07.12.1983
Neðri deild: 21. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1497 í B-deild Alþingistíðinda. (1322)
Um þingsköp
Karvel Pálmason:
Hér er enn að koma upp sú ringulreið sem alltaf ríkir hér á Alþingi þegar líða tekur að jólaleyfi þm. Þetta er ekkert nýtt. Ég minnist þess að á síðasta Alþingi, um svipað leyti fyrir ári síðan, fengu þingflokkar lista frá hæstv. ríkisstj. með 80–90 forgangsmálum sem áttu að fara í gegnum þingið fyrir jólaleyfi. Þá sat hv. núv. 3. þm. Reykv. í ríkisstj. (Gripið fram í: Þau voru hundrað.) Ja, hundrað, ekki bætir úr. Alltaf betra að hafa vaðið fyrir neðan sig.
Þetta sýnir bara hve þinghaldið er í raun og veru gjörsamlega óskipulagt. Það tekur engu tali sem nú er að gerast. Í fyrradag fengu þingflokksformenn í hendur lista frá ríkisstj. með forgangsmálum sem áttu að fara hér í gegnum þingið fyrir jólaleyfi. Í gærkvöld kemur enn listi með viðbótarmálum, stórum, sem síðan eru sett á dagskrá þingsins í dag. Slíkt er auðvitað óþolandi af hálfu okkar óbreyttra þm. Við eigum í raun og veru ekki að láta bjóða okkur slík vinnubrögð. Ef menn vilja fá lagfæringu á slíku þannig að mark sé á tekið, þá ættu þm. almennt að neita slíkum vinnubrögðum með útgöngu og mæta ekki til fundar. (Forseti: Ég vil biðja hv. þm. um að stytta mál sitt.)