12.12.1983
Efri deild: 27. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1630 í B-deild Alþingistíðinda. (1403)
144. mál, lánsfjárlög 1984
Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
Ég vil taka undir orð hv. 2. þm. Austurl. um að tillitssemi sé mikilvæg í garð stjórnarandstöðu frá stjórnarsinnum og öfugt. Ég vænti þess, að menn geti verið sammála um að það sé dyggð sem sé í hávegum höfð í þessari hv. deild. En ég skil þetta svo, að það hafi ekki komið fram bein ósk um að fresta umr. um þetta mál. Það kom frekar fram fsp. frá hv. 8. þm. Reykv. og ég held að hann telji sig hafa fengið svar við henni. Því tel ég umr. lokið og fer nú fram atkvgr.