12.12.1983
Efri deild: 27. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1624 í B-deild Alþingistíðinda. (1397)

144. mál, lánsfjárlög 1984

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Virðulegi forseti. Það er í sjálfu sér ekki neitt við því að segja, þó að stjórnarandstaðan beri fram ósk um að einhverju máli sé frestað með þessum hætti. En með hliðsjón af því sem hv. síðasti ræðumaður sagði vona ég að þessari kröfu verði ekki haldið til streitu.

Ég vil aðeins upplýsa að ég hef boðað aukafund í fjh.og viðskn. í fyrramálið einmitt í þeim tilgangi að reyna að fá þær spurningar fram, sem menn vildu fá svarað, og það yrði þá eitthvað lengri tími sem menn hefðu til að athuga mátið. Ég er þeirrar skoðunar, að málið fái betri afgreiðslu með því að umr. ljúki hér í dag og málið fari til nefndarinnar. Ég mun að sjálfsögðu gera það sem í mínu valdi stendur til að afla þar þeirra upplýsinga sem hv. þm. vilja fá, nm. eða aðrir þm., og varpa því nú fram til tillögumanna hvort þeir geti ekki á það fallist að málinu verði vísað til nefndar; en það fær þá auðvitað þá meðferð þar sem eðlileg er, sanngjörn og sjálfsögð.