07.12.1983
Neðri deild: 21. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1532 í B-deild Alþingistíðinda. (1338)

26. mál, fjármálaráðstafanir til verndar lífskjörum

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Það væri vissulega ómaksins vert að reyna að koma hæstv. fjmrh. í skilning um það sem hann virðist ekki hafa uppgötvað enn, hvernig það megi vera að 150 millj. samkv. ákvæðum þessara brbl. frá 27. maí hafa glutrast niður án þess að koma þeim til góða sem þeim voru ætlaðar. Hæstv. ráðh. virðist ekki hafa áttað sig á þeirri einföldu staðreynd að það er tiltölulega auðvelt að taka burt með hækkunum það sem reynt er að koma til skila í þessu tilviki með niðurgreiðslu ef hækkanirnar nema meira en sem svarar því sem látið er á móti og ætlað var til lækkunar. Lækkunin á húshitunarkostnaði hefur ekki komið fram, heldur hefur orðið 17.4% hækkun á töxtum þrátt fyrir að varið hafi verið umtalsverðum upphæðum til niðurgreiðslna. Svo einfalt er það, hæstv. ráðh., og ég held að það hefði verið ómaksins vert fyrir hæstv. ráðh. að glíma við það verkefni að setja reglur um ráðstöfun þessa fjár eins og lögin kveða á um. Þá hefði honum e.t.v. auðnast að skilja samhengið í þessu máli, samhengi sem er nöturlegur veruleiki fyrir það fólk sem býr við hæstan hitunarkostnað í landinu. U.þ.b. þriðjungur þjóðarinnar ber þar margfaldar byrðar á við það sem hinir, um 60% landsmanna, bera, sem búa við mun lægri og flestir sem betur fer við bærilegan hitunarkostnað miðað við aðstæður hérlendis.

Hæstv. ráðh. vill afsaka þessi Kleppsvinnubrögð hæstv. ríkisstj. — því annað nafn er ekki hægt að gefa vinnubrögðum og lagasetningu af þessu tagi — með því að fráfarandi ríkisstj. hafði ekki ætlað nema 35 millj. kr. samkv. fjárlögum til niðurgreiðslna á raforku. Ég kannast vel við þá tölu. Hún er inni í fjárlagafrv. og var ljóst og tekið fram við undirbúning og afgreiðslu fjárlaga að þar væri um ónóga upphæð að ræða til að halda því niðurgreiðslustigi sem ráðgert var út árið. Hins vegar var gert ráð fyrir að þessi upphæð nægði sem næmi hálfu árinu miðað við að ekki yrðu óhóflegar hækkanir á gjaldskrám. En á þessum tíma, þ.e. um síðustu áramót, var enn að starfi nefnd skipuð fulltrúum allra þáverandi þingflokka á Alþingi sem vann að því í umboði iðnrn. að gera tillögur um tekjuöflun til að jafna og lækka húshitunarkostnað í landinu. Af hálfu þingflokks Sjálfstfl. vann í þeirri nefnd hv. þm. Þorvaldur Garðar Kristjánsson. Þessi nefnd skilaði áliti um tekjuöflun til viðbótar þeim 35 millj. sem í fjárlögunum eru þann 28. jan. s.l. og var sammála um tillögur um tekjuöflun. Megintillaga nefndarinnar var að alla áherslu bæri að leggja á hækkun á raforkuverði til stóriðjufyrirtækja í landinu og nýta það fjármagn sem þannig fengist til að lækka húshitunarkostnaðinn. Það lá fyrir að með því að ná framleiðslukostnaðarverði af stóriðjufyrirtækjunum þannig að ekki þyrfti að greiða niður orkuna til þeirra mætti lækka húshitunarkostnaðinn hjá þeim sem hæstan kostnað bera um hvorki meira né minna en 60%. En ef þetta ekki næðist fram með skjótum hætti gerði nefndin tillögur um þrjá aðra möguleika til tekjuöflunar. Ég ætla hér ekki að fara að taka tíma manna til að fara að gera grein fyrir áliti nefndarinnar. Það hefur komið fram, því var dreift hér á hv. Alþingi og það hefur verið prentað sem fskj., m.a. við 104. mál í Sþ., till. til þál. um lækkun og jöfnun húshitunarkostnaðar og átak í orkusparnaði. Þar er nál. að finna.

