05.12.1983
Neðri deild: 20. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1357 í B-deild Alþingistíðinda. (1188)
Umræður utan dagskrár
Utanrrh. (Geir Hallgrímsson):
Herra forseti. Ég get að flestu leyti verið sammála hv. fyrirspyrjanda um þær ógnir og eyðileggingu sem kjarnorkustyrjöld hefur í för með sér. En ég vil taka það fram að ég viðhafði um daginn ekki eingöngu þau orð að ég mætti tæpast hugsa til kjarnorkustyrjaldar. Ég hygg að ég hafi orðað það svo — og orðið fyrir gagnrýni þess vegna — að ég sagðist helst ekki vilja hugsa mér þann möguleika að styrjaldarátök almennt brytust út, vegna þess að ég held því miður að það verði slík eyðilegging og ógn í kjölfar styrjaldarátaka, hvort sem kjarnorkuvopnum er beitt eða ekki, að óbærilegt verði fyrir mannkyn allt eða þeim sem fyrir slíkum átökum verða.
Hv. þm. spurði mig, eða svo skildi ég hv. 3. landsk. þm., hvernig Ísland mundi greiða atkvæði á þingi Sameinuðu þjóðanna þegar upp yrði borin tillagan um frystingu kjarnorkuvopna. Ég get svarað því stutt og laggott að ég hef hugsað mér að við Íslendingar höfum sömu afstöðu og greiðum eins atkvæði á þingi Sameinuðu þjóðanna nú eins og við gerðum fyrir ári síðan, þ.e. að við munum sitja hjá.
Nú er það ekki alveg ljóst hvaða tillögu hv. þm. á við vegna þess að á þingi Sameinuðu þjóðanna nú í haust eru bornar fram þrjár mismunandi tillögur sem allar geta fallið undir frystingu kjarnorkuvopna þótt munur sé á þeim tillögum umfram það sem lýsa má með því að segja að á þeim sé blæmunur. Ég hygg að þarna séu efnistök mjög frábrugðin frá einni tillögu til annarrar. Tillögur þessar eru hver um sig í mörgum liðum og það þarf vandlega yfirferð til þess að kanna hvað í hverri þeirra felst. En ég hygg þó að þau rök sem flutt voru fyrir því að við Íslendingar sætum hjá við atkvæðagreiðslu um þessar tillögur fyrir ári eigi einnig við nú.
Í skýrslu forvera míns, fyrrv. utanrrh., var nokkur grein gerð fyrir því af hvaða ástæðum hann tók þá ákvörðun að Íslendingar skyldu sitja hjá við atkvgr. um tillögu Mexíkó og Svíþjóðar og fleiri ríkja um frystingu kjarnorkuvopna. En auk þeirrar tillögu er á ferðinni á þingi Sameinuðu þjóðanna tillaga frá Sovétríkjunum um sama efni sem og þriðja tillagan frá Indlandi. Þessar tillögur hafa verið afgreiddar í nefnd og í afgreiðslu nefndarinnar hefur Ísland setið hjá. Það hefur einnig verið svo með Noreg og Danmörku nema hvað snertir tillögu Indlands. Danir greiddu atkvæði með henni.
Ef fjalla á almennt um rökstuðning fyrir hjásetu er auðvitað hægt að fara með mjög langt og ítarlegt mál um þessi efni. En með því að þessi umr. er utan dagskrár fer ég ekki eins nákvæmt út í efni málsins og e.t.v. væri ástæða til, enda býst ég líka við að tækifæri gefist til þess síðar hér á Alþingi og í utanrmn. áður en langt um líður að fjalla mjög ítarlega um þessi mál, afvopnunarmálin í heild sinni og t.d. slíkar tillögur sem þessar sérstaklega.
Í fyrsta lagi hafa ríki ekki verið á eitt sátt að það væri rétti tíminn að samþykkja frystingu kjarnorkuvopna þegar ekki væri gengið úr skugga um það áður að sæmilegt jafnvægi ríkti meðal stórveldanna á þessu sviði. Ef frysting væri samþykkt eða knúin fram þegar jafnvægisleysi væri að þessu leyti milli stórveldanna þá væri hætta á því að það sem yfirburði hefði í þessum vopnabúnaði gæti fengið vilja sínum framgengt.
