19.10.1983
Neðri deild: 6. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 145 í B-deild Alþingistíðinda. (124)
11. mál, launamál
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Það mál sem hér er til umr. er viðamikið, snertir marga þætti og raunar flesta í okkar stjórnkerfi og efnahagslífi. Það er því óhjákvæmilegt að umr. um það taki nokkuð langan tíma. Hins vegar höfum við rætt um það að við reynum að haga svo máli okkar hér í dag að sjónarmið sem flestra komist að á þeim stutta tíma sem þingfundur stendur, þ.e. fram um eða rétt yfir kl. 4. Hér verður því ekki kostur á því að taka fyrir af minni hálfu ítarlegar öll þau efnisatriði sem ég hefði viljað ræða. En ég áskil mér rétt til að kveðja mér á ný hljóðs á síðari stigum umr.
Ég get þó ekki látið hjá líða að víkja að nokkrum almennum forsendum hæstv. forsrh. fyrir þessu frv., sem hann greindi frá áðan. Það var þá fyrst að hann sagði að frv. þetta væri sprottið af nauðsyn, það hefði verið nauðsynlegt að grípa til efnahagsráðstafana í vor. Um það var enginn ágreiningur og er enginn ágreiningur, a.m.k. ekki við Alþb., við töldum nauðsynlegt að grípa til ráðstafana í efnahagsmálum í vor. Það voru heldur engar tillögur um það uppi í stjórnarmyndunarviðræðunum í vor að laun ættu öll að hækka um 22–23% 1. júní s.l. Alþb. benti á þann möguleika að fresta þeirri hækkun til 1. júlí og vinna á meðan að því að ná samkomulagi, m.a. við samtök launafólks, um nýtt fyrirkomulag dýrtíðaruppbóta í landinu. Við fluttum þá tillögu í Alþb. að hin lægstu laun tækju á sig 22–23% dýrtíðaruppbætur, eða hvað sem það væri sem kæmi út úr niðurstöðum Hagstofu Íslands, en að hærri laun fengju á sig sömu krónutölu. Þetta var grundvallaratriðið í okkar tillögum í stjórnarmyndunarviðræðunum í vor. Þess vegna var ekki um það að ræða að við legðum til að öll laun hækkuðu um þessa prósentutölu. Það var þess vegna enginn ágreiningur um það að grípa þyrfti til einhverra efnahagsráðstafana og um það hafði Alþb. forustu í stjórnarmyndunartilraun í vor að reyna að ná samkomulagi um þær. Framsfl. var hins vegar ekki reiðubúinn til slíks. Hann var svo bundinn orðinn íhaldinu strax eftir að stjórnarmyndunarviðræður hófust að þm. hans festust ekki augnablik inni í stjórnarmyndunarviðræðum með öðrum aðilum og því fór sem fór.
Við í Alþb. vildum og viljum leggja á það áherslu að þegar gripið er til aðgerða gegn verðbólgunni þá sé það gert með svipuðum hætti og varð 1981. Þá var fylgt okkar tillögum í efnahagsmálum í öllum meginatriðum. Það var farin leið hinna sléttu skipta, þannig að þó að felldar væru niður verðbætur á laun 1. mars 1981, þá var sú niðurfelling bætt upp með betra vísitölukerfi þegar leið á árið 1981. Niðurstaðan varð sú, að kaupmáttur launa á því ári hélst og batnaði frá því sem verið hafði, þó að verðbólgan færi mjög verulega niður, eða úr u.þ.b. 80%, eins og spáð hafði verið, niður í 40%. Þetta grundvallaratriði lá fyrir og liggur fyrir um okkar afstöðu, þó að óvandaðir talsmenn ríkisstj. reyni að láta líta svo út sem Alþb. hafi sérstaklega ekki verið reiðubúið til að glíma við þann mikla vanda sem um var og er að ræða í efnahagsmálum hér á landi.
Það er líka rétt, sem hæstv. forsrh. benti hér á, að hér var auðvitað ekki eingöngu um að ræða verðbólguvanda. Hér var um að ræða miklu víðtækara efnahagslegt vandamál sem stafaði af samdrætti í okkar þjóðarframleiðslu. Það var minna til skiptanna og er minna til skiptanna heldur en var þegar best áraði, og af ýmsum ástæðum standa málin þannig t.d. að hlutfall erlendra skulda af vergri þjóðarframleiðslu er hærra núna en það hefur verið um nokkurt skeið.
