05.12.1983
Neðri deild: 20. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1355 í B-deild Alþingistíðinda. (1187)
Umræður utan dagskrár
Guðrún Agnarsdóttir:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. forseta fyrir að gefa mér kost á að kveðja mér hljóðs utan dagskrár. Erindi mitt er að beina spurningu til hæstv. utanrrh. varðandi afstöðu Íslands til þeirrar tillögu um frystingu á kjarnorkuvopnum sem liggur fyrir allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Hæstv. utanrrh. er á förum utan á fund utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsríkjanna en atkvæði munu verða greidd um þessa tillögu innan fárra daga og mál þetta hefur ekki verið rætt hér í þinginu.
Hæstv. utanrrh. hafði á orði hér á Alþingi, þegar rætt var um réttmæti nýrra ratsjárstöðva á Íslandi, að tilhugsunin um kjarnorkustyrjöld væri þess eðlis að hann forðaðist að leiða hugann að slíkum möguleika. Þessi viðbrögð hans eru skiljanleg og eru í reynd hin sömu og flestir sýna. Tilhugsunin um fánýti þeirrar gjöreyðingar og þær hörmungar sem slík styrjöld mundi leiða af sér er svo óbærileg að varla er hægt að staldra við hana nema stundarkorn. En hafi manni einhverju sinni tekist að handsama hugsunina um afleiðingu kjarnorkustyrjaldar, þá held ég að sá sem hefur skynsemi og tilfinningar til að bera ábyrgð á sínu eigin lífi og annarra muni gera það sem í hans valdi stendur til að slíkum vopnum verði aldrei beitt.
Það er hlutverk utanrrh. að gæta hagsmuna og velferðar þjóðar sinnar á erlendum vettvangi og í þessu efni eru hagsmunir og velferð Íslands og alls heimsins sameiginlegir, þ.e. að kjarnorkuvopnum verði aldrei beitt. Augu æ fleiri stjórnmálamanna eru að opnast fyrir þeirri staðreynd að kjarnorkuvopn er ekki nothæf sem tæki til að ná skynsamlegum pólitískum markmiðum né heldur er hægt að nýta slík vopn til að öðlast hernaðarlega yfirburði, vegna þess að ekki er hægt að nýta þau til hernaðarsigurs.
Ég ætla ekki að lengja mál mitt nú með því að telja upp öll þau mörgu og sterku rök sem beinast gegn vígbúnaðarkapphlaupinu og tryggingu friðar á grundvelli ógnarjafnvægis kjarnorkuvopna. stórveldin tvö, Bandaríkin og Sovétríkin, eru komin í sjálfheldu og halda jafnframt stórum hlutum heimsbyggðarinnar í gíslingu með viðkvæmu og ótryggu ógnarjafnvægi. Óstöðugleiki þess vex eftir því sem tækni hinna nýju vopna verður þróaðri og nú er svo komið að einungis 6 mínútur gefast til umhugsunar og ráðrúms, 6 mínútur til að velta því fyrir sér hvort um tölvumistök eða veruleika sé að ræða. Þetta minnkandi svigrúm og stirðar samningaviðræður valda því að spenna í samskiptum stórveldanna fer vaxandi og síeykur hættuna á kjarnorkuátökum. Eins og Alva Myrdal hefur sagt: Við kaupum okkur aukið óöryggi fyrir stöðugt hærri upphæðir.
Tillagan sem liggur fyrir allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna er tilraun til að draga úr þessu hættuástandi og rjúfa þennan vítahring. Bæði stórveldin geta þegar án nokkurrar viðbótar nýrra vopna gjöreytt hvort öðru. Þessi tillaga miðar aðeins að því að hindra frekari vopnasöfnun. Tillagan hvetur bæði Sovétríkin og Bandaríkin til að lýsa yfir tafarlausri frystingu kjarnorkuvopna annaðhvort með samtíma einhliða yfirlýsingum eða með sameiginlegri yfirlýsingu. Slík yfirlýsing yrði fyrsta skref í átt að yfirgripsmikilli afvopnunaráætlun sem fæli í sér allsherjarbann við tilraunum, framleiðslu og uppsetningu kjarnorkuvopna. Enn fremur algjöra stöðvun á framleiðslu kjarnakleyfra efna til vopnanotkunar. Slík frysting yrði háð öllum þeim aðferðum til sönnunar og eftirlits, sem þegar hafa verið samþykktar af málsaðilum í SALT I og SALT II samningunum, auk þeirra aðferða sem þeir hafa samþykkt í grundvallaratriðum í þríhliða undirbúningsviðræðum í Genf um algjört bann við kjarnorkuvopnatilraunum. Þessi frysting mundi gilda í fimm ár til að byrja með en gæti orðið lengri ef önnur kjarnorkuveldi slást í hópinn eins og allsherjarþingið væntir að þau geri.
Það er mikið í húfi að fyrstu skrefin út úr þessari blindgötu kjarnorkuvopnahótana verði stigin. Það eru hagsmunir okkar allra að leiða tröllin tvö út úr sjálfheldunni og bjarga fjöreggi okkar. Til þess þurfum við m.a. að geta tekið afstöðu til slíkrar tillögu.
Þann 1. des. s.l. samþykkti danska þingið þáltill. sem hvetur til stöðvunar á uppsetningu nýrra kjarnorkueldflauga í Evrópu og hvetur til þess að viðræður um fækkun meðaldrægra eldflauga hefjist að nýju þegar í stað. Enn fremur er talið víst að Danir muni styðja þá tillögu um frystingu kjarnorkuvopna sem liggur fyrir allsherjarþinginu. Þegar svipuð tillaga var borin fram á s.l. ári á allsherjarþinginu og samþykkt þar greiddu Danir og Íslendingar atkvæði á sama hátt, þ.e. þeir sátu hjá. Án þess að ég vilji taglhnýta íslenska ákvarðanatöku við Dani vil ég spyrja hæstv. utanrrh. hvort hann geti fallist á það að Alþingi Íslendinga fái að greiða atkvæði um afstöðu Íslands til þessarar mikilvægu tillögu um frystingu kjarnorkuvopna á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.
Herra forseti. Ég hef lokið máli mínu.