07.12.1983
Neðri deild: 21. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1503 í B-deild Alþingistíðinda. (1328)
129. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Hv. 2. þm. Reykv. talaði hér áðan fyrir Sjálfstfl., var að reyna að hjálpa til í þessu basli við að halda utan um þetta frv. þeirra félaga, hans og Alberts hæstv. fjmrh. Og það var von að hann reyndi að hlaupa undir bagga og honum líkt þegar þrengdi að félaga hans.
Hins vegar er vert að vekja athygli á því að fram kom hjá honum mjög athyglisverð yfirlýsing. Hún var sú að hann mundi beita sér fyrir því í fjh.- og viðskn. Nd. að greiðslubyrði skatta á árinu 1984 yrði alls ekki hærri en hún er á árinu 1983. Þetta endurtók þm. og hann dró í efa að okkar fullyrðingar í þessu efni væru réttar.
Hann flutti sín rök fyrir því að nota 20% launahækkunartöluna milli áranna 1983 og 1984. En ég ætla að benda á önnur rök sem eru í þessu máli mjög gild, sem sé þau að eftir að Þjóðhagsstofnun gerði sína áætlun um greiðslubyrði ársins 1984 hafa komið fram upplýsingar um samdrátt í þjóðarframleiðslu á árinu 1984 frá því sem þá var gert ráð fyrir. Þjóðhagsstofnun gerði ráð fyrir að þjóðarframleiðslan 1984 yrði 64.1 milljarður kr. Eftir að svarta skýrslan birtist er þessi tala komin niður í 62 milljarða kr. Í skattafrv. ríkisstj. og fjárlagafrv. er gert ráð fyrir að heildarskattar til ríkisins verði 2 457 millj. kr. og að þetta gefi greiðslubyrði sem verði 55.7% árið 1984 til ríkisins.
Það er ljóst þegar vegna þeirra upplýsinga í svörtu skýrslunni sem liggja fyrir að þessi hlutfallstala er hærri 1984 en 1983, bara af þeirri einu ástæðu. Þannig að nokkru munar. Hve miklu nákvæmlega ætla ég ekki að deila um á þessu stigi málsins, enda er í rauninni útreikningsefni að finna það út. En það er ljóst vegna þess sem gerst hefur þegar hlutfallið er hærra 1984 ef maður tekur mark á öttum forsendum ríkisstj. sjálfrar sem ég er ekki að segja að ég geri í einu og öllu. En ef miðað er við þær forsendur sem Albert Guðmundsson hæstv. fjmrh. og hv. 2. þm. Reykv. tóku hér fram er ljóst að hlutfallið hækkar. Greiðslubyrðin hækkar af þeirri ástæðu þó ekkert komi annað til en að átt hefur sér stað samdráttur í þjóðarframleiðslu eða verður milli áranna 1983 og 1984, þó að hann þurfi ekki endilega að verða eins gríðarlegur eins og Þjóðhagsstofnun spáir upp á tvo til þrjá milljarða kr.
Þetta er algjört grundvallaratriði, herra forseti, og ég mun láta reyna á það í fjh.- og viðskn. Nd. hvort varaformaður Sjálfstfl. er reiðubúinn til að lækka skattana í þessu frv. til samræmis við þá yfirlýsingu sem hann var að gefa hér áðan. Ég trúi ekki öðru en að hann sé tilbúinn til að standa við þá yfirlýsingu, en það getur þýtt lækkun í skatttekjum ríkissjóðs frá fjárlagafrv. úr 2 457 millj. kr. niður í einhverja lægri tölu sem ég skal ekki nefna á þessu stigi málsins.
Þetta er hlutur sem við munum láta reyna á í fjh.- og viðskn. Nd. Og við munum gera allt sem við getum til að hjálpa hv. 2. þm. Reykv. í þessu efni og ég heyrði að hann treysti mjög á mitt liðsinni í þessu efni og tekið skal fram að það verður veitt.
Auk þessa forðaðist hv: 2. þm. Reykv. að fjalla um það meginatriði að öll skattastefna ríkisstj. og þar með þetta frv. hér sem hér liggur fyrir byggist á því að sveitarfélögin taki stóraukið útsvar að raungildi til milli áranna 1983 og 1984. Það er veruleg aukning þar á. Þjóðhagsstofnun hefur sent frá sér plagg sem ég hef undir höndum og er dagsett 6. des. 1983. Þar kemur fram sem viðhorf Þjóðhagsstofnunar að ef fylgt væri stefnu ríkisstj., eins og það er kallað, ættu skattar til sveitarfélaganna á næsta ári að verða 2 940 millj., þ.e. ef fylgt væri þeirri stefnu að halda nokkurn veginn óbreyttri greiðslubyrði af tekjum á milli ára.
