13.12.1983
Sameinað þing: 31. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1760 í B-deild Alþingistíðinda. (1477)
1. mál, fjárlög 1984
Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Ég skal ekki við þessa umr. setja á langa ræðu um þetta fjárlagafrv. eða ræða forsendur þær sem þetta frv. er byggt á, enda hefur það ítarlega verið gert hér í dag af stjórnarandstöðunni. Ég mun þess í stað snúa mér að því að gera grein fyrir þeim brtt. sem ég hef hér lagt fram.
Í fyrsta lagi hef ég leyft mér að flytja brtt. á þskj. 197 ásamt hv. þm. Helga Seljan um 15 millj. kr. hækkun til Framkvæmdasjóðs fatlaðra. Fyrir þingslit s.l. vor voru samþykkt lög um mátefni fatlaðra. Samkv. þeim lögum átti að leggja Framkvæmdasjóði fattaðra árlega til 55 millj. kr. miðað við verðlag í jan. 1983. Skv. því ákvæði laganna hefði því átt að leggja sjóðnum til nú á fjárlögum um 91 millj. kr. Það olli mér því miklum vonbrigðum að sjá í fjárlagafrv. að einungis var gert ráð fyrir 40 millj. kr. framlagi, eða undir þeirri krónutölu sem lögin gera ráð fyrir, hvað þá að verðbætur væru reiknaðar á þá tölu. Taldi ég því einsýnt að breyting yrði gerð á þessari upphæð við meðferð málsins í fjvn. Nú hefur komið í ljós að fjvn. hefur afgreitt frv. til 2. umr. án þess að nokkur breyting sé gerð á þessum fjárlagalið. Ég veit ekki hvort hv. þm. gera sér það atmennt ljóst að með því framlagi sem nú á að renna í sjóðinn er um verulega lægri fjárhæð að ræða en átti að vera skv. lögum um aðstoð við þroskahefta, þrátt fyrir aukin verkefni skv. lögum um málefni fatlaðra.
Lögin um aðstoð við þroskahefta, sem tóku gildi 1980, voru felld inn í lögin um málefni fattaðra. Skv. lögunum um málefni fatlaðra voru verkefni Framkvæmdasjóðs öryrkja og þroskaheftra, sem fjármagnaði framkvæmdir skv. lögum um aðstoð við þroskahefta, stóraukin og bætt á hann viðamiklum framkvæmdum í þágu öryrkja almennt. Engu að síður eru framlög til sjóðsins skert svo stórlega í þessu fjárlagafrv. að þau fara töluvert niður fyrir það sem sjóðurinn átti að hafa skv. fyrri lögum, áður en verkefni hans voru aukin.
Mikið lá á s.l. vor að samþykkja þessi lög um málefni fatlaðra og áttu þau að verða stórt framfaraspor í þágu fatlaðra. Margítrekað varaði ég þá við því að ef ekki fylgdi þessum lögum aukin fjárveiting frá því sem sjóðurinn áður hafði haft þá væri borin von að lögin skiluðu þeim árangri sem til var ætlast. Ljóst er að sú spá hefur ræst svo ekki verður um villst. Er það ekki vansalaust fyrir Alþingi hvernig æ ofan í æ eru samþykktir lagabálkar sem þegar upp er staðið sýnir sig að ekki er staðið við.
