13.12.1983
Sameinað þing: 31. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1796 í B-deild Alþingistíðinda. (1482)
1. mál, fjárlög 1984
Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):
Herra forseti. Hv. 5. þm. Austurl. beindi hér fsp. til mín, aðallega vegna Iðnrekstrarsjóðs og reyndar vegna húshitunarkostnaðar einnig.
Iðnrekstrarsjóður hefur verið til athugunar að undanförnu og verður e.t.v. nýtt af honum að frétta á næstunni. Það var hugmynd mín að breyta til um skipulag í þessum efnum, ekki til þess að draga úr hlutverki því sem hann hefur gegnt heldur til þess að efla það. Það verður auðvitað nýtt af honum að frétta einnig við 3. umr. fjárlagafrv., þannig að ég stytti mér leið að því leyti. Það liggur fyrir að breytingar þær sem ég hafði haft í huga ná ekki fram að sinni. Fyrir því verður framlag til hans hækkað, en aðrar útveganir fjár munu fara fram í byrjun næsta árs og bind ég vonir við að fjármagn sem verður til ráðstöfunar til þessara þarfa verði að raungildi snöggt um meira en verið hefur í ár.
Þá minntist hv. þm. með sérkennilegum hætti á fréttir um Rafmagnsveitur ríkisins og fór þar greinilega vísvitandi með rangt mál, og kannast ég illa við þennan málflutning hjá hv. þm., að ég hefði upplýst á einhverjum fundi um fjöldauppsagnir hjá RARIK. Í Morgunblaðinu segir hinn 7. des. þar sem blaðið stær upp þessum fréttum svo, með leyfi hæstv. forseta: „Sverrir Hermannsson iðnrh. vildi ekki tjá sig um mál þetta, er blaðamaður Morgunblaðsins ræddi við hann í gærkveldi, en hann sagði rétt vera að eitt af hans fyrstu verkum er hann kom í rn. hefði verið að láta gera úttekt á skipufagi og rekstri RARIK, einnig Orkustofnunar o.s.frv. Aðspurður um áðurgreindar niðurstöður sagðist Sverrir ekkert geta látið uppi um málið á þessu stigi.“
Þetta er beinlínis rangt þegar hv. 5. þm. Austurl. fer að þylja það hér að ég hafi gefið upp á opinberum fundum eða annars staðar einhverjar tölur í þessu sambandi. Slíkur málflutningur sýnir ekki styrkleika málstaðar og kannast ég ekki við hann yfirleitt í hans mátflutningi, og verð ég nú að játa það.
Um framlag til RARIK á fjárlögum er frá því að segja að menn ættu að geyma sér undrunarupphrópanir þangað til — leiða þá rök að því að þörf sé fyrir það. Það er verið að gera úttekt á starfsemi RARIK. Ég get ekki dæmt um í hvaða stað kemur niður að sinni. Ég bind þó fastlega vonir við að það muni leiða til sparnaðar. RARIK hefur látið af hendi eða öllu heldur öðrum hafa verið fengin ýmis stór verkefni og umsvif sem RARIK hafði áður með höndum og fyrir því er það líka að draga má úr útgjöldum fyrirtækisins væntanlega. Um þetta get ég þó ekki frekar sagt eins og ég segi nú, en ég bind þó vonir við að fyrir fjármunum RARIK verði séð.
Um jöfnun húshitunarkostnaðarins ræddum við á dögunum, og auðvitað á umr. um þetta efni heima við umr. um fjárlög fyrst og fremst, þó mun ég vafalaust geyma mér aðalumræðu um það fram til 3. umr. Þessi mál eru öll í athugun. Ég rifjaði hér upp hver hefði verið afstaða Sjálfstfl. í þessum málum. Afstaða málflytjenda Sjálfstfl. hefur ekkert verið leyndarmál. Þeir héldu henni fast fram á sínum tíma og fram til þessa dags og héldu því fast að hv. fyrirrennara mínum hver skylda hans væri í þeim efnum. En málin horfa kannske ofurlítið öðruvísi við af hans sjónarhóli í dag en fyrir ári. Hv. þm. Hjörleifur Guttormsson flytur till. um að orkujöfnunargjaldið verði 420 millj. kr. Ef við leggjum saman það sem ætlað er til niðurgreiðslu rafhitunar og olíukyndingar er það samtals 291 millj., en í fyrra sá hann af 35 millj. til niðurgreiðslu í sínu frv. og 29 til olíuverðsniðurgreiðslu. Og þótt þeir hafi nú kynt sæmilega verðbólguna standast ekki þessar tölur á. En eins og ég segi: það er kannske auðveldara um vik að útvega þessa fjármuni núna en var meðan hann réði.
Við héldum því fram að 1.5 söluskattsstig hefði verið á þessu fjárlagaári 214–216 millj. kr. Fyrir því var það að við myndun ríkisstj. var bætt við til þessara þarfa 150 millj. kr. Á árinu hafa því verið til ráðstöfunar 216.5 millj. ef ég man rétt nákvæmlega. Og hefur því fé ekki alveg enn öllu verið ráðstafað, en því sem ekki yrði tekið til þessara þarfa nú myndi þá verða bætt við tölur á næsta ári, þannig að það verður ekki gengið á bak þeim loforðum að þessar 150 millj. í viðbót renni til þessara þarfa. Það er ýmislegt í athugun í þessu sambandi. Orkuverðsnefnd hefur starfað. Hún hefur nýverið skilað mjög ítarlegum till. og strax í jólahléi verður hafist handa um að móta og mynda framtíðarstefnu í þessum sökum.
Á þessu stigi málsins kýs ég ekki að ræða þetta mál frekar. Ég sé að hv. 3. þm. Vestf. á ásamt hv. 5. landsk. þm. till. undir öðrum lið um hækkun til þessara þarfa –lið sem er um olíuniðurgreiðslur. (Gripið fram í: Við ætlum að breyta þessu. Þetta á ekki að fara til olíu.) Ja, það er nú flutt á þeim lið, sé ég er. (Gripið fram í: Nei, nei.) Það getur vel verið. En ég skal ekkert um það dæma, kemur kannske í einn stað niður að þeir skíra það öðru nafni en það er flutt við lið sem heyrir undir annað rn. a.m.k., viðskrn., en kemur e.t.v. í einn stað niður. Það liggur alveg ljóst fyrir t.a.m. hverju fulltrúar og talsmenn Sjálfstfl. hafa lýst yfir í þessum efnum. Þeir hafa haldið fast við að til þessara þarfa ætti að hverfa 1.5 söluskattsstig sem nú er ekki reiknað með eftir nýjustu upplýsingum að nemi 420 millj. eins og getið er um í fjárlagafrv. heldur 470 eða svo menn fari nákvæmlega í sakirnar 471 millj. kr.
Eins og menn sjá á fjárlagafrv. hefur ekki orðið samkomulag um það enn þá að verja slíkri fjárhæð til þessara þarfa. Það liggur alveg ljóst fyrir, og ég get ekki nú spáð neinu um framhaldið í því. En það mun koma í ljós áður lýkur nösum. (Gripið fram í: Ríkisstj.? Já.