06.12.1983
Sameinað þing: 28. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1395 í B-deild Alþingistíðinda. (1230)

116. mál, krabbameinslækningar

Guðrún Agnarsdóttir:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd Kvennalistans eindregið ítreka mikilvægi þessa máls. Bæði er að tíðni illkynja sjúkdóma er há og fer vaxandi í nútíma þjóðfélagi og líka að meðferð slíkra sjúkdóma hefur sem betur fer tekið miklum framförum og veitir nú fjölda manns verulegan eða varanlegan bata sem áður áttu sér litla eða enga lífsvon. Með tilliti til þess hve algengir illkynja sjúkdómar eru í nútíma þjóðfélagi er nauðsyn hinnar bestu meðferðar sem völ er á mjög brýn. Þetta finnur hver best þegar höggvið er í hans eigin knérunn. Vil ég leggja áherslu á að þetta er eitt af þeim verkefnum sem ættu að hafa forgang.