Samkvæmt óbreyttum lögum um aðstoð við þroskahefta hefði sjóðurinn átt að hafa á næsta ári yfir 60 millj. kr. og þá er miðað við að ekki hafi bæst á hann þau verkefni sem nú er ætlað með lögum um málefni fatlaðra. Sjóðurinn hafði skv. lögum um aðstoð við þroskahefta yfir að ráða á þessu ári 39 millj. 960 þús. kr., en þrátt fyrir nýju lögin um stóraukin verkefni sjóðsins er einungis bætt við 40 þús. kr., eða hækkun milli ára um 0.1%. Framkvæmdabeiðnir sem borist hafa sjóðnum fyrir árið 1984 eru um 176 millj. kr. Svæðisstjórnirnar sem eru átta talsins um allt land hafa metið brýnustu forgangsverkefni á næsta ári og er sú tala 95.5 millj. kr. Til framkvæmda sem hafnar hafa verið á undanförnum 2–3 árum og sem flestar hverjar er stefnt að að taka í notkun á næsta ári þarf um 45–48 millj. kr. Nokkur þessara verkefna, sem eru sambýli, skammtíma fósturheimili og verndaðir vinnustaðir, hafði verið ráðgert að taka í notkun á fyrri hluta næsta árs, enda gert ráð fyrir rekstrarfé til þessara stofnana nú í fjárlagafrv. Til að ljúka þeim framkvæmdum á fyrri hluta ársins þarf að veita um 30–32 millj. kr. fyrstu sex mánuði ársins.
Ljóst er að þessar áætlanir um brýnustu framkvæmdir og þegar gerða verksamninga munu ekki standast nema sú upphæð sem ráð er fyrir gert á fjárlögum muni verulega hækka nú við meðferð þessa fjárlagafrv. hér á hv. Alþingi.
Á síðustu árum eða frá því að Framkvæmdasjóður öryrkja og þroskaheftra var stofnaður 1980 hefur nokkuð af upphæð sjóðsins einnig farið í að fjármagna byggingar öryrkjasamtakanna, eins og Öryrkjabandalagsins, Sjálfsbjargar, Blindrafélagsins o.fl. Miðað við framtag á fjárlögum er einsýnt að ekkert er aflögu í þær framkvæmdir á næsta ári.
Auk þessa framlags á fjárlögum eiga að renna í sjóðinn tekjur Erfðafjársjóðs. Áætlaðar tekjur Erfðafjársjóðs á næsta ári eru um 40 millj. kr. Engu að síður er einungis gert ráð fyrir að 19.4 millj. af tekjum Erfðafjársjóðs renni til Framkvæmdasjóðs fatlaðra. Skerðingin nemur yfir 50%.
Formanni fjvn. fannst ekki eins sjálfsagt að lækka framlag til Erfðafjársjóðs á síðasta ári eins og nú er gert og hann mælti fyrir í dag. Við afgreiðslu síðustu fjárlaga
sagði núv. form. fjvn. með leyfi forseta um Erfðafjársjóðinn og erfðafjárskatt:
„Sé talið eðlilegt að lækka framlög til sjóða með félagsleg markmið, t.d. Erfðafjársjóðs, á að sjálfsögðu að gera það með breytingum á lögum. sé það ekki gert er skatturinn innheimtur á fölskum forsendum.“
Þetta sagði hv. núv. formaður fjvn. á síðasta þingi við afgreiðslu fjárlaga. Þá taldi hann nauðsynlegt að breyta lögunum ef skerða ætti framlag til Erfðafjársjóðs, en nú þykir honum sjálfsagt að gera það með einu pennastriki.
Skv. lögum um málefni fatlaðra hefði átt að renna í sjóðinn um 91 millj. kr. en eins og áður er sagt er einungis gert ráð fyrir 40 millj. kr. Hér er því í heild um geysilega mikla skerðingu að ræða. Af því sem er áður sagt er ljóst að sjóðurinn getur ekki staðið við skuldbindingar sínar, hvað þá heldur að hægt sé að bæta við nýjum verkefnum.
Á biðlista er nú í Reykjavík einni saman 46 þroskaheftir einstaklingar sem bíða eftir að komast á sambýli. Auk þess eru um 43 mjög fjölfötluð börn á aldrinum 1–11 ára, sem einnig bíða úrlausnar sinna mála, sem ekki virðist í augsýn að nokkuð sé hægt að gera fyrir. Það er því ljóst að með þessu framlagi verður ekkert hægt að gera fyrir þessa einstaklinga á næsta ári.
