08.12.1983
Neðri deild: 22. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1581 í B-deild Alþingistíðinda. (1371)

123. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Ég vil byrja á að lýsa furðu minni á því hvað fáir hv. þm. sjá ástæðu til að sitja undir þeirri umr. sem hér fer fram um húsnæðismálin. Þessi mál hafa verið mikið til umfjöllunar í þjóðfélaginu undanfarna mánuði og er það að vonum vegna þess að það ríkir hreinlega neyðarástand hjá mörgum húsbyggjendum. Í upphafi, þegar hæstv. félmrh. gerði grein fyrir þessu frv., sátu hér einungis tveir, þrír og fjórir þm. í salnum og er alveg ótrúlegt að svo skuli vera þegar svo mikilvægt mál er hér á dagskrá. Ég er viss um að margir húsbyggjendur og íbúðarkaupendur bíða eftir úrslitum þessara mála hér á Alþingi. Ég vil því leyfa mér, herra forseti, að gagnrýna hvað fáir þm. sjá ástæðu til að sitja undir þessari umr.

Núna nokkrum dögum fyrir þinghlé er þm. ætlað að fjalla um og afgreiða þetta viðamikla frv. um Húsnæðisstofnun ríkisins. Fyrir aðeins þrem dögum var þessu frv. dreift á borð alþm. og í fyrradag fá þm. fyrst upplýsingar um að ætlun ríkisstj. sé að afgreiða þetta mál fyrir jólahlé þm. Þessum vinnubrögðum hljóta þm. að mótmæta. Hæstv. félmrh. hefur haft þetta frv. í smíðum frá því í sumar og gefið yfirlýsingar um að þetta yrði eitt af fyrstu málum sem lagt yrði fram á þingi. Svo er það fyrst nú, þegar tveir mánuðir eru liðnir af þingtímanum og nokkrir dagar eftir af starfstíma þingsins fyrir jól, að þm. er ætlað að afgreiða þetta mál ásamt ýmsum fleiri mikilvægum málum sem enn bíða afgreiðslu. Þetta eru auðvitað ótæk vinnubrögð og vanvirða við þingið og það mál sem hér er til umfjöllunar, enda eru störf Alþingis alltaf að færast meira og meira í það horf að vera afgreiðslustörf fyrir framkvæmdavaldið, ýmist í því formi að staðfesta brbl. framkvæmdavaldsins eða keyrðir eru í gegn, oft á síðustu dögum fyrir jólahlé eða þingslit, stórir lagabálkar sem þm., þó þeir séu allir af vilja gerðir, geta ekki kynnt sér á sómasamlegan eða viðunandi hátt eða að málin fái þá umfjöllun og meðferð á Alþingi sem þau þó þyrftu. Ég vænti þess að forseti þessarar deildar og forsetar þingsins sjái til þess að betra skipulag komist á þessi mál hér í þinginu í framtíðinni og að þm. fái eðlilegan tíma til að fjalla um þau mál sem frá ríkisstj. koma.

Við það mál sem hér er til umfjöllunar höfðum við, ég og minn flokkur, bundið þær vonir að það yrði lagt fram í upphafi þings svo hægt yrði að afgreiða það með eðlilegum hætti frá Alþingi fyrir áramót, en ég fæ ekki séð hvernig það á að takast. Þingflokki Alþfl. hefur, eins og gefur auga leið, ekki gefist nema lítill tími til að fjalla um frv. eða taka afstöðu til einstakra efnisatriða eða greina í því. Því mun ég ekki við 1. umr. um þetta mál ræða sérstaklega einstakar greinar nema að litlu leyti. Ég fæ þó ekki betur séð, herra forseti, á þeim stutta tíma sem ég hef haft til þess að líta á þetta frv. en að fjárhagsgrundvöllur frv. sé mjög ótraustur og það standi í raun á brauðfótum hvað fjármögnun og fjárhagsgrunn þess varðar.