Það kann að vera fróðlegt fyrir menn að velta því fyrir sér hvernig á því stendur að erlendar skuldir eru miklu hærra hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu en áður var. Á því eru margar skýringar. Í raun og veru er um að ræða þrjár aðatskýringar á þessari staðreynd. Í fyrsta lagi hefur átt sér stað lækkun á raungengi íslensku krónunnar á síðustu tveimur árum og það mjög verulega, gengið hefur verið lækkað langt umfram kostnaðartilefnin í landinu sjálfu núna á síðustu árum, m.a. til að styrkja samkeppnisstöðu ýmissa greina svo sem iðnaðarins eins og gert var í tíð fráfarandi ríkisstj., en líka í því skyni að flytja stórfellda fjármuni frá launafólki í landinu yfir til atvinnuveganna í heild, eins og gert var í tíð núv. ríkisstj. með þeirri miklu gengisfellingu sem hún ákvað í vor.
Önnur skýringin á þessum hækkandi hlutfallstölum erlendra skulda er sú, að verg þjóðarframleiðsla hefur fallið mjög verulega og þar af leiðandi verður hlutfall hinna erlendu skulda meira en ella hefði orðið af þjóðarframleiðslunni.
Þriðja skýringin á þessu hækkandi hlutfalli felst svo í hreinni skuldaaukningu. Hvar er sú skuldaaukning sem þar er um að ræða og af hverju stafar hún? Hún stafar auðvitað m.a. af því að við höfum verið að fjárfesta hér í virkjunum og hitaveitum og öðrum slíkum framkvæmdum á liðnum árum. En auðvitað stafar þessi erlenda skuldasöfnun líka af því að á árinu 1982 varð þjóðin fyrir miklu áfalli sem orsakaði viðskiptahalla á því ári. Það var þess vegna sem fráfarandi ríkisstj. beitti sér fyrir róttækum efnahagsaðgerðum sem höfðu í för með sér stórkostlega minnkandi viðskiptahalla. Þegar núv. ríkisstj. tók við var í rauninni búið að grípa til þeirra aðgerða sem dugðu til að draga viðskiptahallann niður og þar með tilefni til aukinnar erlendrar skuldasöfnunar. Það er þess vegna þannig, að þegar skoðaðar eru skýringarnar á hækkandi hlutfallstölum erlendra skulda, þá liggja þær þarna, en ekki í því að fráfarandi ríkisstj. hafi legið í einhverri óráðsíu í þessu efni.
Ég tel líka að meginvandinn í þessu liggi í erlendum skuldum einkaaðila. Það er um að ræða mjög stórfellda skuldasöfnun á vegum langlánanefndar og á ábyrgð viðskrn. umfram það sem heimilt var í fjárfestingar- og lánsfjáráætlun fyrir árið 1983. Það væri fróðlegt fyrir Alþingi-og það verður óskað eftir því í umr. í hv. fjh.og viðskn. — að gerð verði grein fyrir því hvaða skuldasöfnun þar er, hvaða látökur það eru sem hafa farið fram á vegum langlánanefndar og hafa farið langt fram úr því marki sem sett var af fráfarandi ríkisstjórn í fjárfestingar- og lánsfjáráætlun hennar. Þessi atriði þarf auðvitað að hafa í huga þegar þessir þættir eru allir skoðaðir.
Hæstv. forsrh. heldur því fram að meginrökin fyrir efnahagsaðgerðunum og þessum lögum liggi í þeim mikla verðbólguvanda sem hér hafi verið um að ræða um skeið. Það er alveg augljóst mál að hér var um að ræða mjög verulegan verðbólguvanda sem varð að taka á. Um það var enginn ágreiningur. Staðreyndin er hins vegar sú, að það er útilokað að gera sér vonir um að verðbólgan náist niður eingöngu með kauplækkunaraðgerðum. Við skulum átta okkur á því að verðbólgan hér á landi hefur á undanförnum árum stafað sérstaklega af því að menn hafa verið að reyna að skipta meiru en til var í þjóðarbúinu. Það er þess vegna sem verðbólgan hefur ætt áfram, eins og kunnugt er, á liðnum árum.
Þegar um er að ræða stórkostlega offjárfestingu í versluninni, þá hefur það í för með sér verðbólgu, vegna þess að þá verður minna til skiptanna til annarra hluta í landinu sjálfu. Þegar um er að ræða skipulagsleysi, mjög dýrt skipulagsleysi í undirstöðuatvinnuvegi landsmanna, þ.e. í sjávarútveginum, þá hefur það einnig í för með sér verðbólgu. Þegar um er að ræða stórkostlega umframfjárfestingu hjá milliliðunum í landbúnaðinum, þá hefur það í för með sér verðbólgu. Þegar um er að ræða mjög verulega fjárfestingu umfram nauðsyn og þarfir í bankakerfinu í landinu, svo mörg hundruð millj. kr. skiptir, þá er það verðbólga.
