12.12.1983
Efri deild: 27. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1645 í B-deild Alþingistíðinda. (1422)

43. mál, lagmetisiðnaður

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Ég á nú út af fyrir sig ekki nokkurt erindi hér upp í ræðustólinn. En hv. 8. þm. Reykv. virðist gera það svona af vana að beina orðum sínum í öllum málum til mín sem fjmrh.

Þetta mál heyrir undir iðnrh. svo ég skora á hv. þm. að beina skeytum sínum til hans til að þess að við fáum hann í ræðustólinn. (Iðnrh.: Ég bað nú um orðið.) Það er gott, það er ágætt. En ég vil að það komi alveg skýrt fram að viðskiptamáti austantjaldslanda er ákaflega andstæður mínum hugmyndum um frelsi einstaklingsins til athafna yfirleitt. Og ég ætla bara að biðja hv. 8. þm. Reykv. að kynna sér allt það fjaðrafok og þær umræður sem urðu út af þeim rammasamningi sem ég álít að Ísland hafi verið neytt til að skrifa undir. Utanrrh. Rússlands tilkynnti sendiráði Íslands í Moskvu með nokkurra daga fyrirvara að hann væri að koma til landsins til að undirskrifa þennan rammasamning og það gæti verið hættulegt — við fengum þau skilaboð það gæti verið hættulegt fyrir viðskipti Íslands og Sovétríkjanna ef við skrifuðum ekki undir hann.