Á fjárlögum er gert ráð fyrir 400 millj. kr. til byggingarsjóðanna, en samkv. því sem fram hefur komið er gert ráð fyrir að heildarframlagið til sjóðanna verði um 1500–1600 millj. á næsta ári, sem þýðir að um 11–12 hundruð milljóna á að afla með lánsfé. Hugmyndin er, eftir því sem ég kemst næst, að skipta þessum 1500–1600 millj. þannig, að Byggingarsjóður ríkisins fái liðlega 1160 millj., en Byggingarsjóður verkamanna um 400 millj. Það er alveg ljóst að með þessu framlagi til Byggingarsjóðs verkmanna eða um 400 millj. samtals á fjárlögum og lánsfjáráætlun mun byggingarsjóðurinn einungis geta staðið við þegar gerðar skuldbindingar. Byggingarsjóður verkamanna mun með þessu framlagi einungis geta staðið við þegar gerðar skuldbindingar, en ekki verður neitt hægt að sinna umsóknum sem bárust fyrir 1. ágúst 1983, sem eru 530 talsins. Ég vil spyrja hæstv. ráðh. að því, hvort rétt sé að einungis 400 millj. séu samtals ætlaðar í Byggingarsjóð verkamanna og með því framlagi geti byggingarsjóðurinn einungis staðið við þegar gerða samninga, en allar umsóknir sem bárust fyrir 1. ágúst s.l. eða um 530 talsins fái enga fyrirgreiðslu á næsta ári. Það er mikilvægt að þessu sé svarað þegar við þessa umr., þannig að þeir sem nú hafa gert sér miklar vonir vegna fyrirheita ríkisstj. og telja víst að þeir fái fyrirgreiðslu á næsta ári hjá Byggingarsjóði verkamanna séu ekki að velkjast í neinum vafa um að hér séu tálvonir einar á ferðinni. Samkvæmt áætlun Húsnæðisstofnunarinnar þarf a. m. k. 700–800 millj. til að sinna viðbótarumsóknum hjá Byggingarsjóði verkamanna. Hér er því gat upp á 400 millj. í Byggingarsjóði verkamanna einum saman.

Ég vil einnig í þessu sambandi spyrja hæstv. félmrh. að því, hvar hann ætlar að taka fjármagn til að standa við loforð sín um fjármögnun til húsnæðissamvinnufélaga sem nýlega eru stofnuð. Ég vil, með leyfi forseta, vitna í Dagblaðið 5. desember, en þar er viðtal við Jón Rúnar Sveinsson, formann nýstofnaðs húsnæðissamvinnufélags, og hann segir eftirfarandi:

„Við hittum félmrh. í síðustu viku, og hann sagði frá því að gert væri ráð fyrir að okkur gefist kostur á lánum til 80% af verði staðalíbúðar til 30 ára í endurskoðun húsnæðismálalöggjafarinnar, sem nú er verið að leggja fram á Alþingi.“

Enn fremur er haft eftir Jóni Rúnari Sveinssyni, með leyfi forseta: „Jón sagði að þetta væru nánast sömu kjör og fengjust við byggingar verkamannabústaða, nema þar væru lánin til 43 ára. Hann sagði að peningarnir til hins nýja húsnæðissamvinnufélags kæmu frá fjárveitingu til verkamannabústaða.“

Ég les orðrétt það sem haft er eftir Jóni Rúnari Sveinssyni í Dagblaðinu og ég hef ekki séð þessu mótmælt. Hvar ætlar hæstv. ráðh. að taka þessa peninga? Það er auðvitað mikilvægt að fá það upplýst hér og nú einnig, þannig að allur sá fjöldi manna sem binda miklar vonir við hin nýstofnuðu húsnæðissamvinnufélög fari ekki í neinar grafgötur með hvar þeir standa og hvort vænta megi þess að framkvæmdir húsnæðissamvinnufélaganna geti hafist að fullu á næsta ári, vegna þess að, eins og ég hef hér lýst, þessar 400 millj. til Byggingarsjóðs verkamanna munu einungis nægja til að standa við þegar gerðar skuldbindingar.

Ég vil líka lýsa miklum efasemdum um að sú lánsfjáröflun sem fyrirhuguð er standist og tel að hér sé í raun aðeins um loftkastala að ræða. Hugmyndin er að afla 1050 millj., eftir því sem ég kemst næst, með lántökum til byggingarsjóðanna, þar af 690 millj. hjá lífeyrissjóðunum og 200 millj. með útgáfu skuldabréfa ríkissjóðs, 45 millj. með skyldusparnaði og 115 millj. hjá atvinnuleysistryggingasjóði. Ég held, hæstv. ráðh., að allar þessar tölur séu út í loftið, séu lítt raunhæfar og hafi í raun litla stoð í veruleikanum eins og þær eru fram settar hér.