Í öðru lagi er það skoðun margra ríkja að samþykkt frystingar kjarnorkuvopna á þessu stigi mála, þegar stórveldin eru að leita samkomulags eða sitja að samningaborði, geti beinlínis haft slæm áhrif á að árangur náist í slíkum samningaumleitunum.
Ég hygg að það hafi verið alveg rétt sem fram kom hjá hv. 3. landsk. þm. hér áðan að á öllu veltur að samkomulag náist milli stórveldanna tveggja, Sovétríkjanna og Bandaríkjanna. Í raun og veru sýnir reynslan það að samþykktir jafn virðulegrar samkomu og allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna megna lítið er þessi tvö stórveldi ná ekki saman. Allt það sem getur þess vegna komið í veg fyrir eða spillt fyrir að þessi stórveldi nái saman er því ekki af hinu góða. Og því miður er það svo, eins og við raunar vitum og höfum fylgst með undanfarið, að meðan við hér á Vesturlöndum ræðum þessi mál opið og knýjum á stjórnvöld Bandaríkjanna og vestrænna ríkja að sýna samningalipurð og umburðarlyndi að vissu marki óneitanlega, þá er engin slík umræða leyfð fyrir austan tjald svo að Sovétríkin fara sínu fram án þess að láta almenningsálit hafa áhrif á þróun mála hjá sér.
Við sjáum þetta glögglega á því að 1975, þegar Helsinki-sáttmálinn er gerður, byrja Sovétríkin á því að undirbúa að setja niður meðaldrægar eldflaugar á meginlandi Evrópu. Árið 1977 er hafið að setja niður þessar eldflaugar af hálfu Sovétríkjanna. Í byrjun desember 1979, þegar hin tvíþætta samþykkt Atlantshafsbandalagsins var gerð, þ.e. um að setja niður meðaldrægar eldflaugar í Evrópu af hálfu Bandaríkjamanna annars vegar og hins vegar að knýja Sovétmenn að samningaborðinu til að koma í veg fyrir frekari niðursetningu meðaldrægra sovéskra eldflauga í Evrópu, þá voru Sovétmenn búnir að setja niður í Evrópu um 140 meðaldrægar eldflaugar. En menn höfðu að litlu leyti orð á þeirri ógnun og þeirri hervæðingu sem í þessu fólst.
Tilgangur Sovétríkjanna, að áliti þeirra sem gleggst þekkja, mun hafa verið sá að reyna að kljúfa samstarf Bandaríkjamanna annars vegar og Evrópuríkja hins vegar í varnar- og öryggismálum. Það átti að koma málum svo fyrir að Evrópuríkin sætu undir þeirri ógn sem þessar meðaldrægu sovésku eldflaugar höfðu í för með sér gagnvart Evrópuríkjunum og treysta á það að Bandaríkin mundu ekki koma Evrópuríkjum til hjálpar eða varnar ef á þau — Evrópuríkin — væri þrýst. Þessi þróun hélt sem sagt áfram þar til hin tvíþætta ályktun Atlantshafsbandalagsins var samþykkt í desember 1979. En Evrópuríkin — Atlantshafsbandalagsríkin — fóru ekki hraðar fram í samþykkt sinni en svo að þau gáfu Sovétríkjunum fjögurra ára umhugsunarfrest til að fá þau til að stöðva þennan vígbúnað sinn og láta af þessari ógnun við frelsi og sjálfsákvörðunarrétt vestrænna þjóða. En Sovétmenn létu sér ekki segjast heldur héldu stöðugt áfram að setja nýjar og nýjar meðaldrægar eldflaugar niður í Evrópu og vildu ekki setjast að samningaborðinu fyrr en 1981. En jafnvel eftir að þeir settust að samningaborðinu 1981 héldu þeir áfram að setja niður eldflaugar, u.þ.b. eina eldflaug með þrem kjarnaoddum á viku hverri, þannig að nú er svo komið að þeir hafa yfir að ráða um 360–380 eldflaugum í Evrópu og er hver þeirra búin þrem kjarnaoddum sem unnt er að beina í mismunandi áttir á mismunandi skotmörk. Þarna er auðvitað um mjög mikið og alvarlegt misvægi og jafnvægisleysi að ræða. Og því miður hafa friðarhreyfingar vel meinandi fólks á Vesturlöndum sem að sjálfsögðu vill skapa eigin ríkisstjórnum aðhald ekki vakið athygli á þessari þróun mála og vígbúnaðarkapphlaupi af hálfu Sovétríkjanna.
