15.12.1983
Sameinað þing: 33. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1870 í B-deild Alþingistíðinda. (1576)

132. mál, niðurfelling söluskatts af raforku

Flm. (Þórður Skúlason):

Herra forseti. Á þskj. 167 hef ég ásamt þrem öðrum þm. Alþb. borið fram till. til þál. um niðurfellingu söluskatts af seldri raforku. Tillgr. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að hlutast til um að felldur verði niður söluskattur af seldri raforku.“ Rafmagnsmálin hafa tekið töluverðan tíma af þessu þinghaldi og af eðlilegum ástæðum hefur mest umfjöllun orðið um orkuverðið og orkusöluna. Goðsögnin um lágt raforkuverð á Íslandi, sem lengi hefur verið haldið að landsmönnum er nú hætt að vera trúverðug, enda staðreyndirnar allt aðrar. Svo er a.m.k. um þá orku sem ekki er seld til stóriðju en landsmenn sjálfir þurfa að kaupa til atvinnurekstrar og heimilisnota.

Allir virðast sammála um að raforkuverðið sé óeðlilega hátt, en um orsakirnar greinir menn frekar á, enda verða þær ekki raktar hér. Þó verður ekki hjá því komist að minna á það, sem leitt hefur verið í ljós með glöggum dæmum undanfarið, að mismunur á raforkuverði til stóriðju og til annarra nota er miklum mun meiri hér á landi en í nálægum löndum. Ein leiðin til lækkunar á raforkuverði til almennings er því sú, að minnka þennan mun með endurskoðun samninga eða einhliða ákvörðun um stórhækkun á raforkuverði til ÍSALs, eins og bent hefur verið á. Því miður hafa stjórnvöld ekki borið gæfu til að standa saman um slíka aðgerð og því miður benda umr. hér á Alþingi núna á allra síðustu dögum engan veginn til þess að stjórnvöld hyggist nú sækja fram af þeirri einurð og þeirri festu sem nauðsynleg er til að ná fram viðunandi orkuverði til álversins. Því er alls ekki útlit fyrir að í fljótheitum dragi svo saman með orkuverði til stóriðju annars vegar og almennra nota hins vegar sem nauðsyn er á.

Við samanburð á raforkuverði hérlendis og í nálægum löndum kemur í ljós að víðast hvar erlendis er raforka ódýrari en hér á landi, þrátt fyrir að talið sé að skilyrði til raforkuframleiðslu hér séu hagstæð. Þetta kom m.a. fram í sjónvarpsþætti nú í haust en þar var sýnt með skýrum dæmum að víðast í nálægum löndum greiðir allur almenningur lægra verð fyrir raforku en hér á landi, enda þótt því sé haldið fram að þar séu skilyrði til raforkuframleiðslu lakari en hérlendis. Meðalverð á raforku er að vísu lægra hér en t.d. í Bandaríkjunum og Englandi, en ástæður þess eru fyrst og fremst þær, sem kunnugt er, að hér á landi dregur hið smánarlega lága verð á raforkunni til álversins meðalverðið stórlega niður. Í þessum samanburði vekur einnig mikla athygli að opinberar álögur á raforkuverðið eru mun hærri hér á landi en erlendis.

Miklar hækkanir raforkuverðs að undanförnu hafa m.a. leitt til þess, að einstakir notendur, einkum þeir sem nota mikið af orku, telja áhöld um hvort ekki borgi sig betur að framleiða raforku með dísilstöðvum á álagstoppum frekar en kaupa raforku frá samveitum. Gasolíulítrinn kostar nú 9.20 kr. Mér segja glöggir menn að með sæmilegum vélabúnaði sé hægt að framleiða 3 kwst. af rafmagni með 1 lítra af gasolíu eða fyrir 9.20 kr. Hins vegar kosta 3 kwst. á RARIK-taxta nú 12.96 kr. Að vísu vantar þá inn í dæmið afskrift véla, viðhald og þess háttar, en verðsamanburðurinn er innlendu raforkunni allt of óhagstæður til að viðunandi geti talist.