Hæstv. ráðh. upplýsti hér áðan að lífeyrissjóðirnir hefðu fallist á að veita 40% af sínu ráðstöfunarfé til skuldabréfakaupa byggingarsjóðanna. Þetta eru auðvitað ánægjuleg tíðindi, en við skulum aðeins líta t.d. á skuldabréfakaup lífeyrissjóðanna og hvernig staðan er á þessu ári.

Á yfirstandandi ári var í lánsfjáráætlun gert ráð fyrir tekjuöflun til Byggingarsjóðs ríkisins upp á 321 millj. kr. hjá lífeyrissjóðunum. Frá janúar til októberloka höfðu lífeyrissjóðirnir keypt skuldabréf fyrir 207 millj. eða 64.5% af þeirri upphæð. Á sama tímabili, jan.-okt., höfðu lífeyrissjóðirnir keypt skuldabréf af Byggingarsjóði verkamanna fyrir rúmar 97 millj. kr. eða 61.7% af þeirri upphæð sem áætlað er að þeir kaupi fyrir til áramóta, sem er 158 millj. Staðan er því sú, að í októberlok áttu lífeyrissjóðirnir enn eftir að kaupa skuldabréf af byggingarsjóðunum fyrir 175 millj. kr. til að áætlanir um skuldabréfakaup lífeyrissjóðanna til húsnæðiskerfisins á þessu ári fái staðist. Ég veit ekki nákvæmlega hvernig staðan er nú í des., en miðað við að á síðustu vikum ársins hafi staðan verið sú að lífeyrissjóðirnir hafi einungis keypt liðlega 60% af því sem ráð hafði verið fyrir gert á þessu ári, sem var 479 millj., og einungis hafi verið greidd nú, nokkrum vikum fyrir áramótin, liðlega 60% af þeirri upphæð sem áætlað hafði verið að lífeyrissjóðirnir keyptu eða rúmar 300 millj., þá fæ ég ekki séð að raunhæft sé að áætla að lífeyrissjóðirnir kaupi skuldabréf af byggingarsjóðunum fyrir 690 millj. á næsta ári, eins og ráð virðist vera fyrir gert.

Sama gildir í raun um skyldusparnaðinn og áætlanir í því sambandi, en gert er ráð fyrir að 400 millj. komi á næsta ári gegnum skyldusparnaðinn. Ég vil spyrja hæstv. ráðh. að því, hvort honum sé í raun kunnugt um hve mikið fé byggingarsjóðirnir hafa fengið af skyldusparnaði á þessu ári og hvernig dæmið lítur út núna í lok. ársins.

Samkv. frv. til lánsfjárlaga fyrir yfirstandandi ár var gert ráð fyrir tekjuöflun til byggingarsjóðanna af skyldusparnaði upp á 42 millj. Samkv. upplýsingum sem ég aflaði mér í gær hjá veðdeildinni er nettóinnstreymi vegna skyldusparnaðar það sem af er þessu ári um 303 millj. kr., en það sem greitt hefur verið út til eigenda skyldusparnaðarins eru 296 millj. á árinu. Mismunurinn er því 6 millj. sem runnið hefur til byggingarsjóðanna á þessu ári og sennilega þó ekki nema 3–4 millj. ef dreginn er frá rekstrarkostnaður veðdeildarinnar vegna skyldusparnaðarins. Allt stefnir því, hæstv. ráðh., í að skyldusparnaðurinn verði neikvæður á þessu ári, en engu að síður ætlar ríkisstj. í sinni áætlun að fá 45 millj. kr. á næsta ári gegnum skyldusparnaðinn. Hér er því á ferðinni enn einn loftkastali í fjármögnun, enn ein sönnun þess að frv. stendur á brauðfótum að því er fjármögnun þess varðar. Húsbyggjendur og íbúðarkaupendur binda miklar vonir við það nú, að eitthvað raunhæft verði gert í húsnæðismálum. Ég vil því vara við því ef nú á að fara að samþykkja einhver pappírslög, eitthvert pappírsgagn sem í raun er einskis virði fyrir húsbyggjendur því að allan raunhæfan fjárhagsgrundvöll vantar til að standa við gefin loforð.

