16.12.1983
Neðri deild: 30. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 1958 í B-deild Alþingistíðinda. (1684)
Um þingsköp
Forseti (Ingvar Gíslason):
Í sambandi við þessar fsp. vil ég geta þess, sem áður hefur komið fram af minni hálfu, að ég hafði lagt til að fundur yrði haldinn í sjútvn. Nd. kl. um sex í dag. Af þeim fundi gat ekki orðið og var síðan hugmyndin af minni hálfu og lagt til að við reyndum að halda þennan fund í sjútvn. um tíuleytið eða upp úr tíu í kvöld. Það gat ekki heldur orðið. Þegar svo er komið virðist mér að það sé ákaflega erfitt að hugsa sér að fara að halda slíkan fund nú þegar svo langt er á liðið. En ég vil taka það mjög skýrt fram að ég tel sjálfsagt að sjútvn. taki þetta mál fyrir á fundi sínum og eðlilegast að slíkur fundur verði í fyrramálið.
Ætlun forseta var að halda áfram umr. um það dagskrármál sem við erum nú að ræða. Enn eru nokkrir menn á mælendaskrá. Og von forseta var sú, að umr. gæti lokið í kvöld. Eins og nú er komið finnst forseta eðlilegast að þetta mál verði rætt „milli umræðna“ eins og við köllum, þ.e. þegar umr. hér er lokið en atkvgr. er ólokið. Ætlun forseta var þá að málið yrði tekið til atkvgr. klukkan tvö á morgun.
Hvað varðar hitt. málið er alveg sjálfsagt að athuga hvenær það mál getur komið hér á dagskrá þessarar hv. deildar. En það hefur ekki enn verið ráðið af minni hálfu hvenær það má verða.
Eins og hv. 3. þm. Reykv. sagði réttilega er farið að þrengjast um fundi og erfitt að koma fram málum, en forseti þessarar deildar mun gera það sem í hans valdi stendur til þess að það mál verði tekið á dagskrá.