11.10.1983
Efri deild: 1. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í B-deild Alþingistíðinda. (17)
Kosning forseta og skrifara
Aldursforseti (Ólafur Jóhannesson):
Salome Þorkelsdóttir er rétt kjörinn forseti Ed. og tekur hún nú við fundarstjórn. Ég óska henni allra heilla í starfi. Það er ánægjulegt fyrir þessa deild að fá konu í forsæti, en það hefur held ég ekki verið á meðan ég hef setið hér í Ed.
Hinn kjörni forseti tók við fundarstjórn.