14.12.1983
Efri deild: 30. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1828 í B-deild Alþingistíðinda. (1531)

133. mál, gjaldeyris- og viðskiptamál

Skúli Alexandersson:

Virðulegi forseti. Ég á ekki gott með að skilja skoðun hv. 5. landsk. þm. á að það sé óeðlilegt að bera saman þá umr. sem á sér stað núna í Nd. og þá umr. sem á sér stað hér. Hv. 5. landsk. þm. var reyndar ekki inni þegar é var að halda ræðu mína áðan. (EG: Ég heyrði nóg.) Ég var að taka af heilhug undir ræðu hv. 3. þm. Vesturl. og hv. 3. þm. Norðurl. v. um nauðsyn þess að sinna þessari gjaldeyrisþjónustu betur. En ég leyfði mér í leiðinni að benda á að frjálsræðið sem væri verið að boða í þessum málum væri nokkuð merkilegt og sérstakt hvernig það skaraðist við það mál sem væri verið að ræða í hinni deildinni án þess að ég færi efnislega í einum eða neinum máta að tengja það þessu máli — nema að þar væri um takmörkun að ræða, en hér um aukið frelsi. Ég hef ekki lýst mig andstæðan þessu frv. í einu einasta orði, en sagði þó að ég liti svoleiðis á, að þegar vandræði væru í þjóðfélaginu, og ég endurtek það, mætti kannske spara í því að lofa Borgfirðingum, sem hafa engin gjaldeyrisviðskipti í sparisjóðnum í Borgarnesi, að leggja það á sig enn um tíma að fara niður á Akranes til að gera þetta eða þeim á Hvammstanga að fara í Búðardal eða til Blönduóss. Stærri voru ekki orðin.

Hv. 5. landsk. þm. fór að blanda vissri málefnalegri umr. við það mál sem verið er að ræða í Nd., að það hefði jafnvel mátt afla gjaldeyris á ódýrari hátt og ógætileg meðferð hefði átt sér stað á gjaldeyri á undanförnum árum. Ekki ætla ég að bera á móti því og tel hann ekki hafa farið með rangt mál eða óeðlilegt mál í þessum ræðustól þó að hann hafi jafnvel leyft sér að nefna þátt úr því máli sem við eigum eftir að fá hingað í þessa hv. deild, en nú er til umr. í Nd.