16.12.1983
Neðri deild: 28. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1945 í B-deild Alþingistíðinda. (1657)

143. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Í þeim umr. sem hafa farið fram frá því að ég mælti fyrir þeirri brtt. sem ég flyt ásamt Guðmundi Einarssyni og Kristínu Halldórsdóttur hafa í rauninni ekki komið fram nein mótrök við till. Ég þykist finna á ummælum manna að mönnum sé þetta form mun geðþekkara en það form sem er á upprunalegu tillögunni eins og hún lá hér fyrir. Það sem menn hafa helst fært fram sem mótbáru er að tíminn sé runninn frá mönnum, að menn séu orðnir of seinir. Ég tel ekki að þessi mótbára eigi rétt á sér. Ástæðan er ákaflega einföld og kom í nokkrum greinum fram hjá mér í framsögu fyrir brtt.

Í fyrsta lagi kann að vera mögulegt fyrir hæstv. ráðh. að flytja þá þáltill. sem hér um ræðir þegar að samþykktu þessu lagafrv., þ.e. fyrir jól, ef hann hefur gert upp hug sinn um hverjar meginreglur hann ætlar að nota eða vill beita sér fyrir að því er varðar framkvæmd stefnunnar. Er hugmyndin að miða við meðaltal seinustu þriggja ára eins og oft hefur heyrst nú eða fjögurra ára hugsanlega með einhverjum frávikum eða taka eitthvert tillit til annarra atriða? Ályktun um það með hvaða hætti sé hugmyndin að ákveða þessa skiptingu er það sem á að vera efni þáltill. Ekki er verið að biðja hæstv. ráðh. um að birta útreikning eða skrá yfir úthlutun á aflakvóta. Það er einungis verið að segja að meginreglan sem á að fylgja við úthlutun á aflakvóta sé orðuð, birt og skýrð í þáltill.

Sama gildir um það er varðar flutning eða framsal á þessum kvóta eða aflamarki milli skipa og hvaða meginskilyrðum það eigi að lúta.

Ef hæstv. ráðh. treystir sér hins vegar ekki til að flytja slíka till. nú að samþykktu lagafrv. eða telur á því of mikla meinbugi er ekkert því til fyrirstöðu að það gerist þegar í janúarmánuði. Hvað hefur gerst í millitíðinni? Jú, janúarmánuður hefur að vísu liðið. En þá er á þrennt að líta. Janúarmánuður er venjulega ekki mikill aflamánuður og ekki útlit fyrir það um þessar mundir. Í annan stað, við mótun svo veigamikillar stefnu sem hér um ræðir, geta menn ekki verið svo bundnir af almanaksárinu að það þurfi að ráða úrslitum. Ef menn vilja engu að síður að þetta fyrirkomulag nái til eins árs getur það allt eins verið frá 1. febr. til 1. febr.

Í þriðja lagi, í þessari brtt. eins og hún liggur fyrir, hefur ráðh. víðtækari heimildir en núna til að stjórna afla í janúarmánuði ef hann tetur þörf á því. Því að hann hefur möguleika til að ákveða hámark þess afla sem megi taka í janúarmánuði. Og í framhaldi af því að stöðva veiðar ef þær ætla að keyra úr hófi eða setja aðrar þær reglur sem duga til að hafa hemil á sókninni í þessum eina mánuði. Þess vegna get ég alls ekki fallist á það að tíminn banni að þessi brtt., sem mér virðist að mönnum sé að ýmsu leyti geðþekk, sé samþykkt og nýtt. Það er ekkert sem hindrar það að mínum dómi og sú mótbára að tíminn sé frá mönnum runninn getur ekki gilt í þessum efnum.

Í umr. um þetta mál hefur komið fram sú ósk að sjútvn. þessarar deildar eða beggja deilda, eftir því hvernig aðstæður eru, taki þessa brtt. og aðra brtt. frá Steingrími Sigfússyni o.fl. til umfjöllunar. Það er hefð fyrir því í þinginu að gera slíkt meðan á umr. stendur, það gera menn gjarnan. Í svo stóru máli sem hér um ræðir og með þeim sáttavilja sem ég tel að menn hafi lýst í þessu máli tel ég sjálfsagt að gera kröfu um að sú málsmeðferð verði notuð.

