24.10.1983
Efri deild: 8. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 201 í B-deild Alþingistíðinda. (156)

8. mál, ráðstafanir í sjávarútvegsmálum

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Fjarvera mín héðan úr deildinni skýrist á því, að ég var beðinn um að vera viðstaddur í Nd. Ég biðst afsökunar á því.

Það er rétt, að á fundi sem haldinn var í Vestmannaeyjum í gær voru vandamál sjávarútvegsins nokkuð rædd, en orð sem ég viðhafði þar var ekki hægt að skilja þannig, að skuldir sjávarútvegsins væru ekkert vandamál. Það er alveg þveröfugt. Ég talaði um að skuldir sjávarútvegsins væru mjög mikið vandamál, en þessi vandamál, ef ég endurtek nokkurn veginn orðrétt það sem ég sagði í Vestmannaeyjum, eru á þann veg, að ef við horfum til sjávar og ef við horfum til fiskimannanna á fiskimiðunum, sem bera undirstöðuauð að allri velmegun á Íslandi að landi, og ef við horfum á sama tíma á vinnslustöðvarnar verðum við þess fljótt áskynja við athugun á undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar og undirstöðunni undir velmegun þjóðarinnar að þessi fyrirtæki eru meira og minna í vandræðum. Skuldir hlaðast upp af stofnkostnaði og reksturinn stendur ekki undir útgerðinni.

Ef við aftur á móti snúum baki í það sem er verðmætaskapandi með þjóðinni og horfum til lands, þá sjáum við afraksturinn af þeim þjóðarauði sem hafið hefur gefið okkur. Við sjáum velmegunina, við sjáum land og þjóð rísa úr þeim rústum sem við þekktum sem vorum að koma á vinnumarkaðinn rétt fyrir síðari heimsstyrjöldina. Þar er sá auður falinn sem undirstöðuatvinnuvegur þjóðarinnar hefur skapað okkur. Það er það furðulega að sjávarútvegurinn sjálfur skuli vera í vanda, þar sem stofnframlög í fyrirtækjum og uppbygging á þeim hleður á sig kostnaði af vöxtum og afborgunum á meðan þjóðin lifir við allsnægtir.

Þess vegna lét ég þau orð falla, að einhvern tíma hlyti að koma að því að djarfar ákvarðanir yrðu teknar, sem varða þennan undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar, sem er sjávarútvegurinn, og hvort ekki væri tímabært nú eða hvort það þyrfti að bíða eftir kjarkmeiri stjórnmálamönnum til að viðurkenna þessa staðreynd og gera upp við opinbera sjóði á þann veg, að það verði hægt að byrja á nýjum grunni í sjávarútveginum. Á ég þar við að strika út með einu pennastriki allar þær skuldir og kvaðir sem hvíla á sjávarútveginum í opinberum sjóðum en því sem hefur safnast upp í rekstrarskuldum yrði sjávarútvegurinn að sjá fyrir sjálfur.