25.10.1983
Sameinað þing: 7. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 230 í B-deild Alþingistíðinda. (172)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Guðmundur H. Garðarsson hefur áður setið á Atþingi. Býð ég hann velkominn til starfa.

Þessi fundur er fyrsti fundur á þessu þingi þar sem fsp. eru á dagskrá. Ég vil af því tilefni og með sérstöku tilliti til hinna mörgu nýju þm. sem nú sitja slíkan fund í fyrsta sinn vekja athygli á reglum þingskapa um umr. um fsp. Samkvæmt þingsköpum hefur ráðh., sem spurður er, heimild til að tala tvisvar, tíu mínútur í hvort sinn. Fyrirspyrjandi hefur heimild til að tala tvisvar, fimm mínútur í hvort sinn, en aðrir þm. