07.12.1983
Neðri deild: 21. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1510 í B-deild Alþingistíðinda. (1330)
129. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Jón Baldvin Hannibalsson:
Herra forseti. Mér sýndist áðan í svip að hæstv. fjmrh. væri við það að sofna út frá þessum umr. og finnst þess vegna ómögulegt annað en að reyna að halda honum vakandi ögurstund með því að beina til hans fáeinum orðum. Mér þótti leiðinlegt að heyra það í útvarpsviðtali við hæstv. ráðh. að hann gerði því skóna að vinir hans og samstarfsmenn hér á þingi hafi þá áráttu þráfaldlega að vilja rífa niður frv. og till. ríkisstj., hversu jákvæðar og góðar sem þær væru og sérstaklega góðrar meiningar. Þetta er ákaflega óvenjulegur málflutningur frá hæstv. ráðh. því venjulega er hann ákaflega sanngjarn í sínum málflutningi og óspar á yfirlýsingar um að andstæðingar hans í pólitík séu bestu menn, jákvæðir og vilji vel. Enda er þetta mesti misskilningur. Það fer ekkert á milli mála að stjórnarandstæðingar hér eru fullir af góðum vilja við að hjálpa hæstv. fjmrh. að ná þeim yfirlýstu markmiðum sínum að halda skattbyrði á almenning í landinu í því fari að hún hækki ekki og lækki hjá þeim sem ekki geta risið undir meiri skattbyrði. Um það er enginn ágreiningur, það er enginn ágreiningur um þessi góðu áform.
Hitt er annað mál að menn greinir nokkuð á um hvort það frv. sem hér liggur fyrir sé nægilega vel smíðað tæki til að þessi sameiginlegu yfirlýstu markmið ráðh. og stjórnarandstöðu takist. En af því að hann er að gera stjórnarandstöðunni upp skoðanir og við erum að ræða um skattamál gerði ég það að gamni mínu og til að halda ráðh. vakandi að grípa með mér kosningastefnuyfirlýsingu Sjálfstfl. við alþingiskosningarnar 23. apríl 1983.
Í þessari ágætu kosningastefnuyfirlýsingu sem skilaði góðum árangri fyrir kosningar segir svo orðrétt í kaflanum um bætt lífskjör, og hlusti nú hæstv. fjmrh., ef vera kynni að hann væri farinn að gleyma yfirlýstum jákvæðum, markvissum loforðum og fyrirheitum sjálfstfl. í skattamálum. Ég les upp úr stefnuyfirlýsingunni, með leyfi hæstv. forseta:
„Um leið og meiri festa skapast í efnahagslífinu vill Sjálfstfl. beita sér fyrir eftirfarandi aðgerðum til að efla atvinnulífið og bæta lífskjörin.
1. Tekjuskattur á almennar launatekjur verði afnuminn
2. jafnframt því sem persónufrádráttur nýtist láglaunafólki að fullu.
3. Tekjum hjóna verði skipt á milli þeirra fyrir álagningu skatts.
4. Eignaskattur á íbúðir verði lækkaður.“
Þetta er, eins og ég sagði, sú kosningastefnuyfirlýsing sem Sjálfstfl. lagði fram í seinustu kosningum. Þetta er kjarni hennar. Þetta er það atriði, ásamt með loforðunum sem gefin voru í húsnæðismálum og fjáröflun húsnæðismálakerfisins sem til stóð að ræða hér í kvöld, sem færði Sjálfstfl. ekki lítilfjörlega fylgisaukningu í seinustu kosningum.
Nú þarf ekki um það að deila, herra forseti, að það skattafrv. núv. ríkisstj. sem hér liggur fyrir felur ekki í sér efndir á loforði númer eitt um að tekjuskattur og almennar launatekjur verði afnumin, sei, sei nei, fjarri því. Við deilum hins vegar um það út frá ákveðnum forsendum hvort loforðin hafi verið svikin svo herfilega að tekjuskattur á almennar launatekjur hafi e.t.v. verið hækkaður.
Loforð númer tvö um að persónufrádráttur nýtist láglaunafólki að fullu sem er mjög þýðingarmikið kosningaloforð hefur heldur ekki verið efnt og veldur því m.a. að ríkisstj. er, meðan hún heldur fast við það, ógerningur að koma því til skila að ríkisstjórnin geti komið þeim fjölskyldum sem nú búa undir hungurmörkum til hjálpar í raun og veru vegna þess að því nýtist þessi útborganlegi persónuafsláttur sem hér er lofað. Við það loforð hefur-því ekki verið staðið.
