07.12.1983
Neðri deild: 21. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1497 í B-deild Alþingistíðinda. (1324)

Um þingsköp

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Ég undrast stórlega yfir hverju menn eru að hafa áhyggjur hér í þingsölum. Ég er hér með skrá yfir mál sem óskast afgreidd frá Alþingi fyrir jólahlé. Og hvað stendur hér?

„Forsrn. ekkert, dóms- og kirkjumrn. ekkert, félmrn. ekkert, landbrn. ekkert, samgrn. ekkert, utanrrn. ekkert, menntmrn. ekkert.“

Herra forseti, förum við ekki að fara í jólaleyfi? Að vísu eru hér örfá mál sem hæstv. fjmrn. óskar eftir að afgreidd verði. Frá heilbr.- og trmrn. kemur þetta árlega frv. til l. um sjúkratryggingagjald, það er eina málið þaðan. Iðnrn. er með tvö mál, sjútvrn. með tvö mál sýnist mér og ég sé ekki betur en að búið sé að tala fyrir a.m.k. öðru þeirra. Dóms- og kirkjumrn. er með frv. um skipan prestakalla, eitt mál. Félmrn. er með frv. til l. um Húsnæðisstofnun ríkisins, sem búið er að mæla fyrir. (Gripið fram í.) Nú jæja, eitthvað verðum við líka að hafa að gera.

Ég er aldeilis undrandi á því ef við komumst ekki yfir þetta með eðlilegu fundahaldi. Mér finnst a.m.k. að þessir hæstv. ráðh. sem ætla ekkert að fá afgreitt fyrir jólahlé ættu ekki að hafa minnstu áhyggjur. — [Fundarhlé.]