06.12.1983
Sameinað þing: 29. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1462 í B-deild Alþingistíðinda. (1293)

110. mál, fullnýting fiskafla

Flm. (Björn Dagbjartsson):

Herra forseti. Ég þakka þeim sem undir þetta hafa tekið hjá mér. Síst af öllu ætla ég að hafa á móti því að þeir sem betur vita breyti minni till. til betra horfs en vona að menn geri það án þess þó að tilgangur hennar breytist.

Það voru nokkur atriði í máli hv. 4. þm. Vesturl., Skúla Alexanderssonar, sem mig langaði til að gera athugasemdir við. Ég hélt ég hefði skýrt það í grg. og í máli mínu að svipting veiðileyfa er sú refsing sem best hefur gagnast. Ég veit að hv. þm. kannast við að sviptingu veiðileyfa á netaveiði var beitt nokkrum sinnum fyrir 1980 við báta sem komu að landi með afskaplega lélegan fisk, mun lélegri en aðrir sem veiddu á sömu slóðum. Þetta hafði sín áhrif a. m. k. eina vertíð, það er mér kunnugt um.

Ég hélt einnig að ég hefði skýrt það að til þess að vita um hvað við erum að tala þurfum við reynslutíma. Við þurfum reynslutíma til að geta sagt um það hvað er smáfiskur, hvað er eðlilegt, hvað er ekki hægt að komast hjá að komi um borð í veiðiskip, og á meðan á þessum reynslutíma stendur sé engum refsað. Ég hygg þó að ekki verði komist hjá því að einhver viðurlög séu við veiðum á smáfiski og að þeim sé þá beitt eftir að menn vita um hvað þeir eru að tala.

Ég fullyrði það aftur að við að nýta slóg í meltu er engin aukavinna fyrir sjómanninn, engin. Það er spurning um það að ýta slógi fyrir borð og henda því, eða í trekt sem hakkavél tekur og flytur í tank. Þessi búnaður er kominn um borð í einn togara nú þegar og verið að setja í annan og ég skora á hv. þm. að kynna sér þetta mjög nákvæmlega því þetta er staðreynd.

Ég hef hér skýrslu frá tveim sjómönnum sem ég hef haft samband við núna undanfarið. Þeir eru sjómenn á tveim togurum, öðrum frá Dalvík, hinum frá Akureyri og þeir hafa tekið saman fyrir mig ýmis atriði sem þeir telja að betur mættu fara um borð. Þeir segja hér, með leyfi forseta:

„Okkur hefur óað við þeim flottræfilshætti með nýtingu þess afla sem um borð kemur og kennum þar um að sumu leyti ólögum sem í gildi eru. Það ber að færa allan þann afla sem fæst til hafnar, þar með talinn smáþorsk. Okkur fiskimönnum er ætlað að gera að smáfiski, ísa hann í kassa, koma honum að landi og láta gera hann upptækan — og fá þar að auki sektir. Þetta er það sem úr gildi verður að nema.“

Þessir sömu sjómenn gera ýmsar tillögur hér. Þeir telja að sjómenn muni hiklaust gera að smáum fiski ef þeir fá fyrir hann greitt og telja engan vafa á því að smáfiskur, smáþorskur muni koma að landi sé greitt fyrir hann lágmarksverð, þó mun lægra sé heldur en nú fæst fyrir stóran þorsk.

Ég vil að lokum vona að þessi till. fái sína þinglegu meðferð hér og mér að meinalausu, mér er einungis þökk að því ef hún breytist til batnaðar í meðförum þingsins.