07.12.1983
Neðri deild: 21. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1519 í B-deild Alþingistíðinda. (1332)

129. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Hæstv. fjmrh. er nú aðeins tekinn að vitkast í þessari umr. Hann hafði vit á því að reyna ekki að hrekja eitt einasta af þeim tölulegu dæmum sem ýmsir þm. stjórnarandstöðuflokkanna fluttu hér inn í umr. Ég vek athygli hv. deildar á því að fjmrh. treysti sér ekki til að mótmæla með talnarökum einu einasta af þeim dæmum um íþyngingu skatta sem ég flutti hér, sem hv. þm. Svavar Gestsson flutti hér, sem hv. þm. Kjartan Jóhannsson flutti hér, sem hv. þm. Jón Baldvin Hannibalsson flutti hér — ekkert einasta af þeim tölulegu atriðum, sem hér voru flutt fram skýr og glögg og afdráttarlaus af hv. þm. stjórnarandstöðunnar, treysti hæstv. fjmrh. sér til að hrekja, heldur hélt hann sér við almennt snakk meginhluta ræðu sinnar, sem hvergi tók á talnalegum efnisþáttum þessa máls.

Hæstv. fjmrh. sagði að ég og fleiri hefðum hér í umr. byggt okkar tölur á forsendum sem við gæfum okkur sjálfir. Þetta er alrangt, hæstv. fjmrh. Öll mín dæmi voru byggð á forsendum frá hæstv. fjmrh. sjálfum. Það þýðir ekkert að hrista hausinn yfir því. Það er staðreynd. Þau voru byggð á forsendum frá hæstv. fjmrh. sjálfum.

Ég byggði hér nokkur dæmi á launabreytingaforsendu fjárlagafrv. Svo kemur hæstv. fjmrh. hér og segir: Ja, þær forsendur eru brostnar. Það er komin svört skýrsla. — Óskaplega var hann þá atvarlegur og þungbúinn og landsföðurlegur. — Það er komin svört skýrsla. Það er alveg rétt. En hvað gerir hæstv. fjmrh. sjálfur nokkrum vikum eftir að „svarta skýrslan“ hefur verið lög fram? Jú, hann leggur fram skattafrv. með hærri tekjuforsendum milli ára en í fjárlagafrv. eru. Er það ályktunin sem þingheimur og þjóðin eiga að draga af „svörtu skýrslunni“, hæstv. fjmrh., að tekjurnar muni aukast? Það er ályktunin sem hæstv. fjmrh. hefur dregið sjálfur af þessu öllu saman. Hann leggur nú fram frv. þar sem tekjubreytingin er orðin 20% í staðinn fyrir 14%, sem hún var í fjárlagafrv. Hann hefur hækkað tekjurnar milli ára.

Hvað er hér eiginlega á ferðinni? Má kannske vænta þess að þegar hæstv. fjmrh. leggur fram lánsfjáráætlun verði hann kominn með tekjubreytingu á milli ára upp í 25–30%, þrátt fyrir allar „svartar skýrslur“? Nei, hæstv. fjmrh., ég ætla að vona að ráðh. fari sjálfur að botna aðeins meira í samhenginu í efnahagsmálum þjóðarinnar, því að ef það væri rétt, sem hann sagði hér, að það ætti að taka tillit til nýrra upplýsinga í efnahagslífi þjóðarinnar, þá hefði hæstv. ráðh. átt að leggja fram skattafrv. með lægri breytingu á tekjum milli ára en þeirri sem var í fjárlagafrv., en ekki u.þ.b. 50% hærri tekjuáætlun.

Þess vegna er það alveg ljóst, sem hér hefur komið fram hvað eftir annað, að ætti að taka mið af ýmsum þeim upplýsingum sem ýmsir hv. aðstandendur þessarar ríkisstj. vilja láta taka mið af ætti að reikna með enn minni tekjubreytingu milli ára en 14%, sem ég vék hér að, og kannske fara niður í þá viðmiðun, sem hæstv. iðnrh. hefur hvað eftir annað verið að syngja yfir þjóðinni síðustu daga, að það eigi bara að miða við tekjubreytinguna núll. Hvers vegna lætur ekki hæstv. fjmrh. reikna út þetta skattafrv. á forsendum iðnrh.? Og hvernig væri það að varaformaður Sjálfstfl. beitti sér fyrir því að frv. væri reiknað út á grundvelli þeirra ýmsu forsenda sem hinir einstöku ráðh. sjálfstfl. eru með í gangi um þessar mundir, bæði núllforsendum iðnrh. og ýmsum fleiri forsendum sem forustumenn flokksins hafa lagt fram?

