05.12.1983
Efri deild: 24. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1334 í B-deild Alþingistíðinda. (1160)
11. mál, launamál
Stefán Benediktsson:
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að mótmæla hv. 4. þm. Austurl. mjög einarðlega. Ég tel það ekki eðlilegt að vera að ræða þetta mál hérna á þessum tíma. Þetta mál átti að ræða á þessari þjóðarsamkundu í vor og þar í felst náttúrlega einfaldlega sá skilningur minn, sem er náttúrlega ekki bara minn eigin heldur líka fleiri, að brbl. eru hlutur sem er í raun og veru gersamlega búinn að afsanna sitt gildi og sinn raunveruleika.
Hv. 4. þm. Norðurl. e. segir: Það varð að gera eitthvað, það varð að taka á málunum. Mér finnst það líka hálfömurlegt að hlusta á talsmenn samvinnuhreyfingarinnar standa hérna inni í þingsölum og verja einhliða aðgerðir án samvinnu við hagsmunaaðila. Ef við rifjum aðeins upp fyrstu orð hv. flm. þá talaði hann um kosningarnar í vor og þá umr. sem þar fór fram áður en að kosningum kom og þá sagði hann reyndar alveg réttilega að Framsfl. eða hans frambjóðendur hefðu verið talsmenn ákveðinna aðgerða í efnahagsmálum að kosningum loknum. En það sem framsóknarmenn létu undir höfuð leggjast eftir að kosningum var lokið var að standa við þann hluta sinna kosningaloforða sem fólst í því að samningar færu fram milli ríkisstj. og þeirra aðila sem þetta mál varðaði, þ.e. vinnuveitenda og launþega. Í staðinn var farið út í einhliða aðgerðir á launahliðinni án þess í raun og veru að koma nokkuð við verðlagið og hvað þá heldur við þessar frægu fjárfestingar.
Fjárfestingar hafa reyndar oft verið nefndar hér í dag og það hefur af hálfu talsmanns, hv. 4. þm. Vestf., verið auglýst eftir tillögum stjórnarandstöðunnar í efnahagsmálum. Auglýsingastarfsemi er reyndar orðinn mjög stór þáttur í íslensku þjóðlífi, en þetta er kannske ný leið til að hagnýta sér þær. Ég er nokkurn veginn viss um og get eiginlega fullyrt að ef stjórnarandstaðan hefði fyrir því vissu að á hennar tillögum yrði tekið mark gæti hún náttúrlega komið fram með þær hugmyndir sem hjá henni er að finna og hafa nú flestallar komið fram að einhverju leyti bæði í stjórnarmyndunarviðræðum í vor og síðan í málflutningi hérna í haust, sem gætu þar af leiðandi hugsanlega skilað okkur eitthvað lengra fram á veg í þeim vanda sem við erum staddir í í dag. Ég er þeirrar skoðunar að þessi vandi verði ekki leystur nema með mjög náinni samvinnu allra aðila á málefnalegum grundvelli.
Hv. 4. þm. Austurl. talaði um það fyrst í sínum málflutningi að enginn hafi viljað bera ábyrgð á framhaldi þeirrar þróunar sem augljós var í vor. Það er alveg rétt, en enn og aftur töluðu allir um það og gerðu allir ráð fyrir að aðgerðir yrðu í raun og veru ekki hafnar fyrr en samningar milli launþega, vinnuveitenda og ríkisstj. hefðu farið fram og að allar aðgerðir yrðu í fullu samráði við hagsmunaaðila þegar að því kæmi. En einu samningarnir sem fram fóru voru stjórnarsamningarnir því að stjórnvöld þorðu ekki þá og þora ekki enn í hliðstæðar aðgerðir í fjárfestingarmálum.