Í þessu sambandi má nefna að veitingahúsaeigendur í Reykjavík eru nú farnir að nota gas til eldunar og nýleg athugun á kostnaði við upphitun skipa í höfnum hefur leitt í ljós að ódýrara er talið að keyra dísilstöðvar um borð í skipunum en tengja þau við raforkukerfi í landi. Ljóst er því að hið háa raforkuverð hérlendis er ekki lengur samkeppnisfært við erlenda orkugjafa, gas og olíu, og farið að leiða til gjaldeyrissóunar sem auðveldlega mætti komast hjá með endurskoðun og lækkun á raforkuverðinu.

Fiskiðnaðurinn, almennur iðnaður og aðrir innlendir atvinnuvegir búa nú við mun hærra raforkuverð en erlend samkeppnisfyrirtæki. Raforkan er veigamikill hluti aðfanga í atvinnurekstri og því skiptir miklu máli og getur raunar ráðið úrslitum um samkeppnisaðstöðuna að innlendi iðnaðurinn búi við sem líkast raforkuverð og erlendu samkeppnisfyrirtækin.

Raforkukostnaðurinn verður sífellt hærra hlutfall af rekstrarkostnaði sveitarfélaga, hitaveitna og annarra stofnana og fyrirtækja í landinu. Skemmst er að minnast þess, er lokað var fyrir raforkusölu til heimavistarskóla á Norðurlandi nú í haust vegna þess að sveitarfélagið gat ekki greitt raforkureikningana. Litlu lengri tími er hins vegar liðinn síðan lokað var fyrir alla raforkusölu til heils bæjarfélags vegna þess að fyrirtæki í bænum gátu ekki borgað raforkureikningana á tilsettum tíma.

Alvarlegasti hluturinn í sambandi við hið háa raforkuverð er samt sá, hve það er að verða stór hluti af rekstrarútgjöldum heimilanna í landinu. Þar sem raforkan er notuð til upphitunar húsa auk annars er raforkukostnaðurinn að verða gersamlega óbærilegur. Algeng dæmi eru t.d. um að bændur greiði 7–9 þús. kr. á mánuði fyrir raforku, sem þá er einnig notuð til upphitunar. Orkukostnaður meðalheimila í þéttbýli, sem þá nota aðra orkugjafa til upphitunar, hefur hækkað sem svarar a.m.k. 10 þús. kr. á ári sé miðað við hækkanir síðustu 6 mánaða. Hár raforkukostnaður er því augljóslega stór þáttur í þeirri búseturöskun sem nú á sér stað á landsbyggðinni. Það á auðvitað alveg sérstaklega við um þá staði þar sem ekki er um aðra kosti að velja til upphitunar húsa en gasolíu eða raforku, eins og víðast á Vestfjörðum og Austfjörðum og í sveitum landsins. Á þessum svæðum er mikill raforkukostnaður þegar farinn að leiða til fólksflótta.

Orkustofnun hefur birt yfirlit yfir raforkuverð á árinu 1983. Þar kemur fram að taxti RARIK hækkaði frá janúar til ágúst á þessu ári um 92.8%. Þessi gífurlega hækkun á raforkuverði að undanförnu, langt umfram almennar verðlagshækkanir, að ekki sé talað um hækkun kaupgjalds á sama tíma, leiðir til þess að nú þegar verður að grípa til samræmdra aðgerða til að draga úr þeim óhóflega kostnaði sem er að sliga raforkunotendur.

Þegar raforkuverðið á Íslandi er orðið hærra en í flestum nálægum löndum; þegar áhöld eru um hvort erlendir orkugjafar eins og olía eru ekki hagkvæmari í vissum tilvikum; þegar raforkuverðið er víða orðið ofviða heimilisrekstri og atvinnuvegum og farið að leiða til búseturöskunar, þá er að dómi flm. þessarar þáltill. óhæfa að spenna það enn hærra með því að leggja á það söluskatt til ríkissjóðs. Hafa ber jafnframt í huga að söluskatturinn, sem reiknaður er í prósentum, eykur enn á þá mismunun sem er á gjaldskrám orkuveitna.