En ef fylgt er þeirri stefnu að nýta heimildir sveitarfélaganna til hins ýtrasta er þessi tala 3 760 millj., þ.e. munurinn er hvorki meira né minna en 800 millj. kr. Nú liggur fyrir að stærsta sveitarfélagið í landinu, Reykjavík,ætlar að ganga mjög langt í útsvarsinnheimtu á næsta ári þannig að í heild verður vafalaust um að ræða hækkun á beinum sköttum milli áranna 1983 og 1984. Það er engum blöðum um það að fletta og hafið yfir allan vafa að þeir sjálfstæðismenn og engir aðrir, Albert Guðmundsson, hæstv. fjmrh., og borgarstjórinn í Reykjavík eru meginforustumenn fyrir þessari skattahækkun þvert ofan í margítrekuð kosningaloforð fyrir síðustu kosningar.
Hv. 2. þm. Reykv. brá fyrir sig því máli sem stundum sést á íþróttasíðum og talaði um að hv. þm. Ragnar Arnalds væri Íslandsmeistari í skattheimtu. Þetta var oft notað um hv. þm. Ragnar Arnalds meðan hann gætti ríkissjóðs og gerði það vel og samviskusamlega og viðurkenna allir. En augljóst er að þessi titill er í verulegri hættu. Svo vill til að hæstv. núv. fjmrh. ætlar í þessari íþróttagrein að standa sig þannig að ekki er hægt að finna samjöfnuð í 10 ár. Íslandsmeistari í áratug í skattheimtu, hæstv. fjmrh. Albert Guðmundsson. (Gripið fram í: Met í fyrstu tilraun.) Met í fyrstu tilraun. Þannig liggur þetta fyrir.
Og af því að hv. þm. Guðmundur Einarsson var að tala áðan um þessa umr. sem prósentuþvarg og hv. þm. Friðrik Sophusson var að gera því skóna að ég væri í raun og veru í máli mínu að fara rangt með upplýsingar frá Þjóðhagsstofnun, þá neyðist ég til að vekja athygli á að eina leiðin til að tala um skattbreytingar í heild frá sjónarmiði ríkisins í heild og þjóðarbúsins.er að tala um þær í hlutfallstölum, rauntölum og hlutfallstölum. Og ef við tökum þá tölu sem hv. þm. Friðrik Sophusson vill taka, hann segir: Það á að taka álagða skatta, það á ekki að taka innheimta skatta. Það er rangt, segir hann, það á að taka álagða skatta. Og hann bætir við að það eigi að taka hugtak sem heitir álagðir skattar nettó sem þýðir álagðir skattar eftir persónuafslátt og barnabætur. Þegar þetta hefur verið gert og það tekið sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu er ljóst að á árinu 1983 eru álagðir skattar með þessum hætti 3.17% af vergri þjóðarframleiðslu. En á árinu 1984 skv. tölum ríkisstj. sjálfrar eru álagðir skattar sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu 3.28%. Munurinn á þessum tölum er ekki mörg prósentustig, en hann er margar milljónir og margir tugir milljóna vegna þess að við erum hér að tala um tölu sem er af stærðargráðunni 62–63 þús. millj. kr. Þannig að hér er vitanlega um að ræða mjög stóra tölu sem segir það sem segja þarf. Hlutfall hinna beinu skatta í vergri þjóðarframleiðslu eykst nokkuð. Og þá er ég bara að tala um skatta ríkisins, en ekki skatta sveitarfélaganna sem koma hér til viðbótar. Og þegar það er allt saman lagt saman er ljóst að skattaprósenta opinberra aðila á árinu 1984 stefnir í 14.4% skv. upplýsingum Þjóðhagsstofnunar. En sú tala hefur hæst komist áður á árinu 1979 í 13.1%. Þannig er alveg ljóst hvað hér er á ferðinni.