Auðvitað er það staðreynd, eins og hér hefur glögglega komið fram í þessum umr., að Sjálfstfl. treystir sér ekki til að verja þetta frv. efnislega. Þess vegna er rétt sem ég sagði hér fyrr í dag, sem hv. þm. Friðrik Sophusson varaformaður Sjálfstfl. dró í efa að væri rétt, að það er enn þá til það mikið vit í þingflokki Sjálfstfl. að allir utan hv. þm. Friðrik Sophusson hafa vit á því að halda sér fyrir utan þessar umr., halda sér fyrir utan og hætta sér ekki út á þann hála ís að fara að reyna að verja að þetta sé skattalækkunarfrv. (Gripið fram í: Okkur er þá ekki alls varnað.) Nei, það er alveg rétt. Það var einmitt það sem ég sagði í dag. Það var greinilegt að hv. Friðrik Sophusson þm. lifði í þeirri trú að það mundu fleiri feta í hans fótspor, en það gerðist ekki. Meira að segja formaður Sjálfstfl. sat þegjandi úti í sal. Og þögn hans sagði mikið. Jafnvel hann treysti sér ekki til að koma hér upp og verja þetta frv. — að ógleymdum hv. þm. Gunnari Schram sem lofaði því í síðustu þingkosningum að afnema tekjuskattinn eins og hann legði sig og var nærri því búinn að steypa Matthíasi Mathiesen úr efsta sæti á lista Sjálfstfl. í Reykjanesi út á það loforð, munaði bara 200 atkv. Það var nú stuðningurinn sem það loforð fékk í Reykjaneskjördæmi um að afnema tekjuskattinn. Og ég skil ósköp vel að hv. þm. Gunnar Schram sitji hér og þegi þegar hans hlutverk verður innan nokkurra vikna að rétta upp hönd með því hér á Alþingi að hækka skattbyrðina á því fólki í Reykjaneskjördæmi sem kaus hann í svo miklum mæli að það var nærri því búið að steypa Matthíasi Á. Mathiesen úr efsta sæti listans.

Hv. þm. Albert Guðmundsson á auðvitað sem hæstv. fjmrh. eftir að átta sig á því að Reykvíkingar munu kalla hann til ábyrgðar fyrir að hafa svikið þau loforð sem hann gaf, og ég ætla aðeins að koma að því hér á eftir. í þeim kosningum sem háðar voru hér í Reykjavík og hæstv. fjmrh. fjallaði nokkuð um hér í stað þess að reyna að afsanna þær tölur og upplýsingar sem við lögðum fram. En við skulum skoða aðeins þetta skattafrv. í ljósi þeirra forsendna sem hæstv. fjmrh. og þessi eini hugdjarfi þm. sjálfstfl. og stjórnarliðsins, hv. þm. Friðrik Sophusson, hafa treyst sér til að verja hér í þingsölum. Við skulum skoða 20% forsenduna sem þeir eru svo ákafir í að sé raunhæf.

Alþýðusamband Íslands sendi frá sér í dag upplýsingar. Ég vænti þess að þeir félagar sem nú sitja hér hlið við hlið, hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson og hv. þm. Pétur Sigurðsson, taki enn þá mark á Alþýðusambandi Íslands. Og ég ætla að vona að hv. þm. Þorsteinn Pálsson taki líka mark á Alþýðusambandi Íslands í þessum efnum.a. m. k. tekur Björn Þórhallsson miðstjórnarmaður í Sjálfstfl. og varaforseti Alþýðusambands Íslands mark á Alþýðusambandi Íslands. Og hvað segir Alþýðusamband Íslands um þetta frv.? Hvað segir hagdeild Alþýðusambandsins um þetta frv.? Hagdeild Alþýðusambandsins hefur ekki þurft marga daga eins og BJ til að átta sig á þessu frv. Alþýðusamband Íslands gat einfaldlega lesið það sem í frv. var og þurfti ekki að bera það fyrir sig, hvorki í Ríkisútvarpi né hér í þingsalnum, að menn hefðu ekki haft tíma til að skoða það sem liggur alveg augljóslega fyrir. Og Alþýðusambandið leyfir sér að miða við þá 20% forsendu sem fjmrh. vill endilega halda að þjóðinni.

