06.12.1983
Sameinað þing: 28. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1402 í B-deild Alþingistíðinda. (1238)
113. mál, Námsgagnastofnun
Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda fyrir að færa þetta mál inn í þingsali, því ljóst er að þessi þáttur skólamála, sem er útgáfa námsefnis, hefur verið í miklu fjársvelti á undanförnum árum og við þurfum virkilega að gera átak til að efla að nýju þá starfsemi. Ég vil líka fagna því sem fram kom í máli hæstv. menntmrh., en hún lét í ljós að hún væri sannfærð um að till. sem fram koma í fjárlagafrv. yrðu hækkaðar í meðförum Alþingis, og þykist ég þess fullviss að hún muni fylgja því fast eftir að fjárveiting verði hækkuð til stofnunarinnar.
En ég vil nota þetta tækifæri og spyrja, hvort hæstv. menntmrh. hafi kynnt sér nál. og till. nefndar sem fyrrv. menntmrh. skipaði til að vera ráðgefandi um gerð og útgáfu kennslugagna fyrir nemendur með sérþarfir á grunnskólastigi, og þá í framhaldi af því, hvort hæstv. menntmrh. hyggist móta stefnu í útgáfu sérkennslugagna á næstu árum. Því vil ég leita eftir því nú, hvort hæstv. menntmrh. geti gefið þingheimi upplýsingar um það og svar við því, hvort hún hyggist móta stefnu í útgáfu sérkennslugagna í samræmi við þær tillögur sem sú nefnd lagði til sem fyrrv. menntmrh. skipaði 27. janúar 1982 til að gera tillögur um gerð og útgáfu sérkennslugagna, og vænti ég þess fastlega að hæstv. menntmrh. svari þessari spurningu minni því það eru ekki síður sérkennslugögnin sem ég hef áhyggjur af en gerð annars námsefnis fyrir skólana.