24.10.1983
Efri deild: 8. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í B-deild Alþingistíðinda. (155)
8. mál, ráðstafanir í sjávarútvegsmálum
Stefán Benediktsson:
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að vera langorður. Það er aðeins eitt atriði sem mig langar til að verði fært til bókar.
Hæstv. sjútvrh. kynnti hér aðgerðir til aðstoðar sjávarútvegi og að markmið þessara aðgerða væri fyrst og fremst tekjuaukning, þ.e. að jafna bilið milli tekjuaukningar og kostnaðaraukningar þar sem kostnaðaraukning hafi verið meiri en tekjuaukning, og eigi þessar ráðstafanir að færa útgerðinni annars vegar auknar tekjur þrátt fyrir minnkandi afla og hins vegar hluti þeirra að minnka kostnað, sem þó fer vaxandi. En það sem maður þó endanlega heggur hvað helst eftir er það, að núna, tæpum fjórum mánuðum eftir að þessum aðgerðum var hleypt af stokkunum, fer að heyrast sami tónn sem heyrst hefur ansi oft áður og nokkuð óslitið undanfarin ár, þ.e. staðan var enn verri en menn gerðu sér grein fyrir og því miklu lakari nú en menn gat órað fyrir, þ.e. afli hefur minnkað og kostnaður hefur vaxið. Þetta segir okkur í sjálfu sér ekkert annað en það, að aðgerðir af því tagi sem hér er verið að ræða um, jafnvel þó skynsamlega sé með farið, — ég er sammála hv. 3. þm. Vesturl. um að ráðstöfun gengismunarins sem slík er líklega með því skynsamlegasta sem maður hefur séð á undanförnum árum, — eru bara hluti af aðgerð sem endar alltaf með því að vera gagnslaus. Hún kallar á endurtekningar sams konar aðgerða í sífellu með mismunandi löngum hléum á milli, en á meðan ekki er eitthvað annað að gert er þetta ein af þessum mörgu eilífðarvélum sem stillt hefur verið upp í okkar þjóðlífi og ekki virðist hægt að stöðva.
Ég sé að hæstv. fjmrh. er ekki hér í salnum. Ég hafði reyndar spurningu til hans. Heldur þú að hann sé í húsinu? (Gripið fram í: Hann er að tefla.) Hann er að tefla. Mig langaði til þess að spyrja hæstv. fjmrh. spurningar. (Forseti: Ég skal athuga hvort hægt er að ná í hæstv. fjmrh.) Mér skilst nefnilega að hann hafi fyrir skömmu stungið upp á mjög einfaldri lausn á þessum heildarvanda öllum og ég ætlaði að fá svar við því hvort rétt er eftir haft.
Það er eitt í þessari umr. allri sem kannske hljómar svolítið kynlega í eyrum fólks. Menn hafa vanið sig á ákveðið orðalag, sem horfir svolítið fram hjá raunveruleikanum. Menn tala um álögur, sem lagðar séu á tiltekna atvinnugrein, rétt eins og þessir hlutir detti af himnum ofan. Auðvitað eru menn í þessu landi að vissu leyti frjálsir að vali á hlutskipti sínu, alla vega hvað innlend vandamál snertir.
Við erum að ræða, hæstv. fjmrh., um aðgerðir til hjálpar sjávarútvegi og mig langaði, með leyfi forseta, að spyrja hvort það er rétt eftir fjmrh. haft að hann hafi á fundi í Vestmannaeyjum um helgina hvatt til þess að menn byrjuðu á nýjum grunni, horfðu til framtíðar, og sagt sem svo, að skuldir sjávarútvegsins væru ekkert vandamál, það væri einfaldlega hægt að strika þær út.