Alþýðusambandið tekur þrjú dæmi af venjulegu launafólki. Fyrst af einstaklingi með 250 þús. kr. tekjur á árinu 1983. Það eru ekkert sérstaklega háar tekjur í þessu landi. Samkvæmt útreikningum Alþýðusambands Íslands er skattbyrði þessa einstaklings á árinu 1984, miðað við 20% forsenduna eins og talsmenn Sjálfstfl. eru alltaf að halda að okkur hér í umr., 18.5%, en var á árinu 1983 16.18%. Og eins og hv. þm. Kjartan Jóhannsson hefur rækilega bent mönnum á í umr.: Þótt þau 2% sem þarna skilja á milli kunni að virka lítil við fyrstu sýn, þegar þau eru færð yfir í raunveruleikann og tekjuöflun manna, þá er hér í raun og veru um mjög mikla þyngingu að ræða — þyngingu sem getur numið milli 10 og 20% aukningu skattbyrði hjá þessu fólki. Þetta er miðað við tölurnar sem hæstv. fjmrh. segir að eigi að miða við.

Við getum tekið dæmi af einstæðu foreldri með barn yngra en 7 ára, vegna þess að búið er að halda að mönnum hér í umr. að þetta frv. geri eitthvað sérstaklega vel við barnafólk. Og hver er niðurstaðan af þessum útreikningum, líka miðað við 20%, sem hæstv. fjmrh. vill miða hér við? Niðurstaðan er líka aukning á skattbyrðinni, 8.5% 1983, 9.81% 1984.

Og við skulum taka þriðja dæmið og halda okkur enn við þessi 20%, forsendurnar sem okkur er sagt að séu hinar réttu, og taka hjón með tvö börn, annað yngra en 7 ára. Ég minni aftur á að okkur er sagt að þetta frv. geri sérstaklega vel við barnafólk. Hver er niðurstaðan? Skattbyrði þessa fólks var 1983 13.1%, en verður 1984 14.87%.

Það liggur þess vegna alveg ljóst fyrir, að þótt menn taki þær forsendur sem hæstv. fjmrh. og hv. þm. Friðrik Sophusson í barnaskap sínum hafa haldið að sönnuðu að hér væri um minnkandi skattbyrði að ræða sýna þær þvert á móti að hér er um verulega aukningu á skattbyrði venjulegs launafólks að ræða. Hefði ekki verið miklu heiðarlegra hjá þessum hæstv. ráðh. og hjá þessum hv. þm. að koma einfaldlega hér og segja að þeir hefðu ekki treyst sér til að leggja fram skattalækkunarfrv.? Það er hverfandi minni hluti þjóðarinnar sem þetta frv. hefur í för með sér einhverja lækkun hjá. Það hefði verið miklu heiðarlegra, miklu eðlilegra. En í staðinn er settur á svið hér mikill áróðursleikur til að telja fólki trú um það að hér séu á ferðinni efndir á kosningaloforðum sjálfstfl. um skattalækkun.

Það var að vísu eitt sem var athyglisvert í ræðu hv. þm. Friðriks Sophussonar. — Þó ég skilji ósköp vel að hæstv. fjmrh. og hv. þm. Friðrik Sophussyni líði hálfilla við að sjá þessi dæmi rakin svona ofan í sig, þá fyndist mér skemmtilegra að þeir væru hérna í þingsalnum. (Fjmrh.: Ég er hérna). Það er gott. (Gripið fram í.) Hæstv. fjmrh. ætti greinilega að notfæra sér betur þá sérfræðinga sem sitja þarna við hliðina á honum áður en hann tekur næstu lotu við að reyna að verja þetta frv.