Í áætlun sem ég hef hér frá svæðisstjórn Reykjavíkur eru sett fram brýnustu verkefni sem úrlausnar þurfa við á næsta ári. Áætlað er að það þurfi hér í Reykjavík einni saman um 39 millj. kr. á næsta ári. Þar er m.a. gert ráð fyrir sambýlum fyrir þessi fjölfötluðu börn. Einnig er gert ráð fyrir í þessari áætlun að komið verði á fót meðferðarheimili fyrir 6–8 þroskaheft ungmenni sem hafa alvarleg hegðunar- eða geðræn vandamál vegna þess að þau hafa ánetjast vímugjöfum. Ekkert verður hægt að gera fyrir þessa einstaklinga á næsta ári með því framlagi sem ætlað er í þennan sjóð.
Þar sem ég er hér að ræða um sambýli þá sé ég hér að þm. Alþb. hafa flutt brtt. sem eftir því sem ég fæ best séð er um rekstrarkostnað í sambýli í Kópavogi. Þetta er auðvitað mjög brýnt því það eru 18 einstaklingar í Kópavogi sem bíða eftir að komast inn á sambýli. En ég fæ ekki séð hvað stoðar að sjá fyrir rekstrarkostnaðinum einum ef ekki eru til peningar til að byggja eða kaupa hús fyrir sambýli fyrir þessa einstaklinga.
Ég hef því leyft mér að flytja brtt. ásamt hv. þm. Helga Seljan um að sjóðurinn fái a.m.k. þá krónutölu sem honum er ætlað lögum samkvæmt, eða 55 millj. kr., og er þá verðtryggingunni sem koma átti frá 1. jan. s.l. sleppt. Brtt. hljóðar því upp á að í stað 40 millj. kr. komi 55 millj. Ég undirstrika að þessi upphæð nægir einungis til að hægt sé að standa við þegar gerða verksamninga og þær framkvæmdir sem á að taka í notkun þegar á næsta ári og stefnt er að að ljúka á næstu mánuðum, enda er gert ráð fyrir rekstrarfé á fjárlögum næsta ár til þessara stofnana. Fáist ekki aukið framlag í framkvæmdasjóðinn er einhlítt að ekki er hægt að standa við gerða verksamninga og er það mjög alvarlegt mál.
Ég hef einnig leyft mér að flytja á þskj. 202 brtt. ásamt hv. þm. Stefáni Benediktssyni, Guðrúnu Helgadóttur og Guðrúnu Agnarsdóttur um að framlag til K-byggingarinnar hækki um 11 millj. og 700 þús. kr. og verði framlag því samtals til K-byggingarinnar á næsta ári 14 millj. kr. Það þarf ekki að hafa mörg orð um það hve nauðsynlegt er að aukið framlag fáist nú við afgreiðslu fjárfaga til þessara framkvæmda. Fyrir nokkrum dögum urðu hér nokkrar umr. í Sþ. um K-bygginguna. Fram kom þá hjá heilbr.- og trmrh. að yrði tekin ákvörðun um að hefjast handa væri hægt að byggja K-bygginguna á árunum 1984–1992, en sá byggingarhraði þýddi að leggja þyrfti til 52 millj. kr. á ári í bygginguna og með því móti yrði hægt að taka krabbameinslækningadeildina í notkun um áramótin 1989–1990.