Það er ávísun á verðbólgu og ríkisstj., sem ekki snertir á þessum grundvallarforsendum dýrtíðarinnar en lætur hinn almenna launamann borga dýrtíðina niður, hún er dæmd til þess að horfast í augu við það að dýrtíðin hlýtur að fara upp aftur, vegna þess að launamennirnir í landinu geta ekki lifað á þeim fjármunum sem nú eru skammtaðir, þeir geta það ekki. Það er ekki spurning um vilja heldur getu, vegna þess að hinn almenni launamaður hér á landi, sem hefur fyrir fjölskyldu að sjá, er þannig staddur um þessar mundir að það er útilokað fyrir þetta fólk að draga fram lífið af þeim kjörum sem lágtekjufólki eru skömmtuð um þessar mundir, það er algjörlega útilokað. Þessi launamaður er tilbúinn til þess að taka á sig skerðingu, að taka á sig álögur vegna hinnar miklu verðbólgu. Hann er tilbúinn til þess að leggja mikið af mörkum, þessi launamaður, og hann hefur lagt mikið af mörkum.
Þegar fráfarandi ríkisstj. fór frá hafði það gerst að kaupmáttur launa hafði lækkað sem nam falli þjóðarteknanna og þjóðarframleiðslunnar. En það er okkar skoðun að það hafi verið óþarfi og óeðlilegt að ganga þarna lengra og rífa kjörin niður tvisvar til þrisvar sinnum meira en nam falli þjóðarteknanna og þjóðarframleiðslunnar. Með því að skera kaupið meira niður, eins og núv. hæstv. ríkisstj. hefur gert, er hún að flytja fjármuni til í þjóðfélaginu, frá þeim sem lifa á því einu að selja vinnuafl sitt yfir til milliliðanna og atvinnuveganna í landinu. Þessi atriði vildi ég nefna varðandi aðgerðir ríkisstj. almennt.
Það liggur fyrir að kaupmáttur launa hefur núna fallið svo mikið á hverja unna klukkustund að það er komið niður í árið 1953. Yfirgnæfandi meiri hluti íslenskra launamanna hefur því aldrei verið á eins lágu tímakaupi og nú, aldrei verið með eins lélegan kaupmátt tímakaups og núna. Jafnframt liggur það auðvitað fyrir að aðgerðir ríkisstj. eru ekki til þess fallnar að bjarga stöðu atvinnuveganna. Það er alveg ljóst að staða ýmissa atvinnugreina er enn mjög tæp, þrátt fyrir þær aðgerðir sem ríkisstj. hefur gripið til og þrátt fyrir það að núv. hæstv. iðnrh. heimtar í blöðum lækkun á freðfiski á Bandaríkjamarkaði. Það er ljóst að margar atvinnugreinar standa hér mjög tæpt um þessar mundir. Og niðurskurðurinn á kaupmætti hefur það í för með sér að það verður minni þjónusta sem fólk getur keypt, minni vöruframleiðsla sem fólk getur keypt, sem aftur þýðir færri atvinnutækifæri í þjónustu- og vöruiðnaðargreinum. Þess vegna er ríkisstj. í rauninni með stefnu sinni að skera niður eftirspurn í þjóðfélaginu, sem mun koma niður á atvinnugreinunum þegar fram í sækir, og hefur raunar þegar komið niður á þeim með stórfelldum samdrætti í ýmsum þjónustugreinum. Hættan er sú, að þessi stefna ríkisstj ., sem hér hefur verið lagt inn á og er í grundvallaratriðum allt öðruvísi en sú stefna sem Fylgt hefur verið á liðnum árum muni hafa í för með sér stórfellt atvinnuleysi þegar fram líða stundir. Þessi stefna tryggir ekki fulla atvinnu í landinu.
Herra forseti. Ég vík nú að nokkrum atriðum í brbl. sjálfum og ég segi fyrst: Þetta eru einstök lög. Ég spyr hæstv. forsrh.: Getur hann nefnt eitt einasta dæmi um að launamenn hafi verið sviptir samningsrétti með sama hætti og gert er ráð fyrir í þessum lögum? Getur hann nefnt eitt einasta dæmi? Ég hygg að hann geti það ekki, vegna þess að ég lagði þessa spurningu fyrir einn af talsmönnum Framsfl. í sumar, sem þekkir vel til, og hann gat ekki nefnt eitt einasta dæmi um þetta. Það hefur að vísu verið reynt að fara þá leið sem hér er farið út á. Það var gert árið 1942, en íhaldið og Framsfl. hafa síðan ekki þorað að leggja inn á þá braut fyrr en nú á þessu ári að svipta menn frjálsum samningsrétti og troða þannig á frelsi einstaklingsins, eins og við stjórnarandstæðingar höfum lýst hér undanfarna sólarhringa.
Til viðbótar við þá staðreynd sem hér er drepið á liggur hitt og fyrir, að ýmsir af talsmönnum sjálfstfl. hafa verið að reyna að þvo af sér þá smán sem felst í þessum brbl. Þeir vilja ekki kannast við að þeir hafi í raun og veru átt að þessu nokkra aðild, þeir hafi neyðst til að setja þessi brbl.
Hæstv. viðskrh. sagði á fundi í Hafnarfirði fyrir nokkrum dögum: „Það liggur ljóst fyrir að við vildum láta samningsréttinn óhreyfðan á ábyrgð samningsaðila og ég er sannfærður um að það hefði ekkert gerst fram að áramótum, það hefði staðið nákvæmlega eins og í raun og veru það kemur til með að standa“. Hæstv. viðskrh. er m.ö.o. þeirrar skoðunar að það hafi verið óþarfi að setja þessi lög, þau hafi í raun og veru engu breytt vegna þess að launamenn hefðu unað kauplækkuninni án þess að grípa til aðgerða á árinu 1983.
Hæstv. viðskrh. og trúi ég einnig hæstv. iðnrh. .hafa hagað orðum sínum þannig að ástæða er til að spyrja: Er sjálfstfl. reiðubúinn til að standa að því að fella þetta ákvæði brbl. niður hér í þinginu, eða ætlar hann að selja Framsfl. sannfæringu sína í annað sinn, rétt eins og gerðist á s.l. vori? Hér er auðvitað ekki um að ræða neitt slíkt atriði að menn togist á um það í samningum um ríkisstjórn hvort samningsréttur er afnuminn í tvö ár eða átta mánuði, að einn segi 24 mánuði og svo endi þeir í átta að lokum til samkomulags. Hér er um að ræða grundvallarmannréttindi, og flokkur sem kennir sig við frelsi einstaklingsins eða flokkur sem kennir sig við félagshyggju og vinstri stefnu samþykkir ekki nauðungarákvæði af þessu tagi eina einustu viku, ekki einn einasta dag. Þess vegna er það fráleitt þegar talsmenn Sjálfstfl. eru að orða þetta þannig, að þeir hafi gert þetta til samkomulags við Framsfl., það er algerlega fráleitt að orða þetta þannig, vegna þess að þar með eru þeir að gera lítið úr grundvallarmannréttindum, og þar með eru þeir í rauninni líka að gera lítið úr sinni eigin grundvallarafstöðu.
Þetta er meginspurning, sem ég vil hér bera fram við hæstv. ráðh. Sjálfstfl. og þá alveg sérstaklega hæstv. utanrrh., formann Sjálfstfl., hvort hann sé reiðubúinn að standa að því að þetta nauðungarákvæði verði fellt út hér í þinginu. Ég vil einnig spyrja hæstv. forsrh., vegna ummæla hans í útvarpsþætti í gærkvöld, hvort hann sé tilbúinn til þess líka, því að í þættinum lýsti hann því yfir að málið væri nú í höndum þingsins. En auðvitað er það svo, að niðurstaða í þinginu í stórmáli af þessu tagi fer eftir afstöðu ríkisstj. en ekki fyrst og fremst og eingöngu eftir því hvernig umræður ráðast hér í þinginu.
Ég vil einnig spyrja hæstv. forsrh.: Getur hann nefnt eitt dæmi um það að bannað hafi verið að greiða vísitölubætur á laun í heil tvö ár og ákvörðunin um það bann hafi verið tekin með brbl? Getur hann nefnt eitt dæmi um þetta úr Íslandssögunni? Hann gæti reyndar gramsað í bókum viðreisnarstjórnarinnar en ég hygg að jafnvel þar finni hann ekkert dæmi þessa.
Ég vil einnig spyrja hæstv. forsrh.: Hverju sætir það að ríkisstj . bannar útreikning verðbótavísitölu á þessum sama tíma? Eitt er það að banna greiðslu verðbót á laun en annað hitt, að banna útreikning verðbóta vísitölunnar. Hverju sætir það að ríkisstj. bannar mönnum að reikna út veruleikann, hverju sætir það? Og hvernig stendur á því að ríkisstj. setur slíkt bann inn í brbl.?
