14.12.1983
Sameinað þing: 32. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1811 í B-deild Alþingistíðinda. (1495)

1. mál, fjárlög 1984

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Hv. formaður fjvn. Lárus Jónsson sagði í lok greinargerðar sinnar hér að Þróunarstofnunin hefði fengið það sem eðlilegt væri. Íslendingar hafa skuldbundið sig á alþjóðavettvangi til að leggja fram ákveðinn hluta af þjóðartekjum sínum til þróunar þeirra þjóða sem fátækastar eru í heiminum, þar sem tugþúsundir barna deyja úr hungri í hverri viku. Íslendingar eru nú í langneðsta sæti allra þróaðra ríkja hvað þetta snertir. Við erum ein þjóða svo langt undir þessu marki að það er vansi okkar á alþjóðlegum vettvangi. Þess vegna getur það framlag sem lagt hefur verið til að Þróunarstofnunin fái á engan hátt verið eðlilegt. Það er mjög óeðlilegt miðað við þær alþjóðlegu skuldbindingar sem við höfum gengist undir og miðað við þann siðgæðisþrótt sem Íslendingar gera tilkall til í samfélagi þjóðanna. Þess vegna er sú upphæð sem tilgreind er langt undir því marki sem við höfum ákveðið að lofa. Í ár er horfið frá þeirri stefnu sem mörkuð var á undanförnum árum að reyna að hækka hlut okkar smátt og smátt í áföngum. Ég segi já.