Því er hér með þessari þáltill. lagt til að söluskattur verði felldur niður af seldri raforku. Það er einföld leið, sem kemur þeim helst til góða sem búa við hæst orkuverð og kaupa mesta orku, en auðvitað njóta allir raforkunotendur þeirrar lækkunar er af niðurfellingu söluskattsins leiðir. Mesta áherslu leggja flm. á að felldur verði niður söluskattur af raforku til heimilisnota svo og raforkusölu til búrekstrar.

Í nútímaþjóðfélagi er raforka til heimilisnota jafnsjálfsögð og nauðsynleg og matvara til framfærslu. Niðurfelling söluskatts af raforku er þess vegna hliðstæð aðgerð og staðið var að fyrir nokkrum árum þegar söluskattur var felldur niður af landbúnaðarvörum og kemur verst settu fjölskyldunum og þeim lægst launuðu í þjóðfélaginu fyrst og fremst til góða. Auk þess er lækkun raforkuverðs til framleiðslufyrirtækja raunhæf aðgerð til að efla innlendan iðnað og innlenda framleiðstu í samkeppni við erlenda. Lækkun raforkuverðs ætti einnig að geta leitt til lækkunar á verði annarrar orku, t.d. er raforkukostnaður vegna dælingar á vatni stór hluti af rekstrarkostnaði hitaveitna sem margar hverjar berjast í bökkum fjárhagslega.

Álagning söluskatts á raforku hefur vafalítið verið nauðsynleg og viðunandi ráðstöfun á sínum tíma þegar raforkuverðið var lægra og söluskatturinn einnig. Þá má benda á að söluskatturinn veldur mismunun milli fyrirtækja og atvinnugreina eftir því hve raforka er mikill hluti framleiðslukostnaðar. Og hann veldur mikilli mismunun milli innlendra og erlendra samkeppnisfyrirtækja sem ekki þurfa að búa við þvíumlíka skattheimtu á raforku.

Eins og nú er háttað verðlagningu á raforku í landinu og eins og þróun raforkuverðsins hefur orðið, tæplega 93% hækkun á 6 mánuðum á þessu ári, er þessi skattheimta, álagning söluskatts á raforku, bæði óeðlileg og skaðleg. Í því sambandi er full ástæða til að minna á yfirlýsingar núv. stjórnvalda frá því fyrir kosningar um lækkun skatta.

Á þetta er minnst hér vegna þess að ef í alvöru er verið að íhuga lækkun skatta má benda á að sú skattalækkun sem hér er lögð til, niðurfelling söluskatts af raforku, er mjög auðveld í framkvæmd. Slík skattalækkun kemur efnaminna fólki sérstaklega til góða því að raforkunotkun til heimilisnota, eldunar, þvotta o.þ.h., fer ekki eftir efnahag heldur t.d. miklu frekar eftir fjölskyldustærð. Og allar fjölskyldur í landinu þurfa að nota raforku til heimilishalds.

Niðurfelling söluskatts af öðrum töxtum mundi létta verulega skattbyrði framleiðslufyrirtækja og gera þau hæfari í harðari samkeppni við erlenda framleiðendur. Auk þess yrði rekstrarkostnaður ýmissa þjónustufyrirtækja, m.a. opinberra stofnana, skóla, sjúkrahúsa o.þ.h., verulega léttari.

Komist ríkissjóður hins vegar ekki af án þessarar skattheimtu verður að afla honum tekna með öðrum hætti. Því eru flm. þessarar till. reiðubúnir að standa að breytingu á skattheimtu, þannig að ríkissjóður verði ekki fyrir verulegu tekjutapi við niðurfellingu söluskatts af raforku, enda er tilgangurinn með niðurfellingunni fyrst og fremst sá að létta álögum af raforkunotendum. Í því sambandi mætti m.a. athuga hækkun á almennum söluskatti eða öðrum sköttum sem ekki leggjast á brýnustu nauðsynjar.

Flm. er ljóst að þessi aðgerð til lækkunar raforkuverðs er aðeins fyrsta spor í rétta átt og áfram verður að leita allra leiða til að lækka raforkuverðið, ekki síst til heimilisnota.

Ég vil svo að lokum þakka hæstv. forseta þá velvild að gefa mér tíma til að mæla hér fyrir þessu máli í önnum þingsins nú fyrir jólahald. Ég legg til að að umr. lokinni verði þessari till. vísað til allshn.