24.10.1983
Neðri deild: 7. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 223 í B-deild Alþingistíðinda. (167)

11. mál, launamál

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Hér eru til umr. stór mál og stórar ákvarðanir, sem ríkisstj. fyrir sitt leyti tók strax við myndun hennar í maí s.l., en sem fyrst nú eru komin til kasta löggjafarsamkomunnar hvort eigi að staðfesta og framlengja með þeim hætti sem ríkisstj. ákvarðaði í brbl. frægu. Þau atriði sem mestu máli skipta í því sem hér er til umr. eru spurningin um mannréttindi í þessu landi, spurningin um vinnubrögð og samskipti þegnanna, hvernig framkvæmdavaldið í landinu kemur fram gagnvart almenningi, hvernig það beitir sínu valdi. Það er meginmálið sem tengist því frv. til l. um launamál sem hér er til umr.

Við erum hér að tala um spurninguna um það hvort hér eigi að ríkja mannréttindi, frelsi til frjálsra samninga, eða hvort ríkisvaldinu eigi að takast að skipa þeim málum með lagaboði einhliða eins og gert er með þessum brbl. Það er þetta sem er kjarni þeirrar umr. sem hér fer fram, þó að eðlilega blandist inn í hana afleiðingar af þessum ákvörðunum ríkisvaldsins, hvað það er sem skammtað er úr hnefa með ákvörðunum framkvæmdavaldsins, hvað það er sem alþýðuheimilum í landinu er ætlað til skipta af þjóðarframleiðslunni á gildistíma þessara laga ef staðfestingu hlytu.

Við stjórnarandstæðingar, talsmenn Alþb. þar á meðal, höfum staðhæft það að leita þurfi til einræðisríkja til þess að finna samanburð að viðlíka aðgerðum og hér hafa verið ákvarðaðar af ríkisstj. með þessum brbl. um launamál. Hæstv. forsrh. sem hér er að verja gerðir sínar, hvarf hins vegar til þess orðalags, sem ég held að hefði verið betra fyrir hann að láta ógert, að ræða um störf síðustu ríkisstj. í sambandi við viðleitni til að halda niðri verðbólgu með sléttum skiptum á árinu 1981 sem austantjalds- og Kóreu-slógön, eins og hann orðaði það, og skiptir þá kannske ekki máli hvort hann hefur verið að vitna til Kim Il Sungs eða þeirra sunnan við 38. breiddargráðuna. Ég held nefnilega að sú samlíking sem þarna er á ferðinni og upprifjun hæstv. forsrh. á samlíkingunni við austantjaldslöndin varðandi þær aðgerðir sem hann hefur staðið fyrir og þá lagasetningu sem hann hefur undirritað sé fyllilega réttmæt og — eins og það var orðað hér í umr. á Alþingi fyrir nokkrum dögum — að hér vanti ekki annað en hervaldið til að fylgja þessum aðgerðum eftir.

Við skulum ekki tala af léttúð um stefnumarkandi grundallaratriði eins og þau sem hér eru til umr. Ég held að það þurfi að vera íhugunarefni hér á löggjafarsamkomunni í tengslum við meðferð þessa máls hvort menn ætla að staðfesta þær gerðir framkvæmdavaldsins sem hér eru til umr. eða hvort menn ætla að taka upp þann stríðshanska sem ríkisstj. með forsrh. hæstv. í fararbroddi kastaði fram fyrir alþýðu þessa lands á vordögunum s.l.

