14.12.1983
Efri deild: 30. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1817 í B-deild Alþingistíðinda. (1512)

Um þingsköp

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Ég hef ákveðið að fresta þessum fundi í hálftíma, þar til kl. korter fyrir fjögur. Það stendur þannig á um annað mál á þessari dagskrá að það hefur verið óskað eftir að því verði frestað, svo ég held að það sé þá gott að fresta fundi nú þar til korter fyrir fjögur. Þá gefst mönnum væntanlega kostur á að kynna sér betur þetta frv. og verða þá betur undir það búnir að taka það til 1. umr.