15.12.1983
Neðri deild: 27. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1882 í B-deild Alþingistíðinda. (1603)
Umræður utan dagskrár
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Ég hef kvatt mér hljóðs utan dagskrár vegna fréttar sem dagblaðið Þjóðviljinn birti í gær og tekin er upp í fleiri dagblöðum í dag um meintan ólöglegan kjötinnflutning til landsins, jafnvel í stórfelldum mæli. Skv. upplýsingum frá tollgæslunni, sem birtast í einu dagblaðanna í dag, hefur gæslan lagt hald á 225 kg af smygluðum kjötvarningi í verslunum og veitingahúsum það sem af er þessu ári og um 1300 kg af erlendu kjöti um borð í skipum, sem munu að verulegu leyti hafa verið tilraunir til smygls.
Þessar upplýsingar eru einar út af fyrir sig áhyggjuefni, ekki síst í ljósi þess að ætla má að slíkar tölur gefi fremur vísbendingu um svofellt athæfi en að vera endanlegar upplýsingar um magn á nokkurn hátt. Við þetta bætist svo þrálátur orðrómur um miklu stórfelldara smygl á kjötvörum af hálfu aðila sem nota slíkan varning í miklu magni.
Það er ljóst að slíkur ólöglegur innflutningur á kjötvörum brýtur í bága við þá stefnu okkar að framleiða sjálfir landbúnaðarvörur til eigin nota að sem mestu leyti. Þetta er einnig í hróplegu ósamræmi við greiðslu útflutningsuppbóta og andstætt íslenskum hagsmunum. En síðast en ekki síst er slíkt athæfi stórhættulegt með tilliti til sóttvarna.
Í fljótu bragði virðist slíkur ólöglegur innflutningur brjóta í bága við a.m.k. 5–6 mismunandi lagabálka, þ.e. lög um sóttvarnir, lög um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, lög um tollheimtu og tolleftirlit, lög um varnir við gin- og klaufaveiki og lög um Framleiðsluráð landbúnaðarins.
Herra forseti. Þar sem nú vill svo vel til að einn og sami maðurinn, hæstv. ráðh. Jón Helgason, fer bæði með landbúnaðar- og dómsmál beini ég þeim tilmælum til hæstv. ráðh. að hann hlutist án tafar til um opinbera rannsókn á því hvort slíkur ólöglegur innflutningur hafi verið stundaður í stórum stíl undanfarin ár og þá af hverjum. Einnig þarf að athuga með hvaða hætti sé unnt að tryggja í framtíðinni að slíkt geti ekki átt sér stað. Ég held, herra forseti, að það sé öllum fyrir bestu að fram fari nú þegar rækileg athugun á þessu máli fyrir opnum tjöldum. Það er einnig þeim fyrir bestu sem nú liggja undir ásökunum í þessu sambandi að málið verði kannað, en í hópi þeirra sem bönd hafa borist að í þessum efnum eru hótel hér í Reykjavík og veitingastaðir, áhafnir á millilandafarskipum svo og aðilar í kringum Keflavíkurflugvöll.