Í ræðu sinni áðan kom hv. 2. þm. Reykv. að því að óeðlilegt væri að miða við launaliðinn í fjárlagafrv. vegna þess að hann segði í raun og veru lítið af því að áður hefði verið dreginn frá sá niðurskurður á launum sem gert er ráð fyrir að fari fram upp á 2.5% milli áranna 1983 og 1984. Þetta er út af fyrir sig alveg rétt ábending frá hv. 2. þm. Reykv. En það sem ég var að vitna í var ekki þessi tala, því að hún segir bara til um áætluð launaútgjöld ríkissjóðs. Sú tala sem ég var að tala um var önnur sem getið er um á bls. 181 í grg. fjárlagafrv., en þar segir:
„Til samanburðar er vegin meðallaunahækkun milti áranna 1983 og 1984 metin 14.5–15%.“
Hér er ekki bara verið að tala um launalið ríkisins út af fyrir sig og hvernig hann þróast heldur vegna meðallaunahækkun. Og þess vegna er ekki að furða þó stjórnarandstaðan staldri við og segi: Það er óeðlilegt að gera ráð fyrir að skattar hækki um 20% en laun hækki á sama tíma um 14.5% og svo er skattahækkunin mæld á þann kvarða að launin hækki þrátt fyrir þetta um 20%. Hér er þess vegna að mínu mati um algjöra útúrsnúninga að ræða, og alveg ljóst að ríkisstj. er ekki að lækka skatta. Hún er að hækka skatta ef eitthvað er.
Það eru margs konar hlutföll sem menn geta virt fyrir sér í sambandi við skattamál og þjóðartekjur og þjóðarframleiðslu. Ég vil skýra frá því að ég hef undir höndum skýrslu sem mér barst frá Þjóðhagsstofnun í gær um hlutfall launa af þjóðartekjum, þ.e. hvað launin eru hátt hlutfall af þjóðartekjum. Hvað er það mikið sem menn fá í kaup og hvað er það mikið sem er svo borgað í annað? Og það er athyglisvert að virða þær tölur fyrir sér sem ég hef hér um hlut launa í vergri þjóðarframleiðslu frá 1970–1983. Þar kemur í ljós að þetta hlutfall hefur aldrei verið hærra en á árinu 1982, þ.e. kaupið sem hlutfall af heildarverðmætasköpun þjóðarinnar hefur aldrei verið hærra hlutfall en á árinu 1982. Næsthæsta talan á þessu árabili er frá árinu1981. Á því ári er hún 76.5% og á árinu 1982 78.7% sem launafólk í landinu hefur þegar upp er staðið og þjóðhagsdæmið er gert upp.
Í lok þessa árs er þessi hlutfallstala farin niður fyrir 70% og hefur þá ekki verið lægri á því árabili sem hér um ræðir, þ.e. frá því að launin séu í hæsta hlutfalli þjóðarframleiðslunnar 1982. Ekki er nóg með að þau séu lækkuð til samræmis við samdrátt þjóðarframleiðslunnar á árinu 1983 hjá núv. hæstv. ríkisstj. Það er gert meira. Gengið er lengra á launin en fall þjóðarframleiðslunnar segir til um. Skrúfað er harðar að launamönnunum í landinu en öðrum. Þetta þýðir ósköp einfaldlega að núv. hæstv. ríkisstj. flytur til fjármuni frá launasummunni, frá hinum vinnandi stéttum í þjóðfélaginu, yfir til annarra aðila í þjóðfélaginu, milliliða og slíkra sem hirða gjöld fyrir sinn snúð. Það er sem sagt ljóst að núv. ríkisstj. er að vinna það afrek að sökkva hlutfalli launanna niður á það stig sem það var á síðustu árum viðreisnarstjórnarinnar, landflótta- og atvinnuleysisárum viðreisnarstjórnarinnar. Það er afrek Framsfl. á síðustu mánuðum að kaupið er lægra hlutfall þjóðarframleiðslunnar nú en nokkru sinni síðan á viðreisnarárunum. Þeir eru ekki lengi að snúa ofan af framsóknaráratugnum, þessir piltar, þegar þeir leggja sig fram.
Herra forseti. Áðan talaði hv. 2. þm. Reykv. fyrir Sjálfstfl. Er hann í húsinu enn þá? Og væri hægt að fá hann? Ég ætla að hinkra ef hæstv. forseti vildi kanna þetta með hv. 2. þm. Reykv. Ég þarf að svara honum nokkrum orðum. (Forseti: Ég reikna með að hann sé hér í húsinu.) (Gripið fram í: Albert er nú hérna enn þá.) (Forseti: Hv. 2. þm. Reykv. er mættur.) Eitt af því sem hv. 2. þm. Reykv. hefur oft talað um undanfarnar vikur og m.a. í ræðu sinni hér áðan er að fráfarandi ríkisstj. hafi verið alveg sérstaklega iðin við að efna til stóraukins innflutnings. Hún hafi verið alveg sérstakur vinur heildsalanna, þessi ríkisstj., þeir hafi í rauninni aldrei fengið aðra eins stjórn. Og hv. 5. þm. Reykv. bætti um betur og endursagði ræðu frá fundum Verslunarráðsins 1979 þegar ég var viðskrh., en í þeirri ræðu hafði komið fram að einn af talsmönnum Verslunarráðsins taldi að það væri alveg óskastaða fyrir þá félaga að hafa Alþb. í viðskrn.
