15.12.1983
Neðri deild: 27. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1886 í B-deild Alþingistíðinda. (1606)

Umræður utan dagskrár

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Ég saknaði þess í svari hæstv. ráðh. að hann vék ekki að því, sem þó hefur komið fram í blöðum, að í septembermánuði skrifaði Framleiðsluráð landbúnaðarins ráðh. sérstakt bréf, sem Gunnar Guðbjartsson undirritaði. Það var sagt frá því að ráðh. hefði verið skrifað þetta bréf, sem er mér vitanlega hið eina formlega erindi sem ráðh. hefur borist frá bændasamtökunum um þetta efni. Í þessu bréfi er sagt að bændur og fleiri menn fullyrði að smyglað kjöt berist til landsins, aðallega með skipum. Enn fremur er fullyrt að miklu af búvörum sé smyglað af varnarliðsmönnum út af Keflavíkurflugvelli undir því yfirskini að þær fari til neyslu varnarliðsmanna búsettra utan flugvallarsvæðisins. Mér er einnig kunnugt um að aðrir fulltrúar Framleiðsluráðs landbúnaðarins hafa sent frá sér greinargerðir og bréf til opinberra yfirvalda þar sem mjög ítarlega er rakinn rökstuddur grunur um sölu á erlendu nautakjöti og sérstaklega nefnt að eitt veitingahús hér í borginni — hótel hér í borginni — sé grunað um stórfellt misferli í þeim efnum. Það vakti athygli að í upptalningu á þeim stöðum sem hæstv. ráðh. las upp hér áðan er ekki nefnt það hótel og veitingahús sem aðallega hefur verið nefnt í þessari umr., þ.e. Hótel Saga. Það er satt að segja mjög sérkennilegt að þegar tollgæsluembættið gerir leit að smygluðu kjöti á fjölmörgum stöðum, ýmsum minni háttar matsölustöðum hér í borginni, skuli stærsta hóteli höfuðborgarinnar, sem vitað er að orð hefur leikið á um þetta efni, vera sleppt. Ég vil þess vegna ítreka hvort það hafi verið rétt eftir tekið í svari hæstv. ráðh. áðan að Hótel saga hafi ekki verið á lista yfir þá staði sem fulltrúar tollgæsluembættisins heimsóttu, en það varð tilefni ráðh. til þess að nánast lýsa því yfir að fleira hefði nú ekki verið aðhafst í þessu máli né væri ætlunin að aðhafast neitt fleira. Ég vil þess vegna spyrja hæstv. ráðh.: Var það rétt eftir tekið að Hótel Saga hefði ekki verið á þeim lista? Í öðru lagi: Hvað hefur hæstv. ráðh. gert sérstaklega í framhaldi af því erindi sem Framleiðsluráð landbúnaðarins sendi honum formlega í septembermánuði s.l.? Í þriðja lagi: Hefur hæstv. landb.- og dómsmrh. kynnt sér þær kærur sem Framleiðsluráðið hefur sent til Rannsóknarlögreglu ríkisins? Finnst hæstv. landbrh. ekki ástæða til þess að skarpara sé fylgt eftir þessu máli en hans svarræða gaf tilefni til að halda, að hann teldi málið hefði nú þegar verið kannað, það væri í raun og veru ekki neitt annað í undirbúningi af hans hálfu?