En það var sérstaklega hv. þm. Friðrik Sophusson sem ég ætlaði að gera hér að umtalsefni, vegna þess að það var eitt mjög skemmtilegt við ræðu hans þegar hann var að reyna að sanna að þetta væri minnkandi skattbyrði. Það var það að hann gleymdi garminum honum Davíð. Hann gleymdi stjórn Sjálfstfl. á Reykjavíkurborg. Hann tók enga ábyrgð á stjórn Sjálfstfl. á höfuðborginni. Hann sagði í raun og veru: Vík frá mér Davíð, því einungis á þann hátt get ég hér með reikningskúnstum í ræðustól fengið úf smávegis lækkun á þeim sköttum sem eru færðir á reikning ríkisins í skattgreiðslum einstaklinga. — En um leið ætti hann að taka tillit til skattanna sem hver og einn verður að borga til Gjaldheimtunnar og þess sem Davíð leggur á, stjarna Sjálfstfl. í höfuðborginni, foringi Sjálfstfl., hugsanlegur formaður Sjálfstfl. í framtíðinni, sem væntanlega er líka að framkvæma stefnu Sjálfstfl. í Reykjavíkurborg. Væntanlega ætlar hv. þm. Friðrik Sophusson ekki að halda því fram hér að Davíð Oddsson sé ekki að framkvæma stefnu Sjálfstfl. í Reykjavíkurborg. Það væri a.m.k. ærið fróðlegt ef sú yfirlýsing kæmi hér fram. En ef sá anginn af stefnu sjálfstfl. yrði tekinn með í dæmið veit hv. þm. Friðrik Sophusson að niðurstaðan er nákvæmlega sú sem ég hef hér verið að rekja. Ef lögð er saman fjármálastjórn Sjálfstfl. á ríkinu annars vegar og fjármálastjórn Sjálfstfl. á borginni hins vegar er niðurstaðan auðvitað stórfelld þynging skatta. Hvort tveggja er væntanlega stefna Sjálfstfl. Og ég spyr formann Sjálfstfl.: Er ekki svo? Er ekki verið að framkvæma stefnu Sjálfstfl. í Reykjavík? Ég spyr: Er ekki verið að framkvæma stefnu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík? Já eða nei. Það dugir ekki þögn við því. Já eða nei. Þorir formaður sjálfstfl. ekki að svara því hér hvort það sé verið að framkvæma stefnu Sjálfstfl. í Reykjavík? Stefna Sjálfstfl. í Reykjavík er greinilega orðin eitthvert feimnismál. Kannske að fyrrv. forseti borgarstjórnar þori að svara því hér: Er verið að framkvæma stefnu Sjálfstfl. í Reykjavík? (Fjmrh.: Ekki á þeim forsendum sem þú gefur þér hér og nú.) Ég er ekkert að spyrja um mínar forsendur. Ég er bara að spyrja: Er Davíð Oddsson að framkvæma stefnu sjálfstfl. í Reykjavík? Já eða nei. (Fjmrh.: Að sjálfsögðu.) Að sjálfsögðu, auðvitað. Hér kemur maður sem þorir, Þorsteinn Pálsson. Hér kemur maður sem þorir að svara, en situr ekki þegjandi úti í sal, eins og núverandi formaður Sjálfstfl., og þorir ekki að segja orð þegar spurt er um stefnu Sjálfstfl. (PS: Þingsköp segja að það tali einn í einu.) Ég gaf hv. þm. Þorsteini Pálssyni tækifæri. (PS: Það er forsetinn sem á að gera það, ekki þú.) Það er nú eitthvað nýtt ef hv. þm. Pétur Sigurðsson er að spyrja forseta um það hvort hann megi segja hér einhver orð við aðra menn í ræðustól. En það eru kannske einhver sérstök þingsköp sem gilda um þennan nýja formann Sjálfstfl.

Þar með hefur það verið viðurkennt hér af hæstv. fjmrh. að það er verið að framkvæma stefnu sjálfstfl. í Reykjavík. Auðvitað. Nema hvað. Bæði er verið að framkvæma stefnu Sjálfstfl. hjá ríkinu og stefnu Sjálfstfl. hjá borginni. Niðurstaðan er sú, að árið 1984 munu Reykvíkingar borga hærri skatta en þeir hafa gert í áraraðir. Um það verður ekki deilt. Það stendur hér eins og stafur á bók og frá þeirri staðreynd getur Sjálfstfl. ekki hlaupið. Það sýnir kannske að formaður Sjálfstfl., hinn nýi, er nokkur vitmaður að hann skuli bara þegja í þeirri umr. Hann veit að því færri orð sem sögð eru um þessa framkvæmd, því betra. (PP: Það ættu fleiri að taka sér það til fyrirmyndar.) Ég get vel skilið að hv. þm. Páll Pétursson óski eftir því að það sé ekki sagt mikið um þessa umr., enda hefur það greinilega komið fram að Framsfl. hefur ekki sagt orð í þessari umr. Og það hefur vakið athygli að helsti skattasérfræðingur Framsfl., núv. hæstv. sjútvrh. Halldór Ásgrímsson, sem almennt var nú talinn hér mestur vitmaður um skattamál í þinginu á undanförnum árum, hefur ekki sagt orð í þessari umr. (Sjútvrh.: Ég hef ekki komist að.) Jú, jú, það er alveg hægt að komast að og umr. er ekki búin enn, hæstv. sjútvrh. Það væri kannske fróðlegt að fá hæstv. sjútvrh. hér upp á eftir og fá álit hans á því hvort hann ætlar líka að koma hér og rökstyðja að þetta sé lækkun á sköttum. Það væri skemmtilegt að sjá hæstv. sjútvrh. Halldór Ásgrímsson fara í gegnum þá fingraleikfimi hér að reyna að sýna fram á að í þessu fælist raunlækkun á sköttum íbúa þessa lands. En auðvitað gerir hann það ekki. Auðvitað veit hæstv. sjútvrh. að svo er ekki, enda hefur það aldrei verið á stefnuskrá Framsfl. að lækka skatta með þessum hætti. Að því leyti er Framsfl. miklu heiðarlegri í sinni afstöðu til þessa frv. en Sjálfstfl. (Sjútvrh.: Ég hef alltaf viljað hækka skatta.) Já, einmitt, alltaf viljað hækka skatta sagði hæstv. sjútvrh. Honum hefur með þessu frv. orðið að ósk sinni. Alltaf hef ég viljað hækka skatta, sagði hæstv. sjútvrh. Það er eins og ég hef löngum sagt, að það dettur upp úr Framsfl. hér í þingsalnum við og við sannleikurinn um þessa stjórnarstefnu, bæði í sjávarútvegsmálunum og nú í skattamálunum. Það væri gaman að heyra hvað hæstv. fjmrh. hefði um þessa nýjustu yfirlýsingu hæstv. sjútvrh. að segja. Þessi skattaumræða verður skemmtilegri því fleiri ráðh. sem blanda sér í hana. Þess vegna var e.t.v. viturlegast hjá hæstv. sjútvrh. að ganga úr þingsalnum að þessum orðum sögðum, því hann þarf í raun og veru ekki að segja meira. (Sjútvrh.: Ég heyri í þér.)

