06.12.1983
Sameinað þing: 29. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1469 í B-deild Alþingistíðinda. (1297)
110. mál, fullnýting fiskafla
Flm. (Björn Dagbjartsson):
Herra forseti. Hv. þm. Garðar Sigurðsson er nú horfinn úr salnum og ég ætla þá einungis að koma hér upp til að benda honum á það að bregða sér nú um borð á Vestmannaey í Vestmannaeyjum í jólafríinu og spyrja skipverja að því hvernig þeim gekk að vinna meltu í sumar. Þeir unnu nefnilega, og fóru þó nokkra túra með meltuvinnslu um borð. Ég ætlaði að benda honum á að lesa þá grg. sem fylgdi þessari till. því að hann hefur greinilega ekki lesið úr henni nema það sem hann vildi lesa. Ég ætlaði og að benda honum á að lesa grg. sem fylgdi till. Guðmundar G. Þórarinssonar o.fl. um lífefnavinnslu frá í fyrra og ég ætlaði yfirleitt að spyrja hann að því, ef hann hefði verið hér, til hvers hann kom í stólinn áðan.