Ég heyrði að hæstv. forseti tók undir þessa ósk og gerði ráð fyrir að takast mætti að halda slíkan fund síðar í kvöld. Ég tel að það sé réttur háttur að halda slíkan fund fljótlega í kvöld áður en umr. er lokið og lýsi yfir því að ef sjútvn. vill koma með ábendingar og breytingar á þessari brtt. er ég fyrir mína parta reiðubúinn til að hlusta á öll rök í því efni.

Það verður líka að segjast að tillaga Steingríms Sigfússonar o.fl. er í verulegum greinum mjög svipuð þeirri brtt. sem ég hef mælt fyrir fyrir hönd okkar flm., Guðmundar Einarssonar og Kristínar Halldórsdóttur auk mín. Greinilegt er því að þm. hafa verið að leita í huga sér eftir formi sem væri af því tagi sem hér um ræðir. Æskilegast væri að menn gætu náð sem víðtækastri samstöðu um þetta mál og það form sem yrði notað og þá hlytu auðvitað báðar brtt. að koma til skoðunar einmitt með því hugarfari að reyna að ná samstöðu um efnisatriði mátsins.

Þetta vildi ég sérstaklega láta koma fram á þessum tíma í umr. vegna þess að e.t.v. kom það ekki nægilega skýrt fram hjá mér við framsögu fyrir till. Ég hygg þó að ég hafi getið þess að flm. væru opnir fyrir ábendingum og lagfæringum og reiðubúnir til að ræða þær ef fram kæmu. En ég flutti líka eindregna áskorun til þm. um að skoða vel hug sinn um þetta mál og hvort hér væri ekki a.m.k. í megindráttum fundinn sá flötur á málinu sem væri ákjósanlegur og ásættanlegur.

Mér sýnist að eftir að fram er komin sú till. frá Steingrími Sigfússyni o.fl. sem einmitt gengur í verulegum greinum í þessa átt hafi nauðsyn þess að menn legðu það á sig að fara í gegnum þetta gaumgæfilega aukist, eiginlega hafi með því og þeim umr. sem hafa farið fram í kvöld komið fram árétting á því að það væri nauðsynlegt og eðlilegt.

Svo að ég endurtaki einu sinni enn meginrökin fyrir þessari form- og efnisbreytingu sem ég gerði áður í framsöguræðu minni þá eru þau þessi: Það er eðlilegt og rétt þegar ráðh. er fengið það vald sem hér um ræðir að Alþingi fjalli þá um það og segi fyrir um og samþykki hverjar meginreglur skuli gilda varðandi notkun á því valdi. Menn hefðu hugsanlega getað sett það inn í lagagrein. Hér er hins vegar valið það form að setja það í þáltill. vegna þess að það er að sumu leyti liprara og gefur auk þess ráðh. tækifæri til að koma að fleiri atriðum ef hann svo vill því að eins og þetta liggur fyrir eru í þessari brtt. talin einungis lágmarksatriði. Ráðh. er frjáls að því, ef hann vill hafa fleiri atriði með, að taka þau með.

Þetta er eðlilegt og rétt af sjónarhóli Alþingis þegar það er að framselja mikið vald í stóru máli. En það er líka að mínum dómi mikilvægt fyrir ráðh., sem fer með þetta vald, að það hvernig því verði beitt í meginatriðum hafi hlotið umfjöllun á Alþingi og samþykki Alþingis þannig að Alþingi sé raunverulegur meðábyrgðaraðili, bakhjarl ráðh. í því hvaða grundvallarreglum sé beitt við úthlutun á aflakvótum. Í mínum huga er ótvírætt að betra sé bæði af sjónarhóli Alþingis og ráðh. að nota þessa málsmeðferð. Það er náttúrlega kjarni málsins. Og mér finnst ekki að menn eigi að telja sína tímaþröng svo mikla núna að þeir fórni þeim styrk sem í þessu er fólginn, bæði fyrir ráðh. og í rauninni fyrir þingið líka. Menn geta það ekki þegar það er ótvírætt að hægt er að hafa stjórn á veiðinni í stórum dráttum í einn mánuð til viðbótar eins og þetta frv. eða þessi brtt. er úr garði gerð, ef þeir þurfa á þeim mánuði að halda.

Að samþykktri þessari þáltill. er vald ráðh. hið sama og farið var fram á í upphafi. Framkvæmdin er á hendi ráðh. Ég tek undir það með hæstv. ráðh. að í svona máli á valdið að vera á hendi pólitísks aðila, það er hárrétt. Það á ekki að vísa því á einhverja stofnun úti í þjóðfélaginu. Pólitískur aðili, eins og ráðh. tók réttilega fram, á að bera ábyrgð á þessu, aðili sem gengur fram fyrir þjóðina með þessar ákvarðanir og á sitt undir því hvort hann hlýtur sitt umboð endurnýjað eða ekki.

En þá gildir líka það sama fyrir þingið og þm. Þess vegna er nauðsynlegt að þingið sé virkur þátttakandi í stefnumörkuninni með þeim hætti sem hér er gert ráð fyrir en skilji málið ekki eftir bara í höndum ráðh., eins og upprunalega frumvarpið sem hér liggur fyrir gerir ráð fyrir, þannig að menn séu ekki með eiginlegum hætti ábyrgir fyrir því hvaða meginreglur skuli gilda um fiskveiðistjórnina. Þetta er líka mjög mikilvægt atriði í mínum huga þegar farið er yfir þetta mál.

Í till. frá Steingrími Sigfússyni o.fl. er gert ráð fyrir að fyrir utan atriði sem eru af þessum toga verði sérstök ráðgjafarnefnd. Ég segi fyrir mína parta að ég hef ekkert við það að athuga að slík ráðgjafarnefnd sé sett á fót. En ég tel ekki að hún eigi að hafa úrskurðarvald í þessum mátum. Ég tel að úrskurðarvaldið eigi að vera hjá pólitískum aðila. Þetta er vettvangur sem menn geta skotið ágreiningsatriðum sínum til og fengið um þau umsögn og stuðning. Það er mjög mikilvægt fyrir aðila að hafa slíkan vettvang og vel má setja hann í lög. En hið endanlega ákvörðunarvald um framkvæmdaatriði tel ég að eigi ekki að fara til áfrýjunardóms sem er utan við þann ramma sem markast af lýðkjörnum fulltrúum sem bera pólitíska ábyrgð gagnvart þjóðinni og kjósendum í landinu.

Ég skal ekki, herra forseti, fara öllu fleiri orðum um þetta. En ég legg þunga áherslu á þau atriði sem ég hef hér nefnt. Menn mega ekki afsaka sig með tímaskorti, a.m.k. ekki eins og brtt. er frágengin af minni hálfu þar sem sjútvrh. getur hugsanlega samið slíka ályktun fyrir jól, alla vega í janúarmánuði og getur fyllilega haft stjórn á veiðunum í janúarmánuði. Við getum valið og samið um að þær skuli gilda til 1. febr. næsta ár ef svo vill verkast. Málið er of stórt til að við föllum í þá gryfju.

Í annan stað á hið pólitíska vald varðandi framkvæmdina að vera í höndum ráðh. í einstökum greinum. Stefnumörkunin á að vera í höndum þingsins og þingið á ekki að víkja sér undan því. Það er það sem þessi brtt. gengur út á.

Síðan skal ég að lokum einungis ítreka þá ósk sem ég vænti að verði orðið við og mér skilst að forseti hafi gert ráðstafanir til um, að þessi till. og sú till. önnur frá Steingrími Sigfússyni o.fl. sem flutt hefur verið í dag og mætt fyrir fari til umfjöllunar í sjútvn. þessarar deildar eða beggja deilda ef mögulegt er og þar starfi menn með því hugarfari að finna á þessu máli sem bestan flöt, þann flöt sem sé líklegur til víðtækari samstöðu.