Það sérstaka kosningaloforð að tekjum hjóna verði skipt á milli þeirra fyrir álagningu skatts, sem mér er mætavel kunnugt um af mörgum fundum hér í Reykjavík að frambjóðendur flokksins lögðu mikla áherslu á, hefur heldur ekki verið efnt.
Segja má að skattprósentan að því er varðar eignarskatt á íbúðir hafi verið lækkuð, að vísu óverulega. Og það er þá eina atriðið þar sem raunverulega hefur verið borið við að standa við kosningaloforðin í fyrsta sinn sem fjmrh. leggur fram áþreifanlegar till. í skattamálum.
Nú vitum við mætavel hverjar eru skýringar hæstv. fjmrh. og ríkisstj. á því hver vegna ekki stendur til að standa við loforðin. Það kom fram í máli hv. 2. þm. Reykv.: Það var því miður ekkert svigrúm til þess, svo grátt sem ríkissjóður hafði verið leikinn í tíð fyrrv. ríkisstj. Látum það nú vera. Það er hins vegar ekki við því að búast að allur almenningur í höfuðborginni taki því sem frambærilegri skýringu þegar hún er fram borin af hæstv. fjmrh., margyfirlýstum guðföður og siðferðilegum ábyrgðarmanni fyrrv. ríkisstj., manninum sem skrifaði bréfið sem var þess valdandi að sú ríkisstj. var mynduð og bar síðan ábyrgð á henni allt fram undir það að það snaraðist svo um á merinni að hann flúði af hólmi. En látum þetta vera. Það er nauðsynlegt og óhjákvæmilegt að minna á loforðin. Og það er óumdeilt að í þessum málum stendur ekkert til að standa við þau loforð.
Þá skulum við víkja að þeim deilum sem hér hafa orðið um það hvort skattbyrðin sé líkleg til að verða meiri eða minni að meðaltali á næsta ári samkv. forsendum þessa frv. Þá deila menn um forsendurnar. Menn segja sem svo: Ef forsendan um 20% launahækkun milli ára stenst eru dæmin sem tekin hafa verið um aukna skattbyrði vafasamari. En hver er þá skýringin á því að þær upplýsingar sem gefnar eru í athugasemdum fjárlagafrv. um launahækkun milli ára, að því er varðar opinbera starfsmenn, 14,5%, eru aðrar en hinar almennu forsendur á vinnumarkaðinum yfirleitt? Á því eru gefnar tvær skýringar: Í fyrsta lagi sú að yfirlýst stefna ríkisstj. er að halda launakostnaði á vegum hins opinbera u.þ.b. 2.5% lægri með sérstökum aðgerðum. Skýring númer tvö er sú að á hinum almenna vinnumarkaði gerðu höfundar fjárlagafrv. almennt ráð fyrir að vegna launaskriðs, þ.e.a.s. hvers kyns greiðslna umfram umsamda taxta, annaðhvort í formi yfirborgana eða annarra álaga, að þær forsendur giltu ekki um opinbera starfsmenn. Ef þetta eru réttar skýringar blasir alla vega við ein staðreynd sem menn þurfa ekki frekar að deila um. Hún er sú, að að því er varðar opinbera starfsmenn, sem reyndar eru u.þ.b. þriðjungur launþega í landinu, er það óumdeilanlegt að skattbyrði þeirra samkv. gefnum forsendum mun hækka. Hv. þm. Guðmundur Einarsson minntist á skattsvik í ræðu sinni áðan. BSRB hefur oftar en einu sinni lagt fram tölur um að hlutur opinberra starfsmanna í skattheimtu ríkissjóðs, þ.e. hlutdeild þeirra í beinum sköttum ríkissjóðs, sé talsvert miklum mun hærri en nemur hlutfalli þeirra meðal fjölda launþega, þ.e. þessi 30% opinberu starfsmenn greiða til mikilla muna hærri hlut af tekjum ríkissjóðs af beinum sköttum. Þannig að hér erum við við sama heygarðshornið. Mér sýnist alveg óumdeilanlegt að samkvæmt þessum gefnu forsendum, sem ríkisstj. og fulltrúar hennar hafa engan veg andmælt í umr. hingað til, sé það gefið og þarf ekki að deila um það frekar að að því er varðar þriðjung launþega í landinu þýði þetta frv. verulega hækkun skattbyrði á næsta ári.
