14.12.1983
Sameinað þing: 32. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1810 í B-deild Alþingistíðinda. (1493)
1. mál, fjárlög 1984
Ingvar Gíslason:
Það er aðeins eitt atriði þarna. Ég mun greiða atkv. með þessum tillögum öllum nema till. sem er nr. 47, þar hef ég gert aths. hvað varðar Listskreytingasjóð. Ég gerði það í ræðu í gær. Ég tel að því miður hafi fjvn. ekki að fullu lokið störfum sínum um athugun á rétti Listskreytingasjóðs og vil beina því til hv. nefndar enn að taka það málefni sérstaklega til athugunar. Því mun ég sitja hjá við atkvgr. ef þetta verður borið allt fram í einu lagi.