06.12.1983
Sameinað þing: 28. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1415 í B-deild Alþingistíðinda. (1259)
402. mál, tekju- og verkaskipting ríkis og sveitarfélaga
Fyrirspyrjandi (Þórður Skúlason):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. félmrh. fyrir svör hans. Það kemur fram í svörum hæstv. ráðh. að það hefur engin ákvörðun verið tekin um þá athugun sem greint er frá í fjárlagafrv., og er það að vísu vel að það skuli ekki hafa verið gert þar sem ekki er enn þá efnt til formlegs samstarfs við Samband ísl. sveitarfélaga. Ég fagna því að það samstarf skuli nú eiga að taka upp.
Ég vil hins vegar gagnrýna það að nefndin skyldi ekki vera látin starfa áfram eða ný nefnd skipuð til að vinna að þessu verkefni, þar sem ég tel að nefndin hafi verið komin á góðan rekspöl og hafi þegar unnið ágætt starf í þessum málum.
En um tekju- og verkaskiptinguna að öðru leyti langar mig til að segja hér örfá orð:
Staðreyndin er sú, að sveitarstjórnirnar ráða litlu sem engu um tekjur sveitarfélagsins. Þær eru lögbundnar af ríkisvaldinu, og þó engum sé betur kunnugt um framkvæmdaþörf sveitarfétagsins, fjárhagslega afkomu íbúanna og áhuga þeirra og þörf á framkvæmdum og þjónustu en einmitt sveitarstjórnunum, þá fá þær í þessum efnum litlu sem engu ráðið. Nær einu tekjurnar sem sveitarstjórnirnar geta ákvarðað án beinna afskipta ríkisvaldsins eru sorphreinsunargjald og hundaleyfisgjöld. Þó eru það sveitarstjórnirnar sem bera ábyrgð á rekstri sveitarsjóðanna og taka afleiðingum gerða sinna í kosningum.
Núgildandi tekjustofnalög mismuna sveitarfélögum mjög eftir gerð þeirra og atvinnuuppbyggingu. Aðstöðugjöldin eru mun lægri á fiskveiðar, landbúnað og fiskvinnslu en iðnað og verslun og alls engin á vinnslustöðvar landbúnaðarins, mjólkurbú og sláturhús. Þetta leiðir til þess að tekjustofnar nýtast mjög illa í sveifarfélögum þar sem frumvinnslan fer fram, eins og víða í þorpum úti um land, og með allt öðrum hætti en t.d. hér í Reykjavík. Það má nefna að fasteignamat er mun hærra í Reykjavík en úti um land og til viðbótar eru hér altar stærstu byggingar í verslun og þjónustu, sem ætlað er að þjóna öllu landinu og öll þjóðin á. Þannig mismuna núgildandi tekjustofnalög sveitarfélögunum hrapallega, enda auðvitað fráleitt og ófært að sveitarfélögin séu látin jafna aðstöðu atvinnuveganna eins og gert er með aðstöðugjöldunum. Skyldi annars sveitarfélag þar sem fiskvinnsla og veiðar eru uppistaða atvinnulífs þurfa minni tekjur en hitt þar sem verslun, þjónusta og iðnaður eru uppistaðan? Ég held ekki.
Um megintekjur sveitarfélaganna er aðalreglan sú, að tekjur standi í beinu hlutfalli við íbúafjöldann, en því getur verið allt öðru vísi farið með útgjöldin. Mörg minni þorp standa t.d. undir þjónustu líkri og í 1500 til 2000 manna bæjum. Verkefni eins og bygging dagvistarstofnana, skóla, hafna, gatnagerð og fleiri slík verkefni eru þessum sveitarfélögum ofviða, nema með þátttöku ríkisins, og afar hæpið að tekjur sem falla til í sveitarfélaginu geti staðið undir slíkum verkefnum á eðlilegum tíma, þó færðar væru frá ríkinu til sveitarfélaganna. Hins vegar eru hreinni skil um rekstur nauðsynleg. T.d. er afar óeðlilegt að sveitarfélög skuli standa undir hluta rekstrarkostnaðar við heilsugæslustöðvar og sjúkrahús, en hafa sáralítið um reksturinn að segja að öðru leyti. Hér er um margslungin mál að ræða, sem þurfa ítarlega umfjötlun. Því er nauðsynlegt að fram bornum spurningum sé öllum ítarlega svarað, eins og ég gat um áðan, áður en gengið er til athafna á þessu sviði.
Aðalatriðið er að breytt verka- og tekjuskipting dragi úr því mikla misræmi sem er nú á milli sveitarfélaga og leiðrétti eða jafni það misrétti sem nú viðgengst í þessu landi og felst í því og fer eftir því hvar fólk býr. Á næstu árum verður að vinna skipulega að því og kosta til þess nokkrum fjármunum að búa íbúum hinna fámennari staða úti á landi líkar aðstæður og eru í stærri og grónari sveitarfélögum. Þá á ég fyrst og fremst við þjónustu ýmiss konar, skóla, íþróttamannvirki, dagvistun fyrir börn, gatnagerð og umhverfismál. Þetta verður að vera megintilgangurinn með endurskoðun eða athugun á verka- og tekjuskiptingunni og til þessarar niðurstöðu þarf hún að leiða.