Þá er spurningin um forsendu númer tvö: Vegna þess að málflutningur stjórnarliða byggir á því, að þessi forsenda sé sérstök, hún eigi bara við opinbera starfsmenn. En að því er varðaði vinnumarkaðinn í heild sé launahækkun milli ára 20%. Hversu áreiðanleg er þessi forsenda, hversu líkleg er hún til að standast í reynd? Ég leyfi mér að leiða fram til vitnis um það hæstv. iðnrh. Sverri Hermannsson sem hefur tekið af öll tvímæli um það í opinberri ræðu sem fréttir hafa verið fluttar af í blöðum að þessar forsendur séu gjörsamlega foknar út í buskann og séu helberar fjarstæður. Og hafði um það stór orð þegar einhver launþegi á þessum fundi í Borgarnesi álpaðist til að spyrja ráðh. um launahækkunarforsendur og fékk svarið: Hvar hefur þú haldið þig, maður minn? Hefur þú ekki fylgst með því að búið er að leggja fram svarta skýrslu? Hefur þú ekki tekið eftir því að við höfum orðið fyrir svo hrikalegum áföllum eins og hæstv. iðnrh. gjarnan tekur til orða, að nú þarf að skera allt inn að beini þannig að hrikti í hverju tré? Það verður ekkert svigrúm fyrir launahækkanir á næsta ári, punktur og basta. Og þetta sagði hann við mikinn fögnuð fundarmanna uppi í Borgarnesi ef fréttir herma rétt.
Hvað eru menn þá að tala um eitthvert skattafrv. sem miðar við að launahækkanir almennt séð á vinnumarkaði verði 20% hærri en í opinbera geiranum. Telja menn nú líkleg ef menn bera saman opinbera geirann og almenna vinnumarkaðinn að áhrifin af aflabresti og aflatakmörkunum verði þau að það auki vinnumagn, unnar vinnustundir á vinnumarkaði á Íslandi? Telja menn að það verði til að auka launaskrið eða greiðslur umfram umsaminn taxta? Þvert á móti. Auðvitað vita menn að fyrstu afleiðingarnar verða þær að það dregur úr vinnu jafnvel svo fyrirsjáanlega að um staðbundið atvinnuleysi verði að ræða. Það dregur úr vinnu, það verður ekkert um neitt launaskrið eða umframborganir að ræða einmitt miðað við þær kringumstæður sem hér er verið að lýsa.
Mér sýnist þannig alveg augljóst mál og þarf ekkert að hafa um það fleiri orð að forsendan um 20% hækkun milli ára er, eins og hæstv. iðnrh. hefur tekið fram og aðrir ráðh. ríkisstj. reyndar segja hverjum sem heyra vill í einkasamtölum, að sjálfsögðu fokin út í buskann.
Þá er það forsenda númer þrjú, vegna þess að við erum ekki bara að tala hér um tekjuskatta ríkisins. Við erum að tala um heildarskattbyrði af tekjusköttum í heild til hins opinbera, þ.e. við erum að tala um allt sem heitir bein skattheimta. Og það er ekki aðeins tekjuskattur. Það er líka sá viðaukatekjuskattur sem heitir eignarskattur. Það eru líka útsvör til sveitarfélaga og það eru fleiri gjöld: það eru kirkjugarðsgjöld, það eru sjúkratryggingagjöld og það eru fasteignaskattar, sem miðast þá við sömu forsendur og eru raunverulega beinir skattar. Hvað er um þessi gjöld að segja? Nú liggur fyrir yfirlýst að borgarstjórnarmeirihluti sjálfstfl. í Reykjavík hefur tekið um það ákvörðun hver skuli vera útsvarsprósentan og útsvarálagningin á næsta ári. Hún á að vera 11%. Og þó að það mál sé ekki leitt til niðurstöðu í borgarstjórn Reykjavíkur nú þegar þarf enginn að efast um að ákvörðunin hefur verið tekin og niðurstaðan liggur fyrir. Hvað ætli þessi 11% útsvarshækkun þýði að því er varðar skattbyrði vegna útsvara? Hún þýðir auðvitað verulega skattahækkun. Rétt er að leiða til vitnis um það einn af sérfræðingum Þjóðhagsstofnunar sem í viðtali við dagblaðið Tímann sagði orðrétt, með leyfi forseta:
„Með því að lækka útsvar Reykvíkinga úr 11.8% í 11 % þá er um liðlega 40% hækkun á útsvari milli ára að ræða,“ — 40% hækkun að ræða.
