12.12.1983
Efri deild: 27. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1613 í B-deild Alþingistíðinda. (1385)
7. mál, Fiskveiðasjóður Íslands
Stefán Benediktsson:
Virðulegi forseti. Hafi maður einhvern tíma hneykslast á brbl. þá held ég að maður hafi fyrst hneykslast fyrir alvöru á þessum lögum. Þau eru sett eftir þinglausnir þegar sýnt var að sú stjórn, sem var við völd, var í raun og veru fallin. Síðan stöndum við 7–8 mán. síðar frammi fyrir orðnum hlut. Þarna var tekið lán að upphæð á annað hundrað milljónir og því dengt inn í íslenskt efnahagslíf með þeim fljótfengnu ráðum sem menn höfðu þá. Með hliðsjón af setningu þessara brbl. verður manni á að spyrja: Hvað þýðir fyrir okkur í raun og veru að vera að fjalla um þennan hlut hér og nú? Hvað gerist t.d. ef sú ólíklega niðurstaða yrði ofan á að þessi lög yrðu felld? Hvernig á þá að innkalla aftur það fé sem þarna hefur verið úthlutað og hvaða afleiðingar hefur það fyrir þau fyrirtæki sem þessa fjármuni fengu?
Á þessu stigi er eðlilegast að spyrja einhverra spurninga sem gætu orðið mönnum til fróðleiks og lærdóms og hugsanlega til eftirbreytni. Ég heyrði á máli hæstv. ráðh. hér áðan að einhver gögn liggja fyrir sem fara þá til nefndar. Mig langar til að bera fram nokkrar spurningar. Þeim kann að vera svarað í þessum gögnum. Ef svo er þá er það gott. Það er spurning um hvort legið hafi fyrir beiðnir frá ákveðnum fyrirtækjum um þá aðstoð sem þarna var veitt. Það er spurning um það hvort þessar úthlutanir hafi verið skilyrtar og þá með hvaða hætti. Voru þær t.d. eyrnamerktar ákveðnum aðgerðum innan fyrirtækjanna? Það er spurning með hvaða hætti er hagað eftirliti með því að þessum peningum sé varið, eða hafi verið varið, eins og til var ætlast ef sá tilgangur var þá tilgreindur. Það er kannske mikilvægasta spurningin. Er eitthvert merki þess eða liggja einhverjar sannanir fyrir um að þessir peningar hafi áorkað einhverju, einhverju öðru en kannske að lengja dauðastríð einhverra fyrirtækja? Það gengur fjöllunum hærra milli manna að til séu dæmi og það fleiri en eitt um fyrirtæki sem nánast eru gerð út í því augnamiði eingöngu að taka á móti svona peningum. Ég veit ekki að hvað miklu leyti hægt er að upplýsa um slíkt mál eða hvort menn vilja það yfir höfuð. Og að síðustu, og ég vænti að þær upplýsingar liggi nú fyrir: Hver eru kjörin á þessum framlögum eða þessari úthlutun? Eru þetta lán með vöxtum eða beinir styrkir eða einhvers konar aðrar ráðstafanir með öðrum kjörum?
Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja þetta frekar. Ég vil ítreka það að mér finnst þetta mál sýna í mjög skýru ljósi hversu óheppileg stjórnarfarsleg ráðstöfun brbl. eru orðin og gjörsamlega út úr takt við þann tíma sem við lifum á. Þau eru ónauðsynleg, með öllu þegar fyrir liggur að mjög stór hluti þingmanna, ef ekki meiri hluti, er fullkomlega reiðubúinn að vinna bæði lengri vinnudag og lengra vinnuár einmitt til þess að svona hlutir þurfi ekki að gerast.