Það liggur fyrir í þeim gögnum sem hagdeild Alþýðusambands Íslands hefur lagt fram, að sé miðað við algenga tekjuhópa launafólks í þessu landi og sé jafnvel gengið út frá þeirri vitlausu 20% forsendu í tekjubreytingu sem fjmrh. hefur gefið sér, þá er hér um skattíþyngingu að ræða. En sé miðað við raunhæfari tekjuforsendur er skattíþyngingin að sama skapi meiri. U.þ.b. helmingur af hjónum í þessu landi hefur í kringum 500 þúsund og þar yfir. Þá er raunhækkun skatta samkvæmt þessari framkvæmd á stefnu Sjálfstfl. hér á Alþingi og í borgarstjórn Reykjavíkur tæplega 20%. Raunþynging á skattgreiðslum launafólks í Reykjavík, helmings hjóna í Reykjavík, er tæplega 20%. Það er ekkert smáræði. Raunskattabyrðin hækkar á þessu fyrsta ári sem Sjálfstfl. fer með stjórn Reykjavíkurborgar og ríkisins um fimmtung.

Hv. þm. Friðrik Sophusson var að reyna að draga úr þessari staðreynd með því að gera því skóna að 500 þúsund væru ærið miklar tekjur hjá hjónum og þess vegna væri skrítið að menn væru að nota þessa viðmiðun. En ég spyr hv. alþm.: Finnst mönnum það svo há tala þegar þessi upphæð er í raun og veru ósköp svipuð og þm. fá einir fyrir vinnu sína hér? Finnst mönnum það sérstaklega háar tekjur, eins og hv. þm. Friðrik Sophusson var að gefa hér til kynna, að tvær manneskjur, karl og kona sem vinna árið um kring frá átta á morgnanna og fram undir kvöld, skili samtals tekjum sem eru álíka og þm. fær hér einn? Ef svo er eru a.m.k. eitthvað sérkennilegar yfirlýsingar margra kollega minna hér á þingi um að þingmannslaunin séu nú ekkert sérstaklega há. En þetta er viðmiðunin: Tvær manneskjur standa að baki þessari tekjuöflun sem þm. einn skilar til sinnar fjölskyldu. Og hv. þm. Friðrik Sophusson var að gera því skóna í svarræðu sinni að það væri svo há tala að það þýddi nú ekkert að miða við það. Það er um helmingur af hjónum í landinu fyrir ofan þetta mark og raunþynging skatta hjá þeim er fimmtungur eða meira þegar Sjálfstfl. fer að framkvæma sína stefnu. Og verði tekjuþróunin í landinu sú sem iðnrh. hefur verið að gefa til kynna, sem fjmrh. hefur lýst yfir og fulltrúar hans á samningafundi við BSRB og sem formaður Sjálfstfl. gaf til kynna þegar hann birtist með Steingrími, verður þetta auðvitað enn meira. Það skyldi þess vegna enginn verða undrandi á því að þegar þetta frv. kemur til framkvæmda yrði raunþynging skattabyrðarinnar kannske fjórðungur á einu ári hjá u.þ.b. helmingi af vinnandi fólki í þessu landi.