Þeim spurningum hefur verið beint til hæstv. forsrh. hér í umr. af formanni Alþb. og fleirum hvort hann sé reiðubúinn að lýsa því yfir að þessi brbl.-setning verði dregin til baka, hvort hann sé reiðubúinn til þess að beygja sig undir eðlilegar lýðræðislegar leikreglur í landinu, þrátt fyrir það sem gerst hefur á síðustu mánuðum, sjá að sér í þeim efnum og hverfa frá því að reyna að knýja þessa lagasetningu í gegnum þingið. Hæstv. forsrh. hefur því miður ekki sýnt lit á því enn við þessa umr. að hann ætli að taka upp stríðshanskann af götu sinni, taka upp stríðshanskann af götu almennings í landinu, beygja sig úr hásætinu og taka hann upp og fallast á það að hér gildi á nýjan leik lýðræðislegar leikreglur í landinu í sambandi við hlutaskipti. Og það er eftir ummælum hans hér áðan úr ræðustóli að dæma ekki mikil von sem við höfum um það að hann ætli að sjá að sér, því að hann veifaði hér enn á ný hegningarlagasvipunni, hegningarsvipunni gagnvart hverjum þeim sem ætlaði sér að semja um kaup og kjör. Á það þá líklega við atvinnurekendur jafnt sem launamenn sem ættu hlut að slíkum samningum. Þá ætlar hæstv. forsrh., sem gegndi starfi dómsmrh. hér áður fyrr, að beita lagaboðinu, hegningarlögunum. Það gæti nú farið að þrengjast um í tugthúsum landsins ef hann ætlaði að smala þar inn aðilum að slíkum samningum. Og þyrfti ekki mjög mörg stéttarfélög til til að eiga þar hlut að máli.

Það þarf kannske ekki að koma svo geysilega mikið á óvart að Framsfl. leitaði eftir því við stjórnarmyndun í vor að taka upp vinnubrögð af þessu tagi. Hann hafði á flokkssamkomum fyrr á árinu í sambandi við kosningastefnuskrármótun sett fram það sjónarmið að svipta bæri aðila í þjóðfélaginu réttindum til frjálsra samninga. Hann boðaði það í baráttu sinni fyrir kosningar. Og hann vildi ganga lengra en gert er í þessum lögum sem kunnugt er, og skorða allt með lagaboði í full tvö ár. Svar kjósenda við þessu grundvallaratriði í stefnuskrá Framsfl. var ekki á þá leið að skynsamlegt væri fyrir flokkinn að gera það að skilyrði fyrir þátttöku í ríkisstjórn landsins að kosningum loknum að fallist væri á þetta grundvallaratriði. Mig minnir það hafi verið um 7 000 kjósendur í landinu sem sneru baki við Framsfl., væntanlega ekki síst með þetta stefnumið hans í huga, að taka hér upp einræðisvinnubrögð í sambandi við samningafrelsið í landinu og hóta tugthúsvist ef gengið væri þar gegn.

En Framsfl. tókst þetta. Honum tókst að fá þetta grundvallaratriði viðurkennt við stjórnarmyndunina. Og þeir sem gengu þar til liðs við hann voru þeir sem stundum berja sér á brjóst og telja sig vera málsvara frelsis og lýðræðis, málsvara frelsis einstaklingsins öðrum fremur í landinu, talsmenn stærsta stjórnmálaflokks landsins, Sjálfstfl., sem lögðust þarna á árar með Framsfl. og bera fulla ábyrgð á þeirri lagasetningu sem hér er til umr.

Við eigum væntanlega eftir að heyra það frá hv. talsmönnum Sjálfstfl. hér með hæstv. utanrrh., formann flokksins í fararbroddi hvort flokkur hans ætlar sér að fylgja þessu máli eftir á löggjafarsamkomunni. Ég vænti þess að það heyrist einnig í þeim sem hafa tekið að sér trúnaðarstörf fyrr og síðar í samtökum launafólks og sitja nú hér á hv. Alþingi, menn eins og hv. 12. þm. Reykv., Pétur Sigurðsson, sem einnig skipaði sæti í miðstjórn ASÍ og var framarlega í kjarasamtökum, stéttarfélögum sjómanna, í landinu. Og það verður fróðlegt að heyra sjónarmið hv. 2. þm. Reykn., hv. þm. Gunnars G. Schram, núverandi formanns Bandalags háskólamanna, hver hans viðhorf eru til þess frv. sem hér er til umr. Og það verður ekki síður fróðlegt að heyra viðhorf hv. 1. þm. Suðurl., sem keppir nú um formennsku í þessum flokki og sem var framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands Íslands, þar sem sumir talsmenn þeirra samtaka hafa í orði látið að því liggja að þeir væru andvígir þeirri íhlutun um samningsréttinn í landinu sem hér er til umr. Það verður fróðlegt fyrir þá launamenn, sem hafa látið blekkjast með þeim hætti að ljá þessum hagsmunagæsluflokki einkafjármagnsins í landinu stuðning sinn, að heyra viðhorf formannskandídatsins í flokknum, eins af þremur, til þeirra ákvæða sem hér eru til umr.

