06.12.1983
Sameinað þing: 28. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1404 í B-deild Alþingistíðinda. (1241)

113. mál, Námsgagnastofnun

Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Ég þakka þær ábendingar sem hér hafa komið fram. Sumt af því er óneitanlega örlítið skringilegt þegar þess er gætt, að það er ekki nema tæpt ár síðan gengið var frá fjárlögum þessa árs og þá var e.t.v. sama ástæða til að taka undir með þeim sem bentu á fjárhagsvanda Námsgagnastofnunar eins og nú er og ekki síður, en ekki sá þáv. ríkisstj. ástæðu til að leysa vandann þá. Ætli það megi kannske álykta að þáv. ríkisstj. hafi verið í þeirri aðstöðu sem fleiri ríkisstjórnir að ekki er unnt að framkvæma allt sem óskað er ef það kostar peninga og peningarnir eru takmarkaðir. Það er sá vandi sem við stöndum frammi fyrir hvað sem öllum yfirlýsingum líður. En ég treysti því að einhver bót verði ráðin þarna á.

Ég get ekki heldur látið hjá líða að minnast aðeins á varnaðarorð af hálfu hv. þm. í sambandi við rekstur Námsgagnastofnunar og þá starfsemi sem þar fer fram. Vissulega er þar vel unnið en einhvern veginn þykir mér það aldrei fela í sér mikla von um framfarir þegar svona ofboðlítið afturhaldshljóð heyrist í hv. þm., eins og það sem varar við breytingum af hvaða tagi sem er. Bara alls ekki breytingar og allra síst ef minnst er á útboð á einhverju, þá er það örugglega stórhættulegt. Ég er ekki sammála hv. þm. Ég hygg að framkvæmd útboða á mörgum sviðum í opinberum aðgerðum hafi sannað gildi sitt. Vissulega þarf þar að standa mjög vel að verki og ekki alveg loku fyrir það skotið að vera kunni einhver verkefni í samningu ritaðs efnis, hvort sem það er notað í skólum eða annars staðar, sem geti verið háð þeim sömu ástæðum. Það er auðvitað alveg ljóst að þar þarf fyrst og fremst að fullnægja öllum faglegum kröfum. Það er höfuðatriði. En ég hygg að það sé af nokkru fljótræði mælt hjá hv. þm. þegar hann varar við hvers konar breytingum, og þá að sjálfsögðu útboðum sem öðrum breytingum.

Annars þakka ég, herra forseti, fyrir ýmsar mjög gagnlegar ábendingar sem hér hafa komið fram. Raunar beindi hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir til mín spurningum um sérstakt efni að því er varðar sérkennslugögn. Það er stórt og vandasamt efni og það er alveg ljóst að þar er mikið verk að vinna. En það er líka ljóst að öllum þeim þörfum sem þar eru fyrir hendi og verða á næstu árum verður ekki sinnt á einu ári. En að því er unnið og það er mikill vilji fyrir því í menntmrn.