06.12.1983
Sameinað þing: 29. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1463 í B-deild Alþingistíðinda. (1294)

110. mál, fullnýting fiskafla

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Ég skal ekki tefja framgang þessa ágæta máls né önnur þingstörf með langri ræðu. Mig langar þó að lýsa yfir samþykki mínu og taka undir orð annarra ræðumanna þar um. Ég tel þetta hina þörfustu og merkustu till., svo langt sem hún nær, þ.e. hér er einungis farið fram á að þessi lög verði endurskoðuð með ákveðið markmið í huga, en nánar er ekki kveðið á um framkvæmdina í sjálfri tillgr.

Það er mat þeirra sem til þekkja að brotalömin í núgildandi lagsetningu sé fyrst og fremst sú, eins og reyndar kom fram hér áðan, að þeim mönnum sem þar er gert skylt að færa að landi smáfisk er ætlað að gera það fyrir ekki neitt. Hlutirnir ganga einfaldlega ekki þannig fyrir sig, þar sem hér er auðvitað um afkomu útgerðarinnar og sjómannanna að tefla, að þeir séu að leggja á sig aukið erfiði og jafnvel takmarka möguleika sína til að nýta afla að öðru leyti með því að eyða miklum tíma í frágang smáfisks, svo ekki sé nú talað um fiskúrgang, sem þeir síðan fá ekkert fyrir þegar í land er komið. Það er auðvitað alveg ljóst að þessi fiskur mun ekki berast að landi nema þeir sem á sig þurfa að leggja erfiði við vinnslu hans fái eitthvað greitt fyrir það. Það er auðvitað atriði nr. 1 sem þarna þarf að breyta.

Aftur á móti má ekki gera þetta þannig að áhafnir og útgerð fari að sjá sér hag í því að nýta þennan fisk í verulegum mæli, því að það er einmitt það sem við ætlum væntanlega öll að fyrirbyggja með lagasetningunni. Það verður að sjá til þess að smáfiskurinn sé ekki veiddur og ekki sé legið í smáfiskiríi umfram það sem óhjákvæmilegt má teljast. Þarna þarf m.ö.o. að finna einhvers konar jafnvægi á milli þessara tveggja sjónarmiða, annars vegar að tryggja það að þessi verðmæti berist á land og fari ekki út um lensportin eins og nú er og hins vegar að smáfiskirí sé ekki stundað meira en óhjákvæmilegt er. Það er og verður alltaf þannig, a.m.k. meðan togveiðar eru stundaðar, að eitthvert magn af smáfiski kemur upp með, þó jafnvel sé verið að fiska að öðru leyti ágætis fisk. Það er a. m. k. þannig um ákveðin mið. Þar er blandað fiskirí, eins og það heitir, og það verður ekki hjá því komist að eitthvað af smáfiski lendi með, a.m.k. í einstökum köstum. Þarna verður því að finna einhverja skynsamlega leið. Því hefur verið hreyft í mín eyru af sjómönnum sem til þekkja að ein möguleg útfærsla á þessu væri sú, að sá hluti áhafnarinnar sem leggur á sig erfiði við að nýta fiskinn fengi nokkuð fyrir sinn snúð, en yfirmenn og í öllu falli útgerð fengi minna, jafnvel ekki neitt, þannig að þeir sæju sér ekki hag í því að nýta þetta, mundu frekar vilja hafa það á hinn bóginn, að sem allra minnst af þessum fiski kæmi upp til þess að ekki þyrfti að eyða tíma í að ganga frá honum. Þetta er einungis ein af mörgum leiðum sem kannske er ástæða til að hugleiða í þessu sambandi, því að ég held, miðað við það ástand sem verið hefur undanfarið og miðað við það hvernig þessari lagagrein hefur nú reitt af, að ástæða sé til þess að dæma ekki fyrir fram eina leið sem gæti reynst betur en það fyrirkomulag sem við höfum haft hingað til. Ég beini því til flm. og þeirra sem taka þetta fyrir í nefnd að huga að þessum möguleika.

Það markmið sem við hljótum að stefna að er að setja lög sem tryggja það að allur nýtanlegur þorskur sé hirtur, en hvetja samt ekki til veiða á smáum þorski. Og einhverjir þurfa að sjá sér hag í því að þessum lögum sé framfylgt. Reynslan hefur sýnt að meðan svo er ekki verður það einfaldlega ekki gert. Ég tek undir það sem hv. þm. Skúli Alexandersson sagði hér áðan að ég held að boð og bönn muni ekki lækna í þeim efnum. Það þarf að koma annað til, einhvers konar jafnvægi milli þeirra sjónarmiða sem ég rakti hér að framan.