Þess vegna er það skiljanlegt að hv. þm. Friðrik Sophusson skuli hér í kvöld segja: Þessu verður breytt. Það er fyrsta yfirlýsingin um flóttann hér. Fyrsta kvöldið sem frv. er rætt á Alþingi kemur varaformaður Sjálfstfl. hér upp og segir: Þessu verður breytt. Það er nú öll sannfæringin á bak við þetta frv. Hann gekk þá út frá 20% forsendunni frægu. Ef rauntekjurnar yrðu minni að hækkun milli áranna en 20% yrði þessu breytt. Og hæstv. fjmrh., þó að hann væri ekki eins yfirlýsingaglaður og varaformaður Sjálfstfl., tók undir þessa yfirlýsingu. (Gripið fram í.) Forsenda frv., segir hæstv. fjmrh. Gott og vel. Við skulum taka þau orð gild, en við skulum hins vegar vona að það verði betri efndir á þeirri yfirlýsingu en kosningaloforðunum sem þeir sessunautarnir núna, hv. þm. Gunnar Schram og hæstv. fjmrh. Albert Guðmundsson, gáfu kjósendum sínum í Reykjavík og Reykjaneskjördæmi fyrir síðustu kosningar. Annar lofaði að afnema tekjuskattinn algerlega. (Fjmrh.: Báðir.) Nú lofaði hæstv. fjmrh. að afnema alveg tekjuskattinn? Það er aldeilis. Þetta eru enn meiri svik en ég hélt þó. Ég hélt að hæstv. fjmrh. hefði bara lofað að lækka hann allverulega og afnema hann kannske á nokkurra ára bili. En ef hann hefur gefið virkilega sömu yfirlýsingu og hv. þm. Gunnar Schram, að afnema bara allt heila gillið, þá er vissulega rétt að hafa það í huga þegar þetta frv. er hér tekið til umr. (GGS: Þetta var í áföngum, Ólafur minn, og þetta var af almennum launatekjum.) Nú, var það í áföngum og af almennum launatekjum? Og áfangarnir voru kannske þannig að fyrst átti að hækka skattinn og svo átti að lækka hann eftir nokkur ár eða hvað? Og áfangarnir fyrst upp á við og svo niður á við eða hvernig áttu áfangarnir að vera, hv. þm. Gunnar Schram? Átti fyrsti áfanginn ekki að vera niður á við? Já eða nei. Átti fyrsti áfanginn ekki að vera niður á við? (GGS: Ég er ekki í neinni yfirheyrslu hjá þér.) Ja, það er alveg greinilegt, því þm. fór að svara hér, svo að það er eins gott að hann svari þá öllum spurningunum. En auðvitað þorir hann ekki að svara því að fyrsti áfanginn hafi átt að vera niður á við, vegna þess að hann veit að um leið væri hann búinn að gefa til kynna að hér væri um afgerandi svik að ræða. (Fjmrh.: Hvar er hann Guðmundur?) Hv. þm. og hæstv. fjmrh. Albert Guðmundsson spyr hvar hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson sé. Hann er á góðum stað og hann kemur. (Gripið fram í: Er hann í Ameríku.) Já, hann er í Ameríku, en hann kemur innan tíðar. Ég þekki hann það vel og við þekkjum hann báðir það vel að hann mun heilsa ærlega upp á hæstv. fjmrh. þegar hann sér hvers konar skattafrv. hæstv. fjmrh. hefur lagt hér fram gagnvart launafólkinu í Reykjavík, þegar hann sér að fyrsta verk hæstv. fjmrh. í fjmrn. hefur verið að hækka skattana á Dagsbrúnarmönnunum, þegar verið er að leggja meiri skattbyrði á verkakonurnar í Framsókn og láglaunafólkið í Verkamannasambandi Íslands sem hér er á höfuðborgarsvæðinu. Hæstv. fjmrh. þarf ekki að kvíða því að það verði ekki heilsað upp á hann úr þeirri áttinni þegar hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson verður kominn hingað til landsins.