En við erum hins vegar að tala um tekjuhækkun milli ára sem að því er varðar opinbera geirann er innan við 15% og svo hugsanlega að því er varðar vinnumarkaðinn í heild, 20%, sem hins vegar enginn trúir. Hér er hins vegar lagt til að útsvarshækkunin í Reykjavík samkv. þessari ákvörðun borgarstjórnar Reykjavíkur nemi um 40%. Jafnframt segir umræddur sérfræðingur Þjóðhagsstofnunar: Útsvar sveitarfélaga þyrfti að lækka um sem nemur 3% til að skattbyrði á milli ára yrði óbreytt eða lækka alveg niður undir 9%.“ M.ö.o. ef Reykjavíkurborg ætlaði að koma í veg fyrir að útsvarsálagningin leiði til aukinnar skattbyrði launþega, því allir, líka þeir lægst launuðu, borga vissulega útsvör, þyrfti hún að lækka útsvarsálagninguna enn um 220 millj. til viðbótar þeim 100 sem felst í lækkuninni frá 11.88% í 11%.
Herra forseti. Allar þær deilur sem hér hafa staðið í allan dag hafa snúist um það hversu haldbærar þær forsendur væru sem lægju til grundvallar þessum áætlunum um skattbyrði, óbreytta skattbyrði eða aukna skattbyrði. Mér sýnist alveg augljóst mál af fram komnum vitnaleiðslum að skattbyrði opinberra starfsmanna muni aukast verulega, einfaldlega vegna þess að tekjubreytingar þeirra milli ára eru lægri en hér er gert ráð fyrir. Í öðru lagi liggur alveg ljóst fyrir að útsvarsálagningin leiðir til mjög aukinnar skattbyrði. Líta verður svo á að þegar meiri hluti Sjálfstfl. í Reykjavík hefur tekið þessa ákvörðun sé það pólitísk ákvörðun sem gildir fyrir Sjálfstfl. um land allt og í þeim sveitarstjórnum þar sem sjálfstæðismenn eru ráðandi verði þessari forustu meirihlutans í Reykjavík fylgt.
Í þriðja lagi kemur það síðan til að sá maður fyrirfinnst væntanlega ekki hér innan veggja og varla nokkurs staðar þar sem menn koma saman í alvöru og ræða breyttar forsendur atvinnulífs á Íslandi að þeir séu trúaðir á að forsendurnar um 20% launahækkun milli ára standist. Það liggur við að ég segi að þessu loknu að eiginlega sé lítið eftir af frv. annað en umbúðirnar og nafn flutningsmannsins. (Gripið fram í: Það er nokkuð.) Það er nokkuð, já, þegar fjmrh. tekur upp pennann og framkvæmir sín pennastrik. En nú held ég að hann ætti nefnilega að gera eitt pennastrik og ég held að það sé alveg bráðnauðsynlegt.
Fyrir liggja yfirlýsingar frá hv. 2. þm. Reykv. Friðrik Sophussyni. Hann lýsir því yfir að ef fram á það verður sýnt í umfjöllun í þinginu að forsendur frv. standist ekki muni hann fyrir sitt leyti beita sér fyrir því að frv. taki nauðsynlegum breytingum í meðförum þingsins. Það er góðra gjalda vert og sannar það, ef við það verður staðið, að menn eru auðvitað reiðubúnir til að skoða eftir hvaða leiðum á að ná settum markmiðum. Ef þessar leiðir eru ófærar verður að breyta aðferðunum. En það verður að gera meira. Ég verð að fara þess á leit við hæstv. fjmrh. og fyrrum forseta borgarstjórnar Reykjavíkur að hann fylgi nú eftir stefnu sinni, að gera allt sem í hans valdi stendur til að koma í veg fyrir að skattbyrðin aukist milli ára, og taki flokksbróður sinn og samstarfsmann, borgarstjórann í Reykjavík, til bæna og komi því til skila til hans að hann fyrir sitt leyti geri það sem flokkur hans lofaði fyrir kosningar, að tryggja a.m.k. að skattbyrðin á Reykvíkingum verði ekki aukin með hækkun útsvarsálagningar vegna þess að það liggur líka fyrir að aðrir tekjustofnar Reykjavíkurborgar eiga að vera óbreyttir. Ef borgarstjórinn í Reykjavík vill ekki láta sér segjast við að hæstv. fjmrh. geri honum tiltal held ég að óhjákvæmilegt sé að hæstv. fjmrh. taki í taumana og beiti áhrifum sínum hér á Alþingi til að breyta með lagasetningu þeim hámarksákvæðum um álagningu útsvara sem tryggi að tilgangurinn náist.