjórnarsinna í dag að þeir dekkja svo myndina og setja hana svo ömurlega upp að þeir sjá í raun og veru aðeins svart. Þó þeir vilji hræða lýðinn til hlýðni við sig þá má nú miðla mun hvað menn mála myndina dökka. Og þó bent sé á það sem kynni og gæti komið á móti okkar minnkandi þorskafla og líkum þar tel ég okkur skylt, hverjum og einum, að reyna að finna útgönguleiðina. Það þýðir ekki að menn sjái allt bjart, því miður, þorskurinn er of stór í þessu efni til að menn geti séð neina birtu við það. En menn verða að meta það hlutlægt sem getur komið á móti af sjávarfangi og það skildi ég svo og þurfti engan speking að skilja orð hv. þm. Þórðar Skúlasonar á þann veg.
Hér var talað um mannvonsku og illvilja. Ég segi alveg eins og er að ég undraðist hversu harkalegar till. og aðgerðir hæstv. ríkisstj. voru, hversu grimmdarlega var að verki staðið, af þeirri einföldu ástæðu að ég veit að þarna er um mætustu menn að ræða. En það er ekki gaman að því þegar menn hafa tekið ákveðna trú og trúa því einfaldlega í blindni að kaup fólksins í landinu sé orsök og undirrót alls ills. Þá freistast menn auðvitað til að gera ýmislegt sem þeir gerðu ekki annars ef hjartahlýjan fengi einhverju að ráða. Slík blind trú hlýtur að hafa þessi áhrif.
Ég skal ekki fara út í nein línurit en aðeins minna á kaldar tölur úr raunveruleikanum sem einnig má lesa út úr því sem Þjóðhagsstofnun og aðrir slíkir aðilar hafa verið að gefa út og ýmis dæmi sem hægt er að reikna út beint út frá því. Ef við segjum að maður hafi haft 20 þús. krónur í kaup í mars s.l. og hann hafi samkv. vísitölu þá greitt fyrir vöru og þjónustu 15 þús. en 5 þús. kr. af verðtryggðum lánum sínum, sem telst nú ekki mikið, hverjar væru þessar upphæðir í dag? Kaupið samkv. þeim viðbótum sem þar hafa komið væri 2 464 kr. hærra. Þrátt fyrir að menn tala hér um að öll verðbólga sé horfin hefur vara og þjónusta samkv. þeim vísitöluhækkunum sem orðið hafa hækkað um 8 271 kr. miðað við þessi 15 þús. sem þarna voru. Og af því að hér var verið að tala um hina stórlækkandi vexti hefðu verðtryggðu lánin hækkað úr þessum 5 þús. kr. upp í 7 417 eða um 2 417 kr. Þessi maður sem eyddi þessum 20 þús. á þennan hátt hefur fengið kaupuppbætur upp á 2 464 kr. en greiðir samkvæmt vísitöluhækkun fyrir vöru og þjónustu og fyrir sín verðtryggðu lán 10 488 kr. Þetta eru kaldar tölur og þarf engin línurit að sýna í kringum það, nema þær eru auðvitað enn þá kaldari og miskunnarlausari hjá þeim sem hefðu bara verið með 10 þús. og hafa fengið 1 232 kr. í uppbót á sín laun frá þeim tíma sem ríkisstj. tók við. Ég kannast við þulu hv. þm. Tómasar Árnasonar um þrekið, þetta er föst fylgikona hans í ræðustól þegar hann er að tala um Alþb. (Gripið fram í: Þrekleysið.) Hann gleymir þessu ekki, já, og þrekleysið sem hann talar um. Ég hef oft svarað honum í sambandi við það. Það þarf ekkert þrek til þess að framkvæma ráðstafanir af þessu tagi sem hafa verið gerðar núna. Það þarf ekkert þrek til að keyra niður kjör elli- og örorkuþega. Það þarf ekkert þrek til að keyra niður kjör einstæðra foreldra eða annarra láglaunahópa. En það þarf þrek ef á að taka á þeim meinsemdum þjóðfélagsins sem hann reyndar impraði örlítið á, fjárfestingunni í milliliðum og öðru slíku, annarri slíkri óþarfa þjónustu. Þar þarf þrek og þar skortir hann þrek, enda þarf þar meira til. Og vegna þess að hér var verið að tala um að vegna þess að Alþb. hefði verið ófáanlegt til að breyta vísitölugrundvelli þá hefði farið að miklu leyti sem farið hefði, þær breytingar áttu einvörðungu að verða til að keyra niður kaupgjaldið í landinu, ekki til neins annars.
En á hverju öðru vildu þeir taka? Ef hv. þm. Tómas Árnason ætlar að koma hér upp á eftir og gera örstutta athugasemd langar mig til að vita á hverju öðru hann hefði viljað taka en kaupgjaldsmálum og vísitölugrundvellinum, á hvaða atriðum fjárfestingarinnar t.d. vildi hann taka? Skera niður í versluninni? Skera niður í gerviþjónustunni? Í hinum margvíslega milliliðakostnaði sem við erum að borga brúsann af? Það væri gaman að fá örlítið nánari útskýringu á því.
Og síðan var hann að tala um ranglætið í sambandi við prósentuna sem gengi upp allan launastigann og nú skyldi maður hafa haldið að þegar þessir tveir aðilar voru saman komnir í stjórn, Sjálfstfl. og Framsfl., hefðu þeir nú aldeilis leiðrétt þetta með sínum prósentum og látið jafnt yfir alla ganga 1. júní og 1. október, sömu krónutöluna. Nei, ekki aldeilis. Prósentureglan var í fullu gildi. 8% fóru auðvitað upp altan launastigann og voru auðvitað jafntvöföld og þreföld og fjórföld eftir því hver hafði kaupið sem grunnurinn mældi. Vitanlega, það er bara engu breytt. Ekki annað en það að prósentan var auðvitað skorin harkalegast niður hjá þeim sem þurftu svo sannarlega á uppbótinni að halda.
Þegar verið er að tala um að vextir lækki er vitanlega rétt að þeir hafa lækkað. En spurningin sem hv. þm. Karl Steinar varpaði fram áðan var vitanlega sú eina rétta í þessari viðmiðun: Hver er greiðslubyrði manna í dag, hvert hlutfall af tekjum manna er hún í dag? Halda menn að þrátt fyrir ýmsar kúnstir hafi mönnum tekist að ná niður greiðslubyrði t.d. lána sem hlutfalli af tekjum frá í vor? Vilja menn halda því fram úr þessum ræðustól að sú greiðslubyrði hafi minnkað? Það væri gaman að heyra af því tagi.
Síðan er auðvitað ósköp eðlilegt að þessi hæstv. ríkisstj. geti stært sig af því núna þessa tvo, þrjá mánuði að verðbólguþróunin hafi eitthvað lagast eftir vaðandi hækkanir sumarsins þegar þeir hleyptu út í verðlagið hverri hækkuninni á fætur annarri og sáust ekki fyrir í því. Það má auðvitað sýna dálítið laglegar tölur á eftir til samburðar við það meðan þeir keyrðu allt á fullu upp úr öllu valdi á opinberri þjónustu og sem afleiðingar af gengislækkun sinni. Hins vegar heyrði ég að hv. þm. Tómas Árnason hefur ekki beint stórt álit á þessari hæstv. ríkisstj. því eftir almenna, mjög dökka lýsingu á Alþfl. hafði hann það helst til málanna að leggja í lokin að telja að stjórnin hefði þó stórlega skánað ef kratarnir hefðu verið með.