Og síðan eru það 200 millj. sem afla á með útgáfu skuldabréfa ríkissjóðs eða lántöku. Þar er einnig mikil óvissa á ferðinni og auðvitað ljóst að við þær þrengingar sem fólk nú býr við eru varla peningar aflögu til skuldabréfakaupa. Hæstv. fjmrh. lét þau orð fatta í Ed. 16. nóv., þegar rætt var um frv. um innlenda lánsfjáröflun ríkissjóðs, að ef sala ríkisskuldabréfa gengi illa hefði ríkissjóður enga peninga til að veita húsbyggjendum að því marki sem um hefði verið samið, þannig að einnig þessi liður í lánsfjáröflun stendur á brauðfótum.

Annað má líka benda á. Í 9. gr. frv. er gert ráð fyrir í 2. tölul. að framlags til Byggingarsjóðs ríkisins eigi að afla á þann hátt að 40% af útlánaáætlun sjóðsins eigi að koma úr ríkissjóði — „með árlegu framlagi úr ríkissjóði samkv. fjárlögum,“ stendur hér. Í drögum að áætlun Húsnæðisstofnunarinnar vegna Byggingarsjóðs ríkisins, sem dags. er 30. sept. 1983, eru áætluð lán úr Byggingarsjóði ríkisins á næsta ári, 1984, 1 milljarður 402 millj. kr. og er þar gert ráð fyrir 1050 lánum vegna íbúða. Nú má vera að þessi áætlun Húsnæðisstofnunar hafi eitthvað breyst frá þessum tíma, en ég hef ekki trú á að þessar tötur, 1 milljarður 402 millj., hafi lækkað frá þeim tíma, það hljóti frekar að vera um hækkun að ræða. Á fjárl. næsta árs, miðað við ákvæði 9. gr. þessa frv., skal afla 40% af þessari fjárþörf, en það eru 560 millj. kr. Hæstv. ráðh. taldi sig útskýra þetta ákvæði til fullnustu eða því sem næst í orðum sínum hér áðan og benti á að 200 millj. kæmu á fjárlögum og 200 millj. á lánsfjáráætlun með skuldabréfakaupum ríkissjóðs. Ég get ekki lesið betur hér, hæstv. ráðh., en þetta framlag eigi að koma úr ríkissjóði samkv. fjárlögum, ekki með lántöku, og ég geri greinarmun á fjárlögum og lánsfjáráætlun. Það er náttúrlega skrípaleikur að ætla sér að blanda þessu saman og halda að með því sé fullnægt því ákvæði sem fram kemur í 9. gr., 2. tölul. Fyrir utan það höfum við orð hæstv. fjmrh. fyrir því að það er ekkert að treysta á þær 200 millj. sem afla á með skuldabréfasölu. Hæstv. fjmrh. segir 16. nóv. í umr. í Ed. um innlenda lánsfjáröflun ríkissjóðs:

„Ef sala ríkisskuldabréfa, gengistryggðra bréfa eða ríkissjóðsvíxla gengur illa hefur ríkissjóður ekki peninga til að fjármagna húsbyggjendur að því marki sem um hefur verið talað.“

En hæstv. félmrh. telur að með skuldabréfum, sem mikil óvissa ríkir um að hægt sé að selja, og þeim 200 millj., sem ráð er fyrir gert í fjárlögum, hafi hann fullnægt eða því sem næst því ákvæði sem stendur í 2. tölul. 9. gr.

Við höfum það fyrir okkur að á fjárlögum er einungis gert ráð fyrir 200 millj. kr. til Byggingarsjóðs ríkisins, þannig að þarna munar 360 millj. kr. Þetta ákvæði 9. gr., sem þm. er nú ætlað að samþykkja, er því dautt og ómerkt hvað næsta ár varðar því að 40% af útlánaáætlun, a.m.k. eins og hún lá fyrir í drögum í lok sept. s.l., eru 560 millj. kr., sem koma ættu á fjárlögum, og einungis virðast nú eiga að koma liðlega 14%, hæstv. ráðh., af þeirri upphæð á fjárlögum eins og frv. liggur nú fyrir í stað 40%, sem frv. sem við nú fjöllum um gerir ráð fyrir. Af þessu má ljóst vera að það er allt á sömu bókina lært hvað varðar fjárhagsgrundvöll og fjárhagsforsendur til að hægt sé að standa við það sem frv. þetta gerir ráð fyrir.