En slík þróun hlaut að leiða til þess andsvars sem fólst í tvíþættri ákvörðun vesturveldanna. Og það verður að ítreka og undirstrika hér að Bandaríkjamenn áttu ekki upptökin að því að ákveða að niður skyldu settar í Evrópu meðaldrægar bandarískar eldflaugar, heldur Vestur-Evrópuríkin sjálf með Helmut Schmidt kanslara Vestur-Þýskalands í broddi fylkingar til að sýna fram á að Atlantshafsbandalagsríkin vildu ekki herða vígbúnaðarkapphlaupið, heldur væri þessi ákvörðun eingöngu fólgin í því að ná jafnvægi eða í það minnsta möguleika á andsvari á því sviði vígbúnaðar sem meðaldrægar eldflaugar í Evrópu eru.
Þá var það samþykki um leið og tvíþætta samþykktin var gerð í Atlantshafsbandalaginu að taka niður um 1000 kjarnorkuvopn í Evrópu án þess að önnur kæmu í staðinn. Nú nýverið var á fundi varnarmálaráðherra Atlantshafsbandatagsríkjanna í Montebetlo í Kanada samþykkt að fækka kjarnavopnum Atlantshafsbandalagsríkjanna um 1400 til viðbótar. Og í þriðja lagi mun kjarnavopnum vestrænna ríkja í Evrópu verða fækkað um eitt a.m.k. fyrir hverja eldflaug sem sett verður upp. Það er ekki verið að setja þessar nýju eldflaugar upp í einu vettvangi, það er enn verið að gera sér vonir um að unnt verði að koma viti fyrir Sovétmenn og til þess að vinna tíma er ætlað að þessar eldflaugar, samtals um 572, ef ég man rétt, verði settar niður á fimm árum og því verði ekki lokið fyrr en 1988. En hvenær sem er á þessum tíma eru Atlantshafsbandalagsríkin tilbúin að stöðva niðursetningu eldflauganna, taka þær niður sem væru komnar upp ef eitthvert samkomulag næst milli stórveldanna, þannig að ekki verður sagt að hér sé um herskáar aðgerðir af hálfu Atlantshafsbandalagsríkjanna að ræða og út af fyrir sig er þetta aðeins andsvar vegna vígbúnaðarkapphlaups Sovétríkjanna.
Það er í raun talið að þrátt fyrir niðursetningu bandarískra eldflauga, Pershing II og stýriflauganna hér í Evrópu, muni kjarnorkuvopnum Atlantshafsbandalagsríkjanna í Evrópu fækka um þriðjung. (Forseti: Ég vil spyrja hæstv. ráðh. hvort hann eigi mikið eftir af ræðu sinni.)
Ég hef rakið þetta, herra forseti, vegna þess að ég hef talið það nauðsynlegt í tengslum við svar mitt við fsp. hv. þm. Ég hef svarað fsp. að við munum sitja hjá og hafa óbreytta afstöðu til þessara tillagna á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna frá því sem var á síðasta þingi. Og rökstuðningurinn er þessi að frysting kjarnorkuvopna kemur í fyrsta lagi ekki að gagni þegar jafnvægisleysi á þessu sviði ríkir. Í öðru lagi getur samþykkt slíkrar till. verið til skaða og komið í veg fyrir að nauðsynlegur þrýstingur sé á stórveldunum báðum að setjast að samningaborði og ná samkomulagi á þessu sviði. Og í þriðja lagi skortir í þessum till. ákvæði og tryggingu fyrir því að nægilega öruggt eftirlit verði með því haft að ríki geti ekki brotist undan slíkum samþykktum og haldið áfram uppteknum hætti um tilraunir með kjarnorkuvopn, framleiðslu kjarnorkuvopna og notkun þeirra í þeim skilningi sem niðursetning þeirra er á þeim svæðum sem átök kunna að reynast líkleg.
Ég sé svo ekki ástæðu til þess að lengja þessa ræðu nema frekara tilefni gefist.