Ég vil einnig í tilefni af 3. málsgr. 2. gr. þessara makalausu laga, þar sem bannað er að gera kjarasamninga til 31. jan. spyrja hæstv. forsrh. hvort það sé ekki alveg á hreinu að þessi lög hrófla á engan hátt við verkfallsrétti verkalýðssamtakanna í landinu. Ég vil fá afdráttarlaus svör í þessu efni. Í lögunum eins og þau eru er hvergi minnst á rétt verkafólks til vinnustöðvana. Það er hvergi á það minnst og hvergi vístað til laganna um stéttarfélög og vinnudeilur í þessum lögum. Er það ekki alveg ljóst að verkalýðsfélögin hafa fullan rétt til vinnustöðvana, ef þeim býður svo við að horfa, þrátt fyrir þau lög sem hér er verið að ræða um?
Ég vil einnig spyrja hæstv. forsrh.: Hvernig hyggst ríkisstj. bregðast við ef einhver aðili á vinnumarkaði næði samningum um aðrar launahækkanir en þær sem hér eru ákveðnar? Hvað gerir ríkisstj. ef launamaður og atvinnurekandi ná samkomulagi núna fyrir 1. nóv. um einhverja launahækkun? Hvað gerir ríkisstj.? Hvernig bregst hún við því?
Á blaðamannafundi 27. maí var hæstv. forsrh. spurður þessarar spurningar. Hann svaraði henni ekki en vísaði á hegningarlögin. Ég spyr hæstv. forsrh.: Hvaða greinar eru það í hegningarlögunum sem hann mundi beita og telja viðeigandi ef menn kæmust að þeirri niðurstöðu að einhver atvinnurekandi gæti hækkað kaupið á einhverjum launamanni örlítið núna næstu daga? Hvaða greinar eru það í hegningarlögunum sem ríkisstj. er þar að vitna til?
Í þessari gr., 2. gr. brbl., er með ótrúlega nákvæmum hætti farið út í það að ráðast að kjarasamningum. Þar eru í fyrsta lagi framlengdir allir þeir kjarasamningar sem voru í gildi þegar brbl. voru sett. Í öðru lagi eru framlengdir síðast gildandi kjarasamningar, þ.e. kjarasamningar sem sagt hafði verið upp en ekki höfðu verið endurnýjaðir þegar brbl. voru gefin út. Ég vil spyrja hæstv. forsrh.: Hvaða kjarasamningar eru það sem þarna er fyrst og fremst verið að skírskota til? Er með þessu lagaákvæði verið að framlengja kjarasamninga sjómanna sem voru uppsagðir en óendurnýjaðir þegar lögin voru sett? Er með þessu lagaákvæði verið að framlengja kjarasamninga tanntækna sem sagt var upp á árinu 1981 af þáv. ríkisstj? Var ríkisstj. með þessu ákvæði að framlengja óbreytta þá kjarasamninga sem tannlæknar höfðu allt til ársins 1981 en þáv. ríkisstj. sagði upp? Það er óhjákvæmilegt að fá upplýsingar um þetta áður en þessari umr. lýkur.
Þessi meginatriði, herra forseti, sem ég hef hér nefnt eru þannig að það er mjög nauðsynlegt að fá svar við þeim áður en umr. lýkur, og þá sérstaklega þessu: Er ríkisstj. eða Sjálfstfl. reiðubúinn til þess að fella úr gildi ákvæði brbl. sem bannar frjálsa kjarasamninga, sem bannar mönnum að sýna sanngirni sína á milli í ákvörðun launa á næstu mánuðum? Ég óska eftir því að Sjálfstfl. sérstaklega og formaður hans svari þessari spurningu. En ég vil líka spyrja hér fleiri. Hvað segir formaður Bandalags háskólamanna í þessu efni? Vill hann, eftir að Bandalag háskólamanna hefur skipulagt undirskriftasöfnun, taka þátt í því að samþykkja þetta nauðungarákvæði hér í þinginu? Með því verður mjög vandlega fylgst. Og það verður borin fram sú spurning m.a. til hv. þm. Péturs Sigurðssonar: Mun hann standa að samþykkt þessari? Það verður fróðlegt að vita hvaða þm. Sjálfstfl. það verða sem fylgja ráðherrabandalaginu og Framsfl. að lokum inn í herleiðinguna.