En það er eitt afar athyglisvert við þessa umr. og það er þögn hæstv. fjmrh. og þögn hv. þm. Friðriks Sophussonar um eitt atriði í þessu frv. Það er eitt atriði í þessu frv. sem þeir hafa ekki minnst á. (Gripið fram í.) Það var rétt, hæstv. fjmrh., ekki minnst á. Það er hin mikla skattalækkun hjá fyrirtækjunum í landinu, sem þetta frv. hefur í för með sér. Það er vissulega um skattalækkun að ræða í þessu frv., en hún er ekki hjá fólkinu í landinu, hún er hjá fyrirtækjunum í landinu. (Sjútvrh.: Það er nú rangt.) Nú segir loksins hæstv. sjútvrh.: Það er rangt. Það er þá væntanlega á hinni forsendunni, eins og kom fram áðan í hans framíkalli, að allt hitt væri rétt sem hefði verið sagt úr ræðustólnum hér og nú. (Sjútvrh.: Langt í frá.) Ég er að vísu ekki með frv. hér fyrir framan mig, en mig minnir þó að samkv. þessu frv. sé tekjuskattur fyrirtækja lækkaður úr 65% í 51%. Er það ekki rétt, hæstv. sjútvrh.? (Sjútvrh.: Jú, jú.) Já, það er rétt. (Sjútvrh.: En það er ekki lækkun.) Nú, breyting úr 65% niður í 51% er ekki lækkun, segir hæstv. sjútvrh. Þetta er kannske einhver ný fiskihagfræði sem hæstv. ráðh. hefur tekið að beita eftir að hann settist í ráðherrastól. Samkvæmt öllum skilningi okkar hinna er breyting úr 65% í 51% lækkun. (Gripið fram í: Það var verðbólga, Ólafur minn.) Verðbólga einu sinni. Ætli hún verði ekki áfram? Er þá ekki hægt að lækka skattana hjá launafólkinu líka að sama skapi? (Fjmrh.: Það er gert.) Það er ekki gert.Það er nefnilega ekki gert, hæstv. fjmrh., eins og hér hefur verið rakið með fjölmörgum dæmum úr dæmasafni ríkisskattstjóra, úr dæmasafni Alþýðusambands Íslands og úr þeim dæmum sem einstakir þm. hafa hér lagt fram. Við skulum sjá til, þegar skattreikningar fyrirtækjanna koma fram, hvort þetta ákvæði muni ekki í reynd leiða til lækkunar á sköttum fyrirtækjanna.

Herra forseti. Eitt af þeim meginatriðum sem hæstv. fjmrh. flutti sér til varnar hér í ræðustólnum var að þeir sem hefðu fallið í kosningum í Reykjavík ættu ekki mikið að sýna sig á dekki hér á Alþingi. Hæstv. fjmrh. gerði sér sérstakt far um að svara mínum rökum með því að ég hefði fallið í Reykjavík, kjósendur, Reykvíkingar, hefðu hafnað mér, eins og hæstv. ráðh. orðaði það, og ég ætti nú ekki mikið að vera að ybba gogg efnislega þess vegna. Mikið til í þessu, segir hæstv. fjmrh. hér í hliðarsal. En hvað hefur hæstv. fjmrh. sjálfur gert? Hvern studdi hann til að hafa forustu fyrir stjórnarmyndunum Sjálfstfl.? Mann sem Reykvíkingar höfðu hafnað á sama hátt og þeir höfðu þá hafnað mér samkvæmt skilgreiningu hæstv. fjmrh. Hverjum greiddi hæstv. fjmrh. atkv. í ráðherrasveit Sjálfstfl.? Manni sem Reykvíkingar höfðu hafnað. Hvern samþykkti hæstv. fjmrh. að gera að utanrrh.? Mann sem Reykvíkingar höfðu hafnað. Hver er munurinn, hæstv. fjmrh., á mér annars vegar og Geir Hallgrímssyni hins vegar ef við erum báðir í þeim flokki sem Reykvíkingar hafa hafnað? En það er réttlætanlegt að annar sé forustumaður fyrir stjórnarmyndun, ráðh. fyrir Sjálfstfl. og utanrrh. Íslands, en við hinir megum ekki einu sinni ræða hér lítið skattamál á Alþingi Íslendinga. (Fjmrh.: Mikill munur.) Hver er munurinn? (Fjmrh.: Hann er sá, að sjálfstfl. vildi Geir, en Alþb. vildi þig ekki.) Sjálfstfl. vildi Geir. En að þú, hæstv. fjmrh. Albert Guðmundsson, færir að halda því fram. Þessi orð verða nú að fá að lifa á spjöldum sögunnar. Sjálfstfl. vildi Geir, jahá. Það er nú ekki hægt að segja miklu meira eftir þessa yfirlýsingu. En það væri hins vegar gaman að sýna hæstv. fjmrh. ýmsar yfirlýsingar sem Albert Guðmundsson hefur gefið út hér á árum áður um það efni. Og hver var það reyndar sem fyrstur bauð sig fram gegn Geir Hallgrímssyni? (Fjmrh.: Albert Guðmundsson.) Albert Guðmundsson, það er rétt, núv. hæstv. fjmrh. Nei, ég held að svona málflutningur eigi lítið erindi inn í þessar umr. og það sé rétt fyrir hæstv. fjmrh. að hætta sér ekki út á þennan hála ís. Það er náttúrlega ekkert mál eins viðkvæmt fyrir Sjálfstfl. hér á Alþingi og þetta fall hæstv. utanrrh. Geirs Hallgrímssonar.

