06.12.1983
Sameinað þing: 29. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1467 í B-deild Alþingistíðinda. (1296)

110. mál, fullnýting fiskafla

Valdimar Indriðason:

Herra forseti. Ég vil lýsa því yfir að ég fagna því að till. sem þessi er komin hér fram. Við getum auðvitað deilt um það hvort hún er nógu ítarleg eða of ítarleg eða annað slíkt, en við verðum að halda öllum leiðum opnum nú á hinum síðustu og verstu tímum til að nýta allt það sjávarfang sem okkur býðst. Það hefur verið okkur til nokkurs vansa — ja, ég vil segja öll þau ár sem liðin eru í okkar nýsköpun í aflabrögðum, hvernig við höfum gengið um hina ýmsu hluti og einkum úrganginn og aldrei talið hann til afurða.

En það er rétt sem hefur komið fram hjá þeim sem hér hafa tekið til máls að það er við ýmsa erfiðleika að etja þarna, t.d. það að flest skipanna eru enn vanbúin að taka við þessum tækjum, aðallega tankvæðingunni sem þarf að fylgja þessu, því að meltuvinnslan er nú einu sinni þannig að hún er plássfrek og er ekki annað en það að slógið er hakkað og sett í það maurasýra og látið gerjast þar til að verja það sýrumyndun. Svo er það tekið í land og má gera annað tveggja eftir að búið er að skilja það við lýsið, að nota það áfram til frekari vinnslu í verksmiðju og blanda því út í þann fisk sem unninn er í fiskimjölsverksmiðjum eða þá að selja það beint sem svokallaða meltu sem íslenski markaðurinn hefur verið tregur að taka við enn þá.

Ég átti nokkurn þátt í því fyrir tveimur árum að það var sett melta úr grásleppu í nokkrar tunnur uppi á Akranesi. Það vildi enginn hirða þetta. Þetta var ágætisvara og ég bað viðkomandi að fara upp á Hvanneyri með þetta á sjálft ríkisbúið og biðja þá að prófa það. En þeir máttu ekki vera að rugla sinn rekstur með slíkum tilraunum svo að það virðist ekki vera móðins hjá okkur í dag að nota þetta. Aftur á móti nota Danir mikið af þessu. Þetta er ein tegundin af þeirra alikálfafóðri. Þetta er mjög góð fóðurvara, a.m.k. handa vissum tegundum alidýra. Lýsi er hægt að ná góðu úr þessu ef vel er um þetta gengið. En þó að það sé ekkert aðalatriði finnst mér tillögumaður ganga nokkuð djarflega í það að reikna út lýsisnýtinguna úr þessu. A m.k. náði ég aldrei meðan ég var í verksmiðjurekstri þeirri lýsisnýtingu sem hann talar um. Það er nokkuð djarflegt, en það er ekkert atriði. Ég bara bendi á þetta. Við skulum ekki gera okkur neinar sérstakar óskatölur í þessu, það gengur ekki þannig fyrir sig.

En smáfiskurinn var það sem ég vildi minnast á. Ég hef enga trú á því, því er miður, að það verði auðvelt að koma honum að landi kúttuðum eða slægðum ísuðum í kössum. Ég segi alveg eins og er, það er margbúið að reyna þetta og ég held að það sé mjög erfitt. Auðvitað verður að greiða fyrir þetta, það verður kannske ekki aðalvandamálið, en þetta er mikil vinna að eiga við smáfiskinn. En það er líka eina ráðið til þess að sjá hvað drepið er af honum, svo að menn geti þá séð hver segir satt og hver segir ósatt í öllum þeim miklu ræðum sem haldnar eru um smáfiskadráp, það er eina ráðið til þess að sjá þetta. En ég held samt að ef meltuvinnslu er komið á annað borð upp í þessum skipum, þá færi þessi fiskur í kvörnina og færi í meltuna, því að smáfiskurinn er alveg jafnauðfenginn í meltu eins og slógið sjálft. Ég held þess vegna að hann færi þangað að mestum hluta en ekki upp á kúttunarborðið hjá þeim. Þetta atriði skulum við gera okkur alveg ljóst.

Ég ætla ekki að hafa mörg fleiri orð um þetta núna, en ég legg áherslu á að þetta verði mjög vel kannað og ég þakka hv. þm. Birni Dagbjartssyni fyrir að koma með þetta inn í þingið, því að það eru einmitt slík efni sem við þurfum mjög að takast á við og athuga. En við þurfum jafnframt að athuga ýmsa aðra fleti á þessu. Ég segi eins og hv. þm. Garðar Sigurðsson: ég segi þetta ekki til að draga úr, heldur rétt sem ábendingar að fenginni reynslu af vissum þáttum þessa efnis. En ég mæli mjög með því að þetta sé mjög alvarlega athugað.