Ég hef í máli mínu hér einungis rætt um fjáröflunina og fjárhagsforsendur frv., sem auðvitað er það mikilvægasta og við þurfum að gera okkur ítarlega grein fyrir, þannig að hér sé ekki verið að samþykkja frv. eina ferðina enn sem vekur vonir húsbyggjenda og íbúðakaupenda sem ekki er hægt að standa við. Fleira mætti auðvitað nefna í þessu frv. sem sérstaklega þarf að skoða og ítarlega meðferð þarf að fá.

Ég vil t.d. spyrja ráðh. hvort raunhæft sé að ætla að lágtekjufólk geti fjármagnað um 20% af verði íbúðar í verkamannabústöðum í stað 10% áður. Skilyrði þess að fá lán hjá Byggingarsjóði verkamanna er að viðkomandi hafi ekki haft í meðaltekjur þrjú síðustu árin áður en útlán fara fram hærri fjárhæð en 141 þús. kr. Ég tel að óraunhæft sé að ætla að lágtekjufólk geti fjármagnað 20% af kostnaði þessara íbúða. Það hlýtur að þýða skammtímalán úr bankakerfinu, sem þetta fólk getur ekki staðið undir. Ég vil spyrja hæstv. ráðh. að því hvort hann hafi látið reikna út greiðslubyrði þessa fólks, t.d. miðað við að 10–15% þurfi þetta lágtekjufólk að fjármagna með skammtímalánum úr bankakerfinu, og til samanburðar að taka þá kannske launin sem þetta fólk fær á heilu ári og athuga hvort því sé mögulegt að standa undir þeirri greiðslubyrði sem hér er lagt til að fólkið taki á sig. Ef svo er ekki tel ég að hæstv. félmrh. eigi að sjá til þess, ef hann hefur ekki svar við þessu núna, að sú nefnd sem málið fær til meðferðar fái upplýsingar um þessa greiðslubyrði og einnig hver áætla megi að greiðslubyrði þeirra verði sem taka lán hjá Byggingarsjóði ríkisins miðað við það lánahlutfall og lánstíma sem nú er gert ráð fyrir.

Annað vil ég minnast á, sem fram kemur í þessu frv., en það er ákvæði í 30. gr. um að ákvörðun um vexti af lánum Byggingarsjóðsins sé í höndum ríkisstj. Alþingi á samkv. þessu ekkert að hafa með það að gera eða segja hvaða vextir eigi að vera af þessum lánum. Þetta, hæstv. ráðh., vil ég gagnrýna harðlega, að Alþingi sé ætlað að afgreiða þetta frv. án þess að nokkur vitneskja liggi fyrir um hver greiðslukjör eigi að vera á lánunum og þar með hvað gera má ráð fyrir mikilli greiðslubyrði af þessum lánum. Ég tel ótækt að Alþingi afgreiði málið frá sér með þessum hætti í hendur framkvæmdavaldsins, enda er það beinlínis gefið í skyn í grg. með þessu frv. að nauðsynlegt kunni að reynast að hækka vexti af lánum sjóðsins. Ég tel eðlilegt að haft sé í lögunum hverjir vextir af lánunum eigi að vera, eins og er í núgildandi lögum.

Herra forseti. Ég hef fyrst og fremst beint sjónum mínum að fjárhagsgrundvelli þessa frv., vegna þess að fjárhagsgrundvöllurinn er auðvitað forsenda þess að við getum vænst þess að ákvæði þessa frv. og nýmæli, sem þar er að finna, skili árangri. Ýmis ákvæði þessa frv. eru auðvitað til bóta ef við þau er hægt að standa. Það er vissulega til bóta t.d. að lán samkv. 1. og 7. tölul. 11. gr. skuli vera afborgunarlaus fyrstu tvö árin. Fleira mætti auðvitað nefna og það er vissulega fengur í því ef opnaðir eru möguleikar til byggingar íbúða fyrir lágtekjufólk, til að mynda félagasamtökum séu opnaðir möguleikar til að byggja leiguíbúðir handa félagsmönnum sínum eða námsfólki séu frekar opnaðir möguleikar á að fá leiguhúsnæði. Allt þetta og önnur nýmæli byggist þó fyrst og fremst á því að við höfum traustan fjárhagsgrundvöll. Það vil ég ítreka, en það sem ég vara við er að við hv. þm. séum með samþykkt þessa frv. að vekja einhverjar vonir hjá húsbyggjendum sem ekki er hægt að standa við. Það er vissulega opnaður möguleiki með ákvæðum þessa frv. til byggingar leiguíbúða og að félagasamtök eins og húsnæðissamvinnufélög geti fengið lán til þess að byggja ódýrari íbúðir og fái til þess 80% lán úr Byggingarsjóði verkamanna, en ég fæ ekki séð hvernig er hægt með þeirri fjármögnun sem fyrirhuguð er að standa við þetta, a.m.k. á næsta ári. Og ef það er ekki hægt að standa við það á næsta ári tel ég að það verði að koma skýrt fram hjá hæstv. ráðh., að þrátt fyrir þessi ákvæði og þá nýju möguleika sem hér eru opnaðir verði ekki hægt að standa við þetta á næsta ári, miðað við þá fjármögnun sem ráð er fyrir gert. Fólkið í landinu, sem nú bindur miklar vonir við þetta frv., á heimtingu á því að vita allan sannleikann í þessu máli.