Í lok ræðu sinnar sagði hæstv. fjmrh. orðrétt: „Getur vel verið að á árinu 1984 taki lengri tíma að vinna fyrir sköttum.“ Hæstv. fjmrh. er þó ekki eftir allt alls varnað. Hann viðurkenndi í lok ræðu sinnar, í svari sem hann var að gefa hv. þm. Kjartani Jóhannssyni, að það gæti vel verið að það mundi taka fólk lengri tíma að vinna fyrir sköttunum sínum 1984 en 1983. Nú er bara spurningin hvort hæstv. fjmrh. skilur að þetta er nákvæmlega það sama og við hinir höfum verið að segja hér í umr. í allt kvöld, nema við höfum bara bent með talnalegum rökum á að þetta mundi verða. Það sem við hinir köllum skattbyrði og hæstv. fjmrh. hefur verið að neita hér er einfaldlega það, að það tekur fólk lengri tíma að vinna fyrir sköttunum sínum. Það getur vel verið að þegar hann orðar það á svona einfaldan hátt, vinnutími til að afla tekna fyrir sköttum, skilji hæstv. fjmrh. loksins að þetta sé meiri skattbyrði. Ég beini því til sérfræðinga fjmrn., sem hér sitja í hliðarsölum, að fara að orða innihald skattabreytinganna á þennan einfalda hátt svo að hæstv. ráðh. taki að skilja hvað í þessu felst. En það er einmitt kjarni málsins. Það mun taka fólk lengri tíma á árinu 1984 en 1983 að vinna fyrir sköttum.

Herra forseti. Það er alveg sama hvernig á þetta frv. er litið, hvort sem miðað er við 20% forsenduna sem í frv. er eða hvort miðað er við 14% forsenduna, sem í fjárlagafrv. er, hvað þá heldur ef miðað er við lægri tekjubreytingu sem hæstv. iðnrh. telur að sé raunhæf alls staðar í öllum tilvikum, ef horft er á tekjur venjulegs launafólks í þessu landi þýðir þetta frv. skattahækkun.

Hæstv. fjmrh. hefur óskað eftir því að þetta mál fái meðferð fjh.- og viðskn. Alþingis. Það er sjálfsagt að taka undir það. Hitt held ég að væri rétt, að hv. fjh.- og viðskn. þessarar deildar léti hæstv. fjmrh. fylgjast nokkuð rækilega með því hverju nefndin kemst að í athugun sinni á þessu máli, svo að hæstv. ráðh. verði ekki lengi sá eini hér í þingsalnum sem reiðubúinn er að halda því fram að þetta frv. feli í sér minni skattbyrði fyrir þorra launafólks í þessu landi.

Staðreyndin er sú, að í fyrsta skattafrv. ríkisstjórnar Alberts Guðmundssonar, Geirs Hallgrímssonar og annarra þm. og forustumanna Sjálfstfl. eru lagðir á þjóðina meiri skattar en hún bar á árinu á undan. Það er skýrari dómur en nokkuð annað um það, hvernig þessir herramenn efna loforð sín. Þeir sögðu fyrir kosningar: Frjálsir samningar eiga að gilda á vinnumarkaðinum. Þeir sviku það. Það var frumloforð Sjálfstfl. í síðustu kosningum, að frjálsir samningar eiga að gilda á vinnumarkaðinum. Það var fyrsta kosningaloforðið sem þeir sviku eftir kosningar með svo afgerandi hætti að í Vestur-Evrópu hefur ekki verið ríkisstjórn í áratugi sem hefur jafngrimmilega fjötrað samninga á vinnumarkaði og þessi ríkisstj. Hitt meginloforðið var lækkun skatta og afnám tekjuskatts. Og þegar þeir leggja fram sitt fyrsta frv. um skattaefni er þetta loforð einnig svikið. Það, hæstv. fjmrh., munu Reykvíkingar örugglega muna næst þegar hæstv. fjmrh. og félagar hans í Sjálfstfl. eiga erindi við Reykvíkinga.