05.12.1983
Neðri deild: 20. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1362 í B-deild Alþingistíðinda. (1195)

Umræður utan dagskrár

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Aðeins örfá orð.

Einkum langar mig að þakka hæstv. utanrrh. fyrir þá hjartnæmu ræðu sem hann hélt hér. Hún var svo hjartnæm að ég sá hvítar friðardúfur svífa um salinn þegar hann var að lýsa þessari stærstu friðarhreyfingu, NATO. Og ekkert má nú gera til að spilla möguleika hennar til að koma á friði með samningaviðræðum. Það gengur svona og svona eins og við vitum. Það lá beint við að álykta að þetta væri hin eina færa leið að mati hæstv. utanrrh., það væri að setja á samningaviðræður, sem menn hafa reyndar gert undanfarin 20 ár og náð þeim árangri að vígbúnaður hefur stöðugt aukist. Það er kunnugt að Sjálfstfl. kallar NATO gjarnan friðarhreyfinguna. Þess er kannske að vænta að hann geri um það till. núna í fyrstu viku janúar, þegar skila þarf inn tilnefningum til úthlutunarnefndar friðarverðlauna Nóbels, að friðarhreyfingin mikla, NATO, verði þar á listanum næst.

Ég lýsi vonbrigðum mínum með það sem kom fram í svari hæstv. utanrrh. hér, að hann hygðist beita sér fyrir því að Ísland sitji hjá í þessari atkvgr. Ég tel að við eigum alveg hiklaust að styðja till. Mexíkó og Svíþjóðar og væntanlega fjölda annarra ríkja frá þriðja heiminum úr suðri og norðri. Og ég tel alveg ótvírætt að þar eigi Ísland að skipa sér í hóp og ekki síst þegar það liggur nú fyrir að atkvæði Danmerkur fellur þannig einnig.

Ég tek undir það og ég styð það að mjög æskilegt væri að fyrir lægi samþykkt Alþingis um þetta mál, þá vonandi einróma eða svo til einróma, þó að einhverjir hæstv. ráðh. kynnu að vilja sitja hjá í þeirri atkvgr.