Það sem hv. þm. Friðrik Sophusson er að segja með þessu er auðvitað að kaupið hafi verið allt of hátt hjá fráfarandi hæstv. ríkisstj. Hann telur að kaupið hafi verið allt of hátt, kaupgetan allt of mikil og þess vegna hafi verið flutt of mikið inn. En hann segir meira með þessu. Hann er líka að segja og hefur aftur og aftur endurtekið það í þessum stól að gengið hafi verið kolvitlaust skráð. Það hafi verið útsala á genginu í tíð fráfarandi hæstv. ríkisstj. Hann taldi að þessi gengisstefna fráfarandi hæstv. ríkisstj. hefði verið vísvitandi ákveðin til að styrkja stöðu ríkissjóðs. Og í rauninni hefði verið eitt af markmiðum fráfarandi ríkisstj. að ákveða að skrá gengi krónunnar þannig að ríkissjóður kæmi sem best út. Þetta er vitlausasta hagfræðikenning sem heyrst hefur hér í þingsölum og er þá langt til jafnað, jafnvel frá talsmönnum sjálfstfl. (FrS: Þetta er ekki hagfræðikenning, þetta er staðreynd.) Nú heyrið þið, hann heldur að það sé staðreynd líka.
Nei, hv. þm., staðreyndin er nefnilega sú að auðvitað er gengisákvörðun tekin með tilliti til annarra aðstæðna og annars en þess að ríkissjóður komi sem best út á hverjum tíma. Auðvitað er ákvörðun um gengi á hverjum tíma tekin með tilliti til stöðu útflutningsatvinnuveganna í fyrsta lagi. Hún er tekin með tilliti til kostnaðarhreyfinga innanlands. Og hún er tekin með tilliti til erlendrar verðbólgu. Þetta er allt saman vegið saman og niðurstaðan verður gengisbreyting af einhverjum toga.
Einu sinni var fundin upp í Seðlabankanum, þegar þeir voru í góðu skapi þar, vísitala sem hefur ekki séð dagsins ljós í allmörg ár. Hún hélt „gengistilefnisvísitala“. Og um svipað leyti voru skrifaðar þar lærðar ritgerðir um „brattgöngujafnvægi gengisskráningarinnar“. Það hefur ekkert spurst til þess jafnvægis núna lengi vei. Hins vegar er til annar mælikvarði í þessu efni sem væri kannske fróðlegt fyrir hv. þm. Friðrik Sophusson að kynna sér. Það er mælikvarði um þróun raungengis íslensku krónunnar á undanförnum mánuðum. Hvernig hefur raungengi krónunnar þróast miðað við erlendar myntir? Og þar með segir sá mælikvarði til um hver er staða okkar iðnaðarframleiðslu, samkeppnisiðnaðar, gagnvart innflutningi.
Ef við setjum gengið 1982, þegar útsalan mikla var hjá okkur í ríkisstj. Gunnars Thoroddsens, sama sem 100, þá var þetta gengi í jan. s.l. 93.6, í febrúar 93.1, í mars 95.7, í apríl 96.9, í maí 91.4, í júní 87.8. En í júní hlýtur að hafa verið hér í landinu það sem kalla mætti kjörgengi núverandi ríkisstj. Búið var að fíra genginu niður þegar ríkisstj. var mynduð og þá hlýtur að hafa verið komið hið rétta og sanna gengi, kjörgengi ríkisstj. Þegar hins vegar líður á árið hækkar gengi krónunnar og í októbermánuði er svo komið að gengi íslensku krónunnar er orðið hærra en það var hjá hinni vondu síðustu ríkisstj. Það er orðið 100.3 miðað við 100 árið 1982. Og í nóv. er þetta gengi orðið 102.4 á móti 100 1982.
Þetta þýðir auðvitað að gengi íslensku krónunnar, raungengi íslensku krónunnar, hefur breyst. Við getum tekið þetta í öðrum tölum og sagt sem svo: Þessu gengi þyrfti að breyta um 15–17% frá deginum í dag til að ná því gengi krónunnar sem var 1. júní s.l. Samkvæmt röksemdafærslu hv. þm. Friðriks Sophussonar hlýtur að hafa verið ákveðið að hafa gengið svona hátt, 15– 17% hærra en í júní, til að bjarga fjárhag ríkissjóðs. Það hlýtur að hafa verið ákvörðun í ríkisstj. Steingríms Hermannssonar að bjarga fjárhag ríkissjóðs með þessum hætti ef kenningar eða staðreyndir hv. þm. Friðriks Sophussonar eiga við rök að styðjast.
