17.12.1983
Efri deild: 35. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2017 í B-deild Alþingistíðinda. (1711)
47. mál, frestun á greiðslum vegna verðtryggðra íbúðalána
Frsm. (Valdimar Indriðason):
Virðulegi forseti. Fjh.og viðskn. þessarar hv. deildar hefur fjallað um frv. það til l. sem hér er til umr., um frestun á greiðslum vegna verðtryggðra íbúðalána og er 47. mál þessa þings. Í frv. er gert ráð fyrir heimild til að fresta greiðslu á allt að 25% af samanlagðri fjárhæð afborgana og verðtryggingarþátta og vaxta verðtryggðra lána Byggingarsjóðs ríkisins og Byggingarsjóðs verkamanna og verðtryggðra íbúðalána banka og annarra lánastofnana er gjaldfalla á tilteknu tímabili ef lántakandi óskaði eftir því. Nefndin var sammála um að mæla með samþykkt frv. en leggur til eina brtt. sem er hér flutt á þskj. 225. Hún felur í sér að 2. málsgr. 1. gr. orðist svo:
„Þeim greiðslum, sem frestað er skv. framansögðu, skal bætt við höfuðstól lánsins og lánstíminn lengdur þannig að greiðslubyrði lánsins á hverjum tíma aukist ekki af þeim sökum og lánið sé með óbreyttum kjörum að öðru leyti svo og með hliðstæðum áfangagreiðslum og ella hefði verið.“
Ég vek athygli á að þarna eru felld niður tvö orð sem eru í 2. málsgr. frv. en það eru orðin „eftir þörfum“. Nefndin sá ekki ástæðu til að þessi orð væru höfð þarna inni og gerir því till. um að þau falli út með þessari brtt.
Um þetta þarf ekki að hafa öllu fleiri orð þar sem þetta er komið til framkvæmda að verulegu leyti. Mér er ekki kunnugt um hvað mörg lán hafa verið afgreidd á þennan hátt. Þó að það sé ekki beint í þessu frv. fór fjmrh. þess á leit við lífeyrissjóðina að þeir gerðu þetta á sama hátt. Eftir þeim upplýsingum sem ég hef fengið hjá viðskrn. með viðtali við fulltrúa þaðan, Björn Líndal, var lítil ásókn í að fá þeim lánum breytt. Sama sagði framkvæmdastjóri SAL-sjóðanna, Hrafn Magnússon. Það hafði ekki verið mikið leitað eftir því að fá þessum lánum breytt til samræmis við það frv. sem hér liggur fyrir. Aftur á móti hefur verið allmikil ásókn í það í viðskiptabönkunum að þau lán sem voru þar til skemmri tíma en fjögurra ára yrðu lengd og er búið að afgreiða altverulegan hluta af þeim málum.