Hv. 4. þm. Austurl. segir að menn séu komnir í aðgerðir í fjárfestingarmálum, það sé búið að ákveða fjárfestingu sem hlutfall af þjóðarframleiðslu og það náttúrlega varpar fram þeirri spurningunni: Af hvaða þjóðarframleiðslu? Um hvaða upphæðir er verið að tala þar og er það þá í raun og veru svo óskaplega mikið breytt mynd sem við höfum þar fyrir augum?
Það er mjög áberandi í málflutningi hérna núna að það er Framsókn mjög mikið atriði að afsaka aðgerðir þessa vors. Ástæða þess er sú að við erum trúlega að nálgast pólitísk vatnaskil vegna þess að við blasir að fram undan eru dökkir tímar fyrir ríkisstj. og þar af leiðandi fyrir launafólk líka. Gengisþróun hefur örugglega verið óhagstæðari en menn höfðu vonað og annar gangur efnahagslífsins líka þannig að við blasir að stjórnin hefur ekki neitt annað í pokahorninu en annaðhvort að framlengja aðgerðirnar frá því í vor, þ.e. halda áfram að skerða kaupmátt launa, í þeim yfirlýsta tilgangi að viðhalda atvinnu, að ekki komi til atvinnuleysis.
Hin leiðin væri sú að þeir gætu slakað á gagnvart kaupkröfum og leyft launum að hækka. En ef það á ekki að valda verðbólgu samkv. þeim kenningum sem stjórnað er nú eftir mundi það þýða atvinnuleysi. Þeir tímar sem fram undan eru eru náttúrlega fyrst og fremst dökkir vegna þess að hér er rétt einu sinni enn á ferðinni sú gamla grýla að krukka eingöngu í kaupið, að vísu með öðrum hætti heldur en áður. En samt sem áður er aðgerðin í eðli sínu ekkert annað en það sem við höfum lifað við þó nokkuð langan tíma. Og ástæðan fyrir því er náttúrlega sú að það er einfaldlega ekki samstaða um neinar aðrar aðgerðir innan þessarar ríkisstj. Og meðan ekki er neitt annað gert en stýra verðbólgu og efnahagslífi með því að stýra kaupgjaldi næst ekkert varanlegt ástand, þá er ástandið sem við búum við áframhaldandi óöryggi.
Fjárfestingar títtnefndar eru náttúrlega í sjálfu sér ekkert annað en laun annars vegar og gjaldeyrir hins vegar. Meðan þessar fjárfestingar skila ekki arði, þ.e. meðan þær ekki skila í raun og veru gjaldeyrinum til baka sem í þær var eytt, er ekki von til að ástandið batni. Það verður að krukka í gjaldeyrishlið þessara fjárfestinga. Ríkið getur náttúrlega dregið saman þar sem það er sjálft viðriðið fjárfestingar með þeim hætti að sá afli sem á land kemur nýtist betur en ella, sá gjaldeyrir sem fyrir hann fæst fari ekki til að framleiða eitthvað sem engu skilar af sér. Reikningsdæmið þarna er afskaplega einfalt í sjálfu sér. Eitt tonn af afla upp úr sjó, ca. 10 þús. tonn, tvöfaldast í vinnslu og síðan má fara að margfalda það og skoða þær fjárfestingar sem til umr. eru. Við erum að tala um 200 þús. tonn af þorski á næsta ári. Nú stendur til að virkja Blöndu. Að vísu er sú fjárfesting náttúrlega ekki öll á einu ári, en Blönduvirkjun eins og kostnaðaráætlun liggur fyrir er 300 þús. tonn af þorski upp úr sjó þannig að aðgerðir á þessum sviðum hafa gífurlega mikil áhrif á nýtingu okkar fjármuna.
Ég veit ekki hvort ég á að vera að hafa þetta lengra. Þetta er orðið svoddan stagl allt saman. Ég veit ekki hvort mér leyfist að vera hér léttlyndur. Einhvern veginn flaug mér í hug eitthvað á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:
Framsókn þreytir þingliðið
því sannfæringin rénar,
falin í sorta frón og mið
og framtíðarhorfur klénar.