Fram hefur komið í skýrslu læknaráðs Landspítalans að allt stefni að óbreyttu í það að á næstu árum þurfi í auknum mæli að senda sjúklinga út til krabbameinslækninga. Í máli heilbrrh. hér á Alþingi fyrir nokkru kom einnig fram að frá árinu 1979 hefur þurft að senda 144 sjúklinga utan til krabbameinslækninga. Í geislameðferð komu á s.l. ári 289 sjúklingar og talið er að helmingur til 2/3 hlutar þeirra þurfi á að halda geislameðferð í línuhraðli sem staðsetja á við K-bygginguna. Ef gripið verður til þess ráðs á næstu 2–3 árum að senda þessa sjúklinga til útlanda mun það hafa geysilegan kostnað í för með sér. Meðaltalskostnaður vegna fjögurra sjúklinga sem sendir voru utan á þessu ári var um 440 þús. kr. Ef helmingur þeirra sjúklinga sem þurfa á sérstakri geislameðferð að halda verður sendur til útlanda til krabbameinslækninga, þá þýðir það miðað við þessar tölur 63–64 millj. árlega, eða 10 millj. kr. hærri upphæð en þarf árlega næstu fjögur árin til að krabbameinsdeildin í K-byggingunni komist í notkun. Ég fel því einsýnt, herra forseti, að lítill sparnaður sé í því að veita ekki framlag á fjárlögum nú til að hægt sé að hefja þessar framkvæmdir.
Í þeirri brtt. sem ég mæli hér fyrir er einungis lögð til 11.7 millj. kr. hækkun eða að samtals verði veitt til K-byggingarinnar 14 millj. á næsta ári. Ljóst er að þetta framlag mun hvergi nægja til að hægt sé að standa við þær áætlanir sem heilbrrh. lýsti hér fyrir nokkrum dögum, en þær miðuðu við að hægt yrði að taka bygginguna í notkun á árunum 1989–1990, og var þá miðað við 52 millj. kr. árlegt framlag. Með þessari brtt. eru því ekki gerðar miklar kröfur, einungis að hægt sé að láta fara fram útboð og ljúka jarðvegsvinnu á næsta ári.
Ég vil vænta þess að fjvn. taki þetta mál aftur upp milli 2. og 3. umr. og kanni alla möguleika til að veita meira fjármagni til K-byggingarinnar en hér er lagt til. En ljóst er að þessi upphæð sem ég hér mæli fyrir er algjört lágmark til að nokkuð sé hægt að hefja undirbúning og ljúka jarðvegsframkvæmdum á næsta ári.
Ég hef einnig leyft mér á þskj. 197 að flytja till. um að veitt verði sérstakt framlag til útgáfu sérkennslugagna. Ljóst er að miðað við það framlag sem í fjárlagafrv. er ætlað til Námsgagnastofnunar er þess ekki að vænta að framlag fáist til útgáfu sérkennslugagna á næsta ári. Sérkennslugagnagerð hefur ávallt setið á hakanum og lítið sem ekkert fjármagn runnið til þessa málefnis. Sérkennarar hafa því þurft að grípa til neyðarráðstafana með því að útbúa einfalt efni til að bjarga því að hægt væri að halda uppi einhverri sérkennslu, auk þess sem gripið hefur verið til þess ráðs að þýða erlent sérkennsluefni.
Ég tel ekki vansalaust fyrir Alþingi ef ekki verður hægt að halda uppi sérkennslu í skólum landsins fyrir fatlaða nemendur vegna skorts á námsefni. Í fyrsta sinn á yfirstandandi ári var veitt til sérkennslugagnagerðar nokkurri upphæð og með þessari till. sem nú er flutt er þess freistað að hægt verði að halda því starfi áfram. Í áliti starfshóps sem fyrrv. menntmrh. skipaði til að vera ráðgefandi um gerð og útgáfu kennslugagna fyrir nemendur með sérþarfir á grunnskólastigi, en starfshópur þessi skilaði áliti í maí s.l., kemur fram áætlun um þörf fyrir sérkennslugögn á næstu árum. Að dómi þessa starfshóps þarf næstu fimm árin um 14 millj. kr. til að gera átak á þessu sviði og er þá miðað við verðlag í jan. 1983. Gera má því ráð fyrir að um 4 millj. þurfi á ári í þetta verkefni. Í þeirri brtt. sem ég hef flutt og mæli hér fyrir er einungis gert ráð fyrir 1.2 millj. kr. og því aðeins um að ræða 1/4 af þeirri upphæð. Vænti ég að þm. geti sameinast um till. Svo að útgáfa sérkennslugagna geti haldið áfram á næsta ári, en það ætti að geta orðið ef veitt verður til þess þeirri upphæð sem hér er gert ráð fyrir.