Ég vil í stuttu máli, herra forseti, draga saman þau atriði, sem ég hef lagt áherslu á í mínu máli og sem ég legg áherslu á að hæstv. félmrh. svari nú við þessa umr.

Það er í fyrsta lagi: Getur hæstv. ráðh. fallist á það með mér, að miðað við fjármögnun bæði á fjárl. og í lánsfjáráætlun til Byggingarsjóðs verkamanna geti sjóðurinn aðeins staðið við fyrri skuldbindingar og ekki verði hægt að veita framlag til einnar einustu nýrrar íbúðar í verkamannabústaðakerfinu á næsta ári? M.ö.o.: við þær umsóknir sem liggja fyrir og bárust fyrir 1. ágúst 1983, sem eru 530 talsins og liggja óafgreiddar, verður ekki hægt að standa á næsta ári.

2. Hæstv. ráðh. Geta hin nýstofnuðu húsnæðissamvinnufélög vænst þess að fá fjármagn á næsta ári til að sinna framkvæmdum? Samkv. því sem fram hefur komið er áætlað að taka það fé af Byggingarsjóði verkamanna, sem ég fæ ekki séð að eigi grænan eyri eftir miðað við það fjármagn sem honum er ætlað. Fjármagn er aðeins fyrir hendi til að standa við fyrri skuldbindingar. Hæstv. ráðh. gerir sér væntanlega grein fyrir því að það er fjöldi fólks sem hefur gerst félagar í húsnæðissamvinnufélögum. Þetta fólk treystir því að hægt sé að hefja framkvæmdir með fullum þunga á næsta ári. Ég vitnaði í grein í Dagblaðinu áðan, þar sem fram kemur að félmrh. hafi sagt að þessi húsnæðismálasamvinnufélög fengju 80% á næsta ári. Fram kemur hér að þetta komi af fjárveitingu úr verkamannabústaðakerfinu. Það er því mjög brýnt, hæstv. ráðh., að við fáum upplýst hér hvernig á að standa að fjármögnun til hinna nýstofnuðu húsnæðissamvinnufélaga, hvort það verði á næsta ári eða hvort þessi félög verði þá e.t.v. að bíða í 1–2 ár eða þá hversu lengi.

3. Hversu mörgum nýjum umsóknum er hægt að sinna hjá Byggingarsjóði ríkisins á næsta ári miðað við það framlag á fjárlögum og lánsfjáráætlun sem sjóðnum er ætlað? Getur hæstv. ráðh. staðfest þær tölur, sem ég hef hér sett fram, að einungis sé hægt að afgreiða frumlán, þ.e. nýjar umsóknir vegna 1000 íbúða eða þar um bil? Í því sambandi er rétt að benda á að allar áætlanir sem settar hafa verið fram hljóða upp á að þörf sé á að byggja um eða yfir 2 þús. nýjar íbúðir á ári.

