12.12.1983
Efri deild: 27. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1614 í B-deild Alþingistíðinda. (1386)

7. mál, Fiskveiðasjóður Íslands

Karl Steinar Guðnason:

Virðulegi forseti. Þetta frv. er til staðfestingar á brbl. Mig minnir að málum hafi verið svo komið að Framkvæmdastofnun ríkisins hafi verið ætlað að fara með þetta mál en ekki viljað og síðan hafi þessi háttur verið á hafður og beinlínis verið beðið eftir því að Alþingi færi heim til að hægt væri að gefa út þessi brbl.

Vandi þeirra fyrirtækja sem um er að ræða var löngu ljós þegar þessi lög voru gefin út. Þessi háttur, sem hafður er á við að gefa út brbl., minnir okkur á hversu þessi aðferð er misnotuð og hversu alþm. eru niðurlægðir með slíkum gjörðum.

Ég efast ekki um að umrædd fyrirtæki hafa þurft á fé að halda. Það er nöturleg staðreynd að fyrirtæki í sjávarútvegi eru yfirleitt þannig sett að þau eru rekin á núllinu, eða undir núllinu, vegna þess að grundvöllurinn er rangur. En þegar þessi lán eru veitt þá eru fín orð notuð um lánveitinguna, að þau skuli vera til hagræðingar: Það er mikið búið að lána af hagræðingarfé og mér hefur alltaf fundist á skorta að sýnt væri fram á að eitthvert gagn hafi orðið af því fé, sem lánað hefur verið. Yfirleitt er þetta fé notað til að greiða upp rekstrarskuldir og ekki látið til hagræðingar, eins og ætlunin er þó að gert verði. Mig langar til að spyrja sjútvrh. hvort einhverjar upplýsingar liggi fyrir um hvaða hagræðing hafi átt sér stað í viðkomandi fyrirtækjum eða hvort nokkur leið sé að gæta að því að fyrirtækin noti féð á þann hátt sem ætlast er til af lánveitanda. Við fáum vissulega í sjútvn. ýmsar aðrar upplýsingar. En gaman væri að fá vitneskju um hvort rn. hefur eitthvað fylgst með því hvernig þessum peningum hefur verið varið.