Ég mæli einnig fyrir brtt. á þskj. 197 sem ég flyt ásamt hv. þm. Eiði Guðnasyni. Hún er við 6. gr. frv. og kveður á um heimild til að ráðstafa upptækum hagnaði af sölu ávana- og fíkniefna til fyrirbyggjandi aðgerða gegn frekari dreifingu slíkra efna. Í þjóðféfaginu hafa undanfarið orðið miklar umr. um fíkniefnavandamálin og einnig hér á Alþingi. Ljóst er að mikill vilji er fyrir því að átak verði gert í þessum málum, bæði með því að efla starf toll- og löggæslu og allar rannsóknaraðferðir og fræðslu um skaðsemi ávana- og fíkniefna. Átak í þessum efnum kostar nokkurt fjármagn en ég tel að ekki sé hægt að spara á þessu sviði ef sporna á við útbreiðslu og dreifingu þessara eiturefna. Ég tel að á Alþingi sé mikill vilji til að gera átak í þessum málum. Verði sú brtt. sem hér er lögð til samþykkt mun hún staðfesta þann vilja.
Það hafa reyndar komið einnig fram nú við 2. umr. tvær aðrar brtt., í fyrsta lagi um fjármagn til fræðslustarfsemi og í annan stað um 5 millj. kr. framtag sem gert er ráð fyrir að fari í aðgerðir vegna smygls og dreifingar á fíkniefnum. Ég tel að þær þrjár till. sem hér liggja fyrir sýni raunar ljóslega að það er mikill vilji fyrir því að gera átak í þessum málum og því vænti ég þess fastlega að við afgreiðslu fjárlaga nú verði samþykkt sú till. sem ég mæli fyrir. Hún kveður ekki á um neina ákveðna upphæð sem verði sett í þetta mál, einungis er um að ræða heimildarákvæði að ráðstafa upptækum hagnaði af sölu ávana- og fíkniefna til fyrirbyggjandi aðgerða í þessu skyni.
Hér er vissulega um óvissan tekjustofn að ræða í þetta málefni en engu að síður væri hægt að nýta þetta fjármagn til fyrirbyggjandi aðgerða. Á síðustu tveim árum hefur verið gerður á hvoru ári um sig upptækur hagnaður vegna sölu ávana- og fíkniefna fyrir um 200 þús. kr. Hér er ekki um stórar upphæðir að ræða en engu að síður gæti hér verið um nokkrar tekjur að ræða sem aukist gætu umfram það sem verið hefur ef átak yrði gert til að hefta dreifingu á þessum fíkniefnum og koma í veg fyrir ólöglegan innflutning þeirra. Segja má því með fullri vissu að þessum peningum yrði hvergi betur varið en til þessara mála, enda í fyllsta máta eðlilegt að það fjármagn sem gert er upptækt vegna sölu á fíkniefnum renni til fyrirbyggjandi aðgerða á þessu sviði heldur en að það fari beint í ríkiskassann. Verði ekkert að gert í þessum málum getur það einnig kostað ríkissjóð mikla fjármuni í aukinni heilsugæslu, að ekki sé talað um hvernig þessi vágestur getur lagt í rúst líf fjölda ungmenna og aukið afbrot hér á landi ef ekki er brugðist við með skjótum hætti.
Að lokum, herra forseti, hef ég leyft mér að flytja á þskj. 202 till. til lækkunar á útflutningsuppbótum á landbúnaðarafurðir um 27.9 millj. kr. sem er sama upphæð og hækkun framlaga nemur vegna þeirra brtt. sem ég hef flutt. Brtt. þær sem ég hef hér lýst í mínu máli munu því ekki hafa áhrif á niðurstöðutölu fjárlaga.
Herra forseti. Ég hef lokið við að gera grein fyrir þeim brtt. sem ég hef lagt fram hér við 2. umr. þessa máls.