Þessar töflur sýna hins vegar ekkert um að slík ákvörðun hafi verið tekin, að raungengi íslensku krónunnar hafi breyst á þessum tíma um 15–17%. Þessar tölur sýna ekkert annað en að efnahagsstefna Friðriks Sophussonar og Alberts Guðmundssonar er byggð á sandi. Og til að hv. þm. og hæstv. ráðh. haldi ekki að hér sé um að ræða einhverjar vondar uppfinningar frá mér er rétt að benda þeim á tímarit sem gefið er út í Reykjavík og heitir Vísbending, vikurit um erlend viðskipti og efnahagsmál dags. 30. nóv. 1983. Ég skora á hv. þm. og hæstv. ráðh. að kynna sér þetta rit.
Þar kemur fram í ítarlegri grein um gengi íslensku krónunnar að það er um þessar mundir verulegum breytingum undirorpið og fyrirsögn greinarinnar lýsir innihaldi hennar glöggt því þar segir: „Eru einhverjar breytingar á gengi í sjónmáli?“ Og hér er ekki aðeins um þetta hefti að ræða, sem ég bið hv. þm. Friðrik Sophusson að kynna sér, 30. nóv. 1983, heldur er hér líka um að ræða annað hefti, 16. nóv. 1983, þar sem einnig er fjallað um þessi mál þar sem í töflu á bls. 5 er birt yfirlit um gengi íslensku krónunnar og gengi helstu gjaldmiðla.
Það er mjög fróðlegt að sjá hvernig þeir sérfræðingar sem standa að útgáfu þessa tímarits gera grein fyrir þeirri þróun á gengi krónunnar sem hér er um að ræða. Og allar þeirra röksemdir benda alveg ótvírætt til að þeir telja að hér þurfi stefnan endurskoðunar við og auðvitað er niðurstaðan af öllu þessu sú að efnahagsstefna ríkisstj. er í þessu efni á sandi byggð, hún stenst ekki.
Fyrir nokkrum dögum var greint frá því, hæstv. fjmrh., að gengi Bandaríkjadollars hefði hækkað mjög verulega undanfarna daga. Og aftur og aftur var birt um þetta frétt í ríkisútvarpinu. Ég hef ekki orðið var við að menn hafi almennt hér á landi gert sér grein fyrir þeirri breytingu á raungengi krónunnar sem ég hef hér verið að ræða um, svo miklu máli sem hún skiptir fyrir allt efnahagslíf þjóðarinnar. Hitt verður hins vegar að vera jafnljóst í máli mínu nú og fyrr að hverri ríkisstj. er auðvitað skylt að halda sem fastast á skráningu gengisins á hverjum tíma, ég veit að það hlýtur að vera svo. Þess vegna er það barnaskapur, kunnáttuleysi, misskilningur eða eitthvað þaðan af verra þegar varaformaður stærsta stjórnmálaflokksins í landinu heldur að ríkisstj. ákveði gengið með hliðsjón af tekjum eða gjöldum ríkissjóðs. Þannig er það ekki, gengi íslensku krónunnar er þrátt fyrir allt, þó valt hafi verið um árabil, skráð með tilliti til margra annarra staðreynda.
Sú hv. þingnefnd sem fær skattamálin til meðferðar, fjh.- og viðskn. Nd., mun að sjálfsögðu og vonandi fá meiri gögn í málinu en þegar hafa komið þar fram. Ég vil aðeins endurtaka það sem ég sagði í upphafi ræðu minnar í tilefni af orðum hv. þm. Friðriks Sophussonar. Hann bauðst til að tryggja ásamt öðrum í n. að hlutfall beinna skatta hækkaði ekki milli áranna 1983 og 1984. Og ég var að benda á í upphafi ræðu minnar að samdráttur hefði orðið í þjóðarframleiðslu síðan þetta hlutfall sem hér stendur á blöðum Þjóðhagsstofnunar var fundið út. Þegar af þeirri ástæðu er ljóst að hlutfall ríkisskattanna er orðið nokkuð hærra en er á þessu blaði Þjóðhagsstofnunar. Ég skildi hv. 2. þm. Reykv. sem svo að hann væri tilbúinn til að færa þessa skattatölu niður til að tryggja að óyggjandi væri að greiðslubyrðin 1984 yrði sú sama og á árinu 1983 eða ekki hærri. Og ég endurtek fyrri yfirlýsingu mína í þessu efni, að ég skal leggja mig fram um að aðstoða hann við að tryggja að þessu markmiði verði náð.