Ég lagði þetta álit þegar fyrir ríkisstj. og óskaði eftir afstöðu. Ljóst var að Alþb. studdi heils hugar megintillögu nefndarinnar um að ná þyrfti fram stórhækkun á raforkuverði til Íslenska álfélagsins h/f. Framsfl. fékk till. nefndarinnar til umsagnar sem stjórnaraðili og hafði átt sinn fulltrúa í þessari nefnd, Guðmund Bjarnason hv. þm. En svo fór að Framsfl. gerði svofellda samþykkt í málinu 15. febr. s.l., með leyfi hæstv. forseta:

„Þar sem ekki hefur enn tekist að ná fram hækkun á orkuverði til stóriðju sem nýta mætti til niðurgreiðslu á rafmagni til húshitunar samþykkir þingflokkur Framsfl. að ríkissjóður greiði niður til bráðabirgða verð á rafmagni til húshitunar af orkujöfnunargjaldi skv. l. nr. 12/1980 í samræmi við yfirlýsingu ríkisstj. frá 5. maí 1982.“

Þetta var nú afstaða Framsfl. um miðjan febr. s.l., en þá var hann hálfur kominn í tilhugalíf á bak við tjöldin við þáverandi stjórnarandstöðu, Sjálfstfl., eins og skýrt kom fram á þeim vikum sem þessir aðilar náðu saman í álmálinu og stóðu að sameiginlegri tillögugerð gegn mér og mínum flokki í því máli. Ollu hraklegri málafylgja hefur nú tæpast sést frá stjórnaraðila eins og þessi samþykkt þingflokks Framsfl. frá 15. febr. s.l. þar sem tekið er undið áróðursplötu stjórnarandstöðunnar sem hátt glumdi á þeim tíma um svokallað orkujöfnunargjald sem nýta ætti til jöfnunar húshitunarkostnaðar. Þar var um að ræða hækkun á söluskatti sem lögum samkvæmt skyldi renna í ríkissjóð, 11/2%, sem samþykkt var í marsmánuði eða aprílmánuði 1980 og bar heitið „orkujöfnunargjald“ og var að hluta til ráðstafað til hækkunar á olíustyrkjum eins og gert hafði verið ráð fyrir, svo og til annarra orkumála.

En Framsfl. taldi sér á þessum tíma sæma að taka undir þennan málflutning stjórnarandstöðunnar og nú sýpur hann seyðið af því, má segja. Með þeirri framkvæmd á lækkun húshitunarkostnaðar sem skv. orðanna hljóðan er í því frv. sem hér er til umr. var gerð till. sem ekki hefur náð fram að ganga, heldur hefur orðið hið versta öfugmæli.

Þetta er nú sagan um tekjuöflunina á yfirstandandi ári til að standa undir nauðsynlegri jöfnun og lækkun húshitunarkostnaðar í landinu. Framsfl. hefur fengið það sem verkefni með Sjálfstfl. að standa undir þessu og það hefur tekist svona til að í stað lækkunar hefur orðið um stórfellda hækkun að ræða á orkukostnaði heimilanna. Og ég heyri á hæstv. fjmrh. að menn geta átt von á frekari glaðningi á þorranum í þessum efnum. Hæstv. ráðh. gerir sér að vísu von um að þegar álagningin verði orðin frjáls, ef ég hef heyrt rétt til hans, muni fyrirtækin nota það frelsi hófsamlega og vissulega er ástæða til að vona að svo verði. En enga tryggingu höfum við fyrir því og reynslan af verðlagningu Landsvirkjunar á almenningsveitur í landinu þann tíma sem Landsvirkjun hafði þetta frelsi til að setja gjaldskrár frá ársbyrjun 1981 til 14. apríl 1983 vekur ekki mjög bjartar vonir um að hún nýti það frelsi sem henni er ætlað, ef ég skil hæstv. ráðh. rétt, frá 1. febr. n.k., með þeim hætti sem ástæða væri til að vona, beiti því hófsamlega og auki ekki álögur á almenning í landinu varðandi raforkukostnað frá því sem nú er. Því að það er í aðra átt sem þörf er að stefna.

Herra forseti, ég sé ekki ástæðu til að lengja þessa umr., en ég taldi nauðsynlegt að vekja athygli á því í hvert óefni stefnir og hvílíkt öfugmæli þessi lagasetning er varðandi húshitunarkostnaðinn. Og í rauninni blikna þau áform um hækkaða skatta á komandi ári sem hér hafa verið til umr. í dag hjá þeim byrðum sem því fólki er ætlað að axla vegna húshitunarkostnaðar víða um landið þar sem hann er hæstur fyrir og bætist þar við margháttaðar álögur og ójöfnuð sem þetta fólk býr við, fólk sem vinnur flest hörðum höndum við frumframleiðslu í landinu.