4. Þá vil ég spyrja ráðh.: Hvernig fær ákvæði 9. gr. frv. í 2. tölul. staðist, að á næsta ári eigi að fjármagna 40% af útlánaáætlun Byggingarsjóðs ríkisins samkv. fjárlögum, sem er þá um 560 millj. miðað við þau drög sem lágu fyrir í septemberlok um útlánaþörf Byggingarsjóðs ríkisins á næsta ári, þegar einungis er áætlað að veita á fjárl. um 200 millj.? Ég ítreka að þetta eru aðeins 14%, en ekki 40% eins og kveðið er á um í greininni. Ég hlusta ekki á það, hæstv. ráðh., að ætla að fara að blanda saman við þetta lántöku með skuldabréfasölu ríkissjóðs. Hæstv. fjmrh., sem hér situr, hefur sagt að mjög mikil óvissa sé um hvort hægt sé að selja þau skuldabréf. Þess vegna er það alrangt, hæstv. ráðh., að vera að villa hér um og blanda þessum tveim upphæðum saman, enda stendur hér „samkv. árlegu framlagi úr ríkissjóði samkv. fjárlögum.“ Því vil ég spyrja hæstv. ráðh. hvort hv. þm. væru með samþykkt þessa ákvæðis í 9. gr. 2. tölul. að samþykkja ákvæði sem ekki fær staðist á næsta ári.

5. Þá vil ég spyrja ráðh. hvort hann hafi trú á að sú áætlun standist og hægt sé að ætlast til þess að lífeyrissjóðirnir kaupi skuldabréf fyrir 690 millj. á næsta ári þegar þeir í októberlok höfðu einungis keypt 60% af áætluðum skuldabréfakaupum þeirra á yfirstandandi ári eða rúmar 300 millj. Og hversu lengi telur ráðh. að stætt sé á að blóðmjólka lífeyrissjóðina þegar skuldbindingar lífeyrissjóðanna varðandi lífeyrisgreiðslur verða stöðugt þyngri?

6. Hefur ráðh. látið reikna út hvenær byggingarsjóðirnir, bæði verkamanna og Byggingarsjóður ríkisins, verða gjaldþrota miðað við hvað stórum hluta af fjárþörf þeirra er mætt með lántökum sem bera hærri vexti en byggingarsjóðirnir fá af sínum útlánum? Ég fel mjög mikilvægt að þm. fái þá útreikninga upp á borðið við meðferð þessa frv. Ég á sæti í þeirri nefnd sem fær þetta mál til umfjöllunar og ég mun óska eftir því að upplýsingar liggi fyrir áður en frv. verður afgreitt héðan frá Alþingi. Ég tel að með svo miklum lántökum, eins og nú er stefnt að og verið hafa á undanförnum árum, hljóti hraðbyri að stefna að gjaldþroti sjóðanna.

7. Þá vil ég spyrja ráðh. hvort raunhæft sé að ætla fjármagn til byggingarsjóðanna af skyldusparnaði um 45 millj. á næsta ári þegar staðan er sú, að sjóðirnir hafa í reynd aðeins fengið á yfirstandandi ári 3–4 millj. og allt stefnir í að skyldusparnaðurinn verði neikvæður nú í árslok.

Þetta eru allt spurningar sem ég tel brýnt að fá svar við við þessa umr. málsins. Ef hæstv. ráðh. treystir sér ekki til að gefa við öllum þessum spurningum svör nú mun ég leita fast eftir því að þessum spurningum verði svarað við meðferð málsins í félmn., þar sem ég á sæti. En auðvitað væri best að félmrh. mundi upplýsa eins og hann gæti það sem ég hef hér spurt um.

Herra forseti. Ég get farið að ljúka máli mínu. Ýmis ákvæði þessa frv. hefur mér ekki gefist tími til að skoða gaumgæfilega, t.d. V. kafla frv., um forkaupsrétt sveitarfélaga á íbúðum og þær breytingar sem þar eru settar fram. Ég vil því áskilja mér allan rétt varðandi aths., afstöðu og brtt. við þann kafla frv., svo og að sjálfsögðu aðrar greinar sem mér hefur ekki gefist tími til að skoða fyrir þessa umr.

Ég hef látið koma fram hér að það eru ýmis góð og gagnleg nýmæli í þessu frv., en þau byggjast auðvitað öll á því að hægt sé að hrinda þeim í framkvæmd og það er ekki hægt nema samhliða og við afgreiðum þennan lagabálk frá okkur verði tryggt að hægt sé að standa við ákvæði þessa frv. Að öðrum kosti, herra forseti, erum við hér einungis að ræða frv. sem stendur á brauðfótum fjárhagslega. Ég vara við því að vekja vonir hjá húsbyggjendum með því að samþykkja þetta frv., sem þegar upp er staðið verður ekki hægt að standa við.