08.12.1983
Sameinað þing: 30. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1545 í B-deild Alþingistíðinda. (1356)

372. mál, bráðabirgðasamningur milli Íslands og SwissAluminium

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Hv. 3. þm. Reykv. lét að því liggja að það hefði verið vafasöm ákvörðun að taka þetta mál á dagskrá á þessum fundi. Ég vil af því tilefni taka fram að síðast þegar þetta mál var á dagskrá kom ósk um það frá hæstv. iðnrh. að fresta því. Það er góð þingvenja að verða við ósk þeirra sem eru í forsvari fyrir málum. Því var það gert.

Þá var gert ráð fyrir því að frh. umr. yrði á þessu ári, en það er hver síðastur með að svo geti orðið. Það hefðu verið óeðlileg vinnubrögð að hafa framhald umr. á árinu 1984. Það er hins vegar rétt, sem kom fram hjá hv. 3. þm. Reykv., að nú er tíminn dýrmætur hjá okkur hér á Alþingi, en forseti á það undir hverjum þm. fyrir sig hvað hann telur hæfilegt að halda lengi áfram umr. um þetta dagskrármál á kostnað þess að öðrum verði vikið til hliðar.