06.12.1983
Sameinað þing: 28. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1416 í B-deild Alþingistíðinda. (1260)

404. mál, átak gegn útbreiðslu ávana- og fíkniefna

Fyrirspyrjandi (Jóhanna Sigurðardóttir):

Herra forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 140 að bera fram eftirfarandi fsp. til dómsmrh.: „Hyggst dómsmrh. efla toll- og löggæslueftirlit vegna stóraukinnar útbreiðslu á ávana- og fíkniefnum eða gera á annan hátt átak til að fyrirbyggja að fíkniefni berist til landsins?“

Tilefni þessarar fsp. er að á undanförnum vikum hafa komið fram opinberlega upplýsingar um að notkun fíkniefna hafi á undanförnum einum til tveim árum farið ört vaxandi og fram hafa komið ógnvekjandi tölur í því sambandi. Í riti heilbr.- og trmrn., sem gefið var út í júní 1983, um kannanir á áhrifum fíkniefnadóma 1980 og kannanir á kannabisneyslu Íslendinga, kemur m.a. eftirfarandi fram í könnun sem gerð var í skólum landsins:

Í fyrsta lagi að af liðlega 1000 manns, sem könnunin náði til, neyttu 222 á aldrinum 16 til 26 ára kannabis eða 22.18%. Fram kemur einnig í þessu riti að á þessum aldri séu í landinu 48 þús. manns og ef reiknað er með sama hlutfalli neytenda og fram kemur í könnuninni nái neyslan til 10 656 á þessum aldri.

Í öðru lagi kemur fram í sömu könnuninni að á aldrinum 15 til 30 ára noti 222 eða 19.75% kannabis. Í þessum aldurshópi eru 67 383 í landinu. Ef sömu forsendur eru notaðar um neyslu í þessum aldurshópi neyttu 13 312 á aldrinum 15 til 30 ára kannabisefna.

Fram hafa auk þess komið opinberlega nýverið enn meira ógnvekjandi tölur en ég hef hér lýst. Það kom fram hjá formanni Æskulýðsráðs í sjónvarpi að 40 til 60% þeirra sem eru á aldrinum 16–30 ára neyti fíkniefna í einhverjum mæli. Erfitt er að staðhæfa þær tölur sem þarna koma fram og ber því að taka þær með fyrirvara. Að auki má benda á að í Dagblaðinu kemur nýlega fram að þriðji hver sjúklingur sem leitar til lækna á meðferðarstöð SÁÁ geri það vegna langvarandi ofnotkunar á kannabisefnum eða öðrum sterkum eiturefnum.

Á undanförnum árum hefur verið gert upptækt töluvert magn af fíkniefnum. Hafa það sem af er þessu ári verið tekin 20 kíló af kannabisefnum og 600 gr af amfetamíni, en til samanburðar voru tekin 8 kíló af kannabisefnum 1981 og 50 gr af amfetamíni og 1982 um 8 kíló af kannabisefnum og 73 gr af amfetamíni. Þeir sem gerst þekkja til telja að hér sé aðeins um að ræða smábrot af því sem í umferð er hér á landi, en tölur hafa komið fram um að áættað sé að allt að 3 tonn séu í umferð.

Á undanförnum dögum og vikum hef ég rætt við marga þá sem að þessum málum vinna, bæði toll- og löggæsluyfirvöld svo og yfirmenn heilbrigðismála. Allir þessir aðilar eru sammála um að fíkniefnaneysla hafi farið ört vaxandi á undanförnum árum og að aukist hafi notkun á sterkum fíkniefnum, svo sem amfetamíns. Það er því ljóst að stjórnvöld verða að grípa til allra tiltækra ráða til að fyrirbyggja útbreiðslu þessara stórhættulegu og skaðlegu efna og að gera verður stóraukið átak til að fyrirbyggja að fíkniefni berist til landsins svo og að auka í skólum og fjölmiðlum alla fræðslu um skaðsemi fíkniefna, eins og hér hefur komið fram fyrr í dag.

Hér er alvarlegt mál á ferðinni sem getur haft svo ógnvekjandi afleiðingar fyrir einstaklinga og þjóðina í heild ef ekki er brugðist við með skjótum hætti. Bæði getur afleiðing þess orðið stóraukin afbrot, þar sem fíkniefnaneytendur neyta allra ráða til að verða sér úti um peninga til að kaupa fíkniefni, og eins hitt, að það getur eyðilagt líf fjölda ungmenna ef þessi mál eru ekki tekin föstum tökum. Auk þess getur afleiðing þessa orðið stóraukinn kostnaður við alla heilbrigðisþjónustu í landinu.

Ég hef leyft mér ásamt nokkrum hv. þm. að flytja einnig þáltill. um þetta mál á Alþingi til að knýja enn frekar á um hve mikilvægt er að brugðist verði við þessum vanda með skjótum hætti, en það er ekki síst undir hæstv. dómsmrh. komið að átak verði gert til að fyrirbyggja útbreiðslu ávana- og fíkniefna, þannig að tekið verði á þessum málum nú þegar, áður en málið sækir í enn verra horf en nú er. Samhliða þeirri þáltill. sem nú hefur verið lögð fram taldi ég því brýnt að beina þeim fsp., sem fram koma á þskj. 140, til hæstv. dómsmrh., þannig að þingheimi væru kunnar fyrirætlanir hans í þessu máli jafnframt því sem umrædd þáltill. er lögð fram. Hún er flutt af þm. úr öllum þingflokkum, sem sýnir ljóslega að víðtæk samstaða virðist vera um það hér á hv. Alþingi að nú þegar verði gert raunhæft átak í þessu máli.