14.12.1983
Efri deild: 30. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1817 í B-deild Alþingistíðinda. (1515)
149. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Félmrh. (Alexander Stefánsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breyt. á lögum nr. 73 26. nóv. 1980, um tekjustofna sveitarfélaga.
Skv. ákvæðum 8. mgr. 26. gr. gildandi laga um tekjustofna sveitarfélaga skulu fjárhæðir þær sem um ræðir í 1., 2. og 7. mgr. 26. gr. þeirra laga breytast í samræmi við skattvísilötu eins og hún er á hverjum tíma, sbr. 121. gr. laga nr. 40/1978 með síðari breytingum. Í 9. gr. frv. til l. um breyt. á lögum nr. 75/1981, um tekju- og eignarskatt, sem nú er hér í meðförum Alþingis sem 129. mál, kemur fram að lagt er til að 121. gr. þeirra laga verði breytt á þann veg að skattvísitala verði ákveðin í fjárlögum ár hvert, í fyrsta sinn í fjárlögum fyrir árið 1985. Verði umrædd grein frv. að lögum er ljóst að engin skattvísitala mun gilda skv. 121. gr. skattalaganna á árinu 1984.
Með hliðsjón af því er því nauðsynlegt að breyta fjárhæðum skv. 1., 2. og 7. mgr. 26. gr. gildandi laga um tekjustofna sveitarfélaga á þann veg, að ákvarðaðar verði nýjar grunnfjárhæðir í þessum mgr. í stað gildandi fjárhæða, sem eru skv. gildandi lögum í gömlum krónum, með hliðsjón af því, sem fram hefur komið, að skattvísitala hefur hækkað skv. gildandi lögum um 54%.
Eins og kemur fram í aths. við einstakar greinar frv. eru gefnar skýringar á hvernig þessar grunntölur eru fengnar. Ég minnist hér á í 1. gr. að fjárhæðin 35 þús. kr. (þ.e. í gömlum krónum) eða 350 nýkrónur nam við álagningu útsvara 1983 1 159 kr. Með hliðsjón af 54% hækkun skattvísitölu hefði fjárhæðin átt að breytast í 1 785 kr. Fjárhæðin er hins vegar sett örlítið hærri eða 1 800 kr. í þessu frv. og hliðstætt er um aðrar tölur. Þessi mismunur er rökstuddur af skattayfirvöldum með því að nauðsynlegt sé að láta standa á heilum tug króna vegna þeirrar tölvunotkunar sem hér um ræðir.
Herra forseti. Ég tel ekki ástæðu til að fjalla nánar um þetta. Ég vil aðeins geta þess, um leið og ég þakka hv. deild og virðulegum forseta fyrir að taka þetta mál á dagskrá, að ég óska eftir vinsamlegri afstöðu hv. þm. og bið þá að stuðla að því að þetta frv. fái afgreiðslu hér á hv. Alþingi jafnhliða afgreiðslu á frv. um breyt. á lögum um tekju- og eignarskatt. Ég held að það sé mjög nauðsynlegt til þess að forða að ósamræmi þurfi að verða í ákvarðanatöku um álagningu gjalda á árinu 1984.
Ég óska svo eftir því að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. félmn. Ed.