Hæstv. forsrh. orðaði þetta nú svo smekklega — væntanlega að mati hv. þm. Sjálfstfl. — að þeir hafi svona „síður viljað banna“. Það voru hans orð. Þeir voru alveg reiðubúnir að banna rétt eins og „við“ en þeir vildu bara „heldur síður banna“ og þess vegna styttum við þetta tímabil. Og hæstv. forsrh. var svo smekklegur hér áðan að storka þessum samstarfsmönnum sínum í ríkisstj. með því að staðhæfa að leiðin hans, leið Framsfl. í sambandi við kaup og kjör í landinu og samningsréttinn og þær ákvarðanir sem því tengdust, hafi verið „mildari“ en þær hugmyndir sem Sjálfstfl. hafði í umr. um stjórnarmyndunina. Hann sparar ekkert að ylja þeim undir uggum, þessum samstarfsmönnum sínum í ríkisstj., hæstv. forsrh.

Hér verður enn og aftur borin fram sú spurning við hæstv. forsrh.: Er hann, í ljósi þeirrar umr. sem hér hefur farið fram, í ljósi undirskriftasöfnunar tugþúsunda manna, sem eru innan vébanda samtaka launafólks í landinu, í ljósi þeirrar almennu fordæmingar sem þessi lagasetning hefur fengið, er hann reiðubúinn til þess að beita sér fyrir því hér og nú að ósk hans um að fá staðfest þessi gerræðislög hér á hv. Alþingi verði dregin til baka? Við biðjum hann um skýr svör um þetta grundvallaratriði. Það verður áreiðanlega eftir því hlustað í þjóðfélaginu hvert er afdráttarlaust svar hæstv. forsrh. um þetta mál.

Um þessi efni að öðru leyti má að sjálfsögðu mjög margt segja, sjónarmiðin sem búa að baki þeirri skömmtunarstefnu sem hér er ákvörðuð með lagaboði, þann hugsunarhátt, hagfræðilega hugsunarhátt, ef hægt er að kalla það því nafni, sem að baki býr því sjónarmiði að gera Ísland að láglaunalandi, að keyra lífskjörin á Íslandi hjá þeim sem síst mega við því niður á stig sem óþekkt er í Vestur-Evrópu nema ef vera kynni í vanþróuðu ríkjum Suður-Evrópu eða Miðjarðarhafslanda. Það er fróðlegt að skyggnast um í sambandi við þau rök sem fram eru borin og eiga að réttlæta þessa stefnu og þá höfuðréttlætingu sem fram er borin, að lækka og hægja á skrúfu verðbólgunnar með því einu að rýra kaupmátt hins breiða fjölda vinnandi fólks í landinu með þeim hætti að aldrei hefur slíkt gerst í Íslandssögunni fyrr, að rýra kaupmátt launafólks þannig að fara þarf fulla þrjá áratugi aftur í tímann til þess að finna kaupmátt af því tagi sem þegar er orðinn hér eða verður hér á allra næstu mánuðum, og á að öllum líkindum eftir að hrapa enn neðar ef ríkisstj. tekst það ætlunarverk sitt að knýja fram sultarstefnuna, þá skömmtunarstefnu sem mörkuð er með þessum lögum og þeim lögum sem tengjast þeim og sett voru við byrjun þessa vanhelga bandalags þessara tveggja stærstu stjórnmálaflokka þjóðarinnar, sem ástæða væri til, ef menn vildu ráða þeim heilt, að taka til endurskoðunar fyrr en síðar ef þeir ætla að skipa þann sess til frambúðar.

Ég held, herra forseti og hv. alþm., að sú lausn sem hæstv. forsrh. og samráðherrar hans virðast hafa á því hvernig hægt sé að rétta við efnahagslíf Íslendinga og ná niður óðaverðbólgu í landinu, sem vissulega er meinsemd sem full ástæða er til að allir leggist á árar til þess að færa niður, að læknisráðið, sem hér er gripið til, sé svo víðs fjarri því að skila árangri til lengri tíma, að það sé með ólíkindum ef sérfræðingar ríkisstj., sem hagfróðir mega teljast, hafa ráðið henni að leggja út á þá braut sem hún hefur markað.

Ein stærsta blekkingin í sambandi við markmið ríkisstj. um að ná niður verðbólgu í þessu landi með því að skrúfa fyrir kaupmáttinn harkalegar en þekkst hefur í sögu lýðveldisins er að það læknisráð sem þar er gripið til leysir ekki vanda dýrtíðar í landinu, þeirrar dýrtíðar sem blasir við almenningi, þeirrar dýrtíðar sem heimilin í landinu nú búa við og rokið hefur fram í formi hækkunar á verðlagi sem er fimmfalt eða svo umfram það sem fólki er skammtað í launabótum á þeim tíma sem þessum lögum er ætlað að gilda. Verðbólgan, reiknuð á útreikningsmælikvarðann sem hér er notaður, lækkar. Hún hjaðnar. En dýrtíðin, sem almenningi er ætlað að axla, æðir áfram með þeim hætti sem við blasir. Og ef launamenn ætla að gerast svo djarfir að skakka þennan leik, rétta eitthvað við hag heimila sinna, þá er þeim ætluð tugthúsvist. Þá er þeim hótað að hegningarlagasvipunni verði beitt, þeirri svipu sem hæstv. forsrh. hefur veifað hér. Og læknisráðið er þess eðlis að ef launamenn leita sér bjargar, leita viðreisnar á hag heimila sinna, þá fer verðbólguskrúfan og markmið forsrh. út í veður og vind. Því að læknisráðið eina er að taka á laununum, er að taka á þeim þætti sem vinnustéttirnar í landinu hafa fengið í sinn hlut.

Hæstv. forsrh. var hér áðan að vefengja það sem Alþýðusamband Íslands setti fram í útreikningum sínum eftir að þessi brbl. voru sett, sem hagfræðingar ASÍ settu fram í fréttabréfi sambandsins, sem gefið var út þann 6. júní s.l., þar sem fram kemur að ef litið er á þróun næstlægsta taxta verkamanna með fullri starfsaldurshækkun, þá reynist kaupmáttur árið 1942 og árin 1951 og 1952 lakari en horfurnar á fjórða ársfjórðungi 1983. Það eru sem sagt aðeins finnanleg þrjú dæmi frá árinu 1942 að telja um álíka rýran kaupmátt og hér er skammtaður. Í þessu fréttabréfi ASÍ fylgir yfirlit um það hver kaupmátturinn er miðað við næstlægsta taxta með fullri aldurshækkun. Það er fróðlegt að virða fyrir sér hvernig hlutaskiptin hafa verið hér innanlands á þessu tímabil með tilliti til þess hverjir hafa haldið um stjórnvölinn á þessum áratugum, hvaða ríkisstjórnir það hafa verið sem verið hafa við völd í landinu, því að þá kemur fram mynd sem sannarlega er íhugunarefni fyrir vinnandi stéttir í þessu landi, mynd sem sýnir okkur að saman fara vinstri stjórnir í landinu og kaupmáttur sem er hærri og sker sig úr frá því sem verið hefur á valdatíma hægri stjórna, svo að áberandi er og augljóst.

Hæstv. forsrh. ræddi um það hér áðan að ekki hefði verið hægt að ná þeim ágæta árangri sem hann vænti — og væntanlega nær í sambandi við hjöðnun verðbólgunnar en ekki dýrtíðarinnar í landinu — ef eftir gengur þessum lögum, þessu frv. sem hér er óskað staðfestingar á. Hann staðhæfði að það hefði ekki verið hægt að ná þessum ágæta árangri með því að fara að grípa breitt á málunum, ætla sér að taka á mörgum þáttum og taka upp baráttu við verðbólgumeinsemdina með því að fara í kerfisbreytingar í þjóðfélaginu, með því að glíma við erlendu lántökurnar með samræmdum hætti og á lengri tíma að ná þeim niður. Nei, það var ekki að hans mati fært. Og hann tók alveg sérstaklega fram að það væri nú miklu minna að sækja í verslunina og verslunargróðann heldur en hugmyndir stæðu til af talsmönnum stjórnarandstöðunnar. Það er mjög athyglisvert að hæstv. forsrh. er sérstakur talsmaður þeirrar fjárfestingar, þeirrar sóunar sem á sér stað í verslunarstarfsemi í landinu, hjá innflytjendum og hjá milliliðastarfseminni. Ég held að ef við eigum að gera okkur vonir um að geta náð hér friði í landinu um skynsamlegar efnahagsráðstafanir, þá gerist það ekki nema það verði í senn sátt um það í landinu að allir taki á eftir efnum og ástæðum, taki á sig byrðar sem stafa af minnkandi þjóðartekjum, þeir mest sem mest geta lagt af mörkum, og tekið verði á meinsemdum í okkar efnahagsstarfsemi, þ. á m. rangri fjárfestingu sem hér hefur riðið húsum á mörgum sviðum um langan tíma.

Ég vil, herra forseti, víkja hér aðeins að hinum mildandi aðgerðum, sem hæstv. forsrh. vék að til réttlætingar skömmtunarstefnu sinni í sambandi við kaup og kjör, þeim 450 millj. kr. sem áttu að verða til þess að auðvelda hinum tekjulægstu alþýðuheimilum róðurinn. Ég ætla ekki að fara út í marga þætti þar þó ástæða væri til. Ég ætla ekki að fara að rekja það hversu miklu mæðralaunin með einu barni, hækkunin úr 247 kr. í 493 hefur munað alþýðuheimilin í landinu. En ég vil minnast hér aðeins á þátt sem miklu skiptir fyrir fjölmörg heimili. Það er orkukostnaðurinn í landinu sem ríkisstj. lofaði með brbl. að skyldi lækkaður og jafnaður svo að um munaði með því að teknar væru frá 150 millj. kr. í þessu skyni. Ég held að það sé fróðlegt fyrir menn að líta til þess hvað orðið hefur um þennan þriðjung af þessum 450 millj. til „mildandi aðgerða“ sem ríkisstj. setti um heimildir í brbl. Ég held að það væri fróðlegt fyrir fólkið á Vestfjörðum, stuðningsfólk hæstv. forsrh., að fá um það upplýsingar hvernig skilað hefur verið þessum þætti, hverjar þessar mildandi aðgerðir hafa orðið í reynd. Ég inni hæstv. fjmrh. alveg sérstaklega eftir því hverjar þær reglur eru sem hann hefur sett samkv. þessum brbl. um þetta atriði, útdeilingu á þessum 150 millj. kr. til jöfnunar og lækkunar hitunarkostnaðar. Í frv. til l. um fjármálaráðstafanir til verndar lífskjörum og í þeim brbl. sem þar er leitað staðfestingar á segir í 3. gr., með leyfi hæstv. forseta:

„Ríkisstj. er heimilt að verja allt að 150 millj. kr. umfram fjárveitingar á fjárlögum fyrir árið 1983 til jöfnunar og lækkunar hitunarkostnaðar íbúðarhúsnæðis á því ári. Fjmrh. setur reglur um framkvæmd þessa ákvæðis.“

Hverjar eru, hæstv. fjmrh., þær reglur sem þú og þitt hæstv. rn. hafa sett um þetta? Ég hef orðið var við það að orkukostnaður í landinu hefur hækkað ansi myndarlega á þeim mánuðum sem hæstv. ríkisstj. hefur setið að völdum — og ekki bara einu sinni, eins og hæstv. forsrh. vék hér að áðan þegar hann ræddi um opinberar gjaldskrár og sagði að aðeins ein hækkun gjaldskrár hefði verið heimiluð hverju opinberu fyrirtæki, aðeins ein hækkun hefði verið leyfð til sex mánaða. Það voru orð hæstv. forsrh. hér áðan. Hann er búinn að gleyma því, sem getur varla hafa farið fram hjá honum, hver var ein fyrsta aðgerð hæstv. núv. iðnrh. í þessari ríkisstj. í sambandi við verðlagsmál. Það var að lyfta gjaldskrá Landsvirkjunar þann 3. júní s.l. um 19% og bæta síðan við jái, skrifa undir beiðni Landsvirkjunar um hækkun á gjaldskrá hennar á heildsölu til almenningsrafveitna um 31% til viðbótar, hækkun nr. 2. Þetta er mál út af fyrir sig, að hæstv. ráðherrar hafa heimilað þessar hækkanir, en ef þeir hafa ætlað að ná sínum markmiðum um lækkun hitunarkostnaðar í landinu, þá er ég ansi hræddur um að þurft hefði að bæta einhverju við þessar 150 millj. kr. Og það má vel vera að hæstv. fjmrh. hafi gert ráðstafanir, þó að enginn hafi orðið var við það opinberlega enn þá, með þeim reglum sem hann ætlar sér að setja og skýrt er tekið fram í brbl. að hann setji um framkvæmd þessa ákvæðis, um þessa mildandi aðgerð.

Áhrifin af hækkunum hæstv. iðnrh. á gjaldskrám orkuveitna í landinu eru hins vegar ekki lækkanir heldur hækkun á orkuverði meðalheimilis í landinu, sem svarar til mánaðarlauna lágtekjumanns, sem svarar til 10 þús. kr., og er þá miðað við húsnæði í besta standi hvað snertir frágang allan, þ.e. húsnæði sem eyðir ekki nema sem svarar 13 lítrum olíu á rúmmetra á ári, þannig að í reynd er þessi kostnaður hjá fjölmörgum og sennilega meiri hluta heimila langtum, langtum meiri. Það er von að hæstv. ráðh. tali hér um hinar mildandi aðgerðir til að létta alþýðuheimilum róðurinn. Það upplýsist kannske þegar hæstv. fjmrh. greinir frá þeim reglum sem hann hafi sett — og ekki hefur farið mörgum sögum af opinberlega til þessa — til að milda höggið sem hann ásamt fleirum hefur greitt.

Hæstv. ráðherrar, hæstv. forsrh. í fararbroddi hefur reynt að staðhæfa — gert það glaðbeittur eins og hans er vandi — að það sé ekki annað en óráðshjal að vera að líkja þeirri lagasetningu sem hér er óskað eftir að Alþingi taki þátt í og staðfesti að meiri hl., líkja því við vinnubrögð einræðisríkja. Og hæstv. utanrrh. tók hið sama fram hér í útvarpsumr. í síðustu viku alveg sérstaklega.

Ég ætla að vitna hér, með leyfi hæstv. forseta, í stutt viðtal við formann Alþýðusambands Norðurlands í dagblaðinu Tímanum þann 20. okt. s.l. en þar hefur Þóra Hjaltadóttir þetta að segja að loknu 10. þingi Alþýðusambands Norðurlands:

„Við samþykktum mjög eindregna ályktun um kjaramál þar sem brbl. ríkisstj. eru harðlega fordæmd. Við teljum að með þeim hafi íslenskt launafólk verið svipt þeim mannréttindum að geta með samtökum sínum haft áhrif á það fyrir hvaða launum það vinnur og við hvaða aðstæður. Með þessum lögum hafi ríkisstj. stjórnarfarslega skipað Íslandi á bekk með ríkjum eins og Póllandi og Tyrklandi. þar sem starfsfrelsi og samningsréttur verkalýðsfélaga hefur verið afnuminn“.

Ég veit ekki um stjórnmálaskoðanir þess ágæta talsmanns Alþýðusambands Norðurlands sem Tíminn vitnar hér til þann 20. okt. En ég ráðlegg mönnum að leggja hlustir við orð hennar, einnig hv. þm. Framsfl., sem eiga höfundarréttinn að þeim brbl. sem hér er óskað staðfestingar á.

Það væri líka hollt fyrir hv. þm. Framsfl. og hæstv. ráðh. flokksins að líta stöku sinnum í flokksmálgagnið sitt, Tímann, og lesa grein, sem birtist þar 7. ágúst s.l., ritaða af fyrrv. ritstjóra Tímans, Andrési Kristjánssyni, þar sem hann fjallar um siglingu þessarar hæstv. ríkisstj. undir fyrirsögninni: „Þriðja atrennan í sókninni til íhalds-Íslands hafin.“

Ég vænti þess að þessi grein hafi ekki farið fram hjá hæstv. forsrh. En það er ekki víst að hann hafi lesið hana vandlega svo að ég ætla, með leyfi hæstv. forseta, að lesa hér örstuttan kafla úr henni. Andrés Kristjánsson segir þar undir millifyrirsögninni „Þrjár atrennur“ eftirfarandi:

„Íhaldsstjórn á árunum 1924–1927 var of veik og skammvinn til þess að leggja hornsteina íhalds-Íslands. Glæsileg félagshyggjusókn braut þá íhaldsatrennu á bak aftur og félagshyggjustjórnirnar, sem á eftir komu, urðu langærri og drýgri við að móta þjóðfétagið í sinni gerð. síðari íhaldsstjórnir — til að mynda „viðreisnarstjórnin“ — höfðu hug á því að snúa þróuninni við, og þá voru raddir háværar um fordæmingu ríkisafskipta, félagsframtaks og samvinnustarfs, og um tilfærslu efnahags- og atvinnuumsvifa í hendur einkaframtaks — siglingu í átt til íhalds-Íslands.

Nú virðist sami gunnfáninn dreginn að húni með gildri þátttöku íhaldsflokksins í ríkisstjórn.“

Og síðar í þessari grein segir Andrés Kristjánsson: „Fregnir herma um þessar mundir, að skattbirting ársins 1983 og fleira sýni verulegt tekjufall fólks í héruðum utan suðvesturhornsins, einnig að þess sé farið að gæta að fólksflutningar þangað utan af landi séu farnir að aukast að nýju. Þetta eru vátíðindi. Enn muna menn öngþveitið sem myndaðist vegna fólksflutninga á fjórða áratugnum eftir stríðið, öngþveiti sem raskaði byggðinni úti á landi og stofnaði uppbyggingu þéttbýlisins við Faxaflóa í vanda. Á „viðreisnaráunum“ margfrægu hafði landsbyggðin verið vanrækt stórlega með hrikalegum afleiðingum fyrir þjóðina alla. Þá var ríkið ekki ófúst að hlaupa í félag með heimamönnum úti um hvippinn og hvappinn til þess að kaupa hluti í atvinnufyrirtækjum í því skyni að koma þeim á fót. Þá var róið í átt til íhalds-Íslands.“

Og síðar segir hann: „Þá var vábrestur í íslensku stjórnarfari þegar samstarfið um ríkisstjórnina 1971–1974 gliðnaði áður en árangurinn af stefnu hennar og störfum fékk að njóta sín nógu vel. Þá brustu líka allir varnargarðar í vegi síðustu og verstu verðbólguholskeflunnar sem kaffært hefur þjóðina á síðustu árum.“

Og enn segir Andrés Kristjánsson: „Þegar vígreifir riddarar íhalds-Íslands geysast fram í meginárás til þess að sundra þessu sambúðarkerfi sem þjóðin hefur myndað, eins og nú gerist í þriðja sinn eftir sjálfstæðisheimtina undir kjörorðinu að selja ríkiseignir og fyrirtæki — helst allar — er nauðsynlegt að félagshyggjufólkið sé á verði og þjappi sér saman til þess að verja þá þjóðfélagsgerð sem það hefur myndað, þótt auðvitað sé margur annmarki á henni enn.“

Þessi varnaðarorð Andrésar Kristjánssonar eru þess efnis að ástæða er til að rifja þau hér upp fyrir hv. þm. Framsfl., sem stöku sinnum vilja enn í dag vera að líkja sér og sinni stefnu við þá fétagshyggjustefnu sem Andrés Kristjánsson var að minna á að Framsfl. eitt sinn var þátttakandi í, áður en flokkurinn lagði til skipstjóra á skútu sem rær í gagnstæða átt.

Herra forseti. Ég ætla að ljúka máli mínu. Ég vænti að hæstv. forsrh. veiti skýr svör við því hvort hann ætlar að reyna að knýja þetta lagafrv. hér í gegnum þingið. Og ég vænti þess að við heyrum m.a. í stuðningsmönnum núv. hæstv. ríkisstj., eins og hv. þm. Pétri Sigurðssyni og Gunnari G. Schram, hvort þeir ætla að hjálpa hæstv. forsrh. við þennan gjörning. Og ekki sakaði þó formannsframbjóðandinn í Sjálfstfl., hv. 1. þm. Suðurl., greindi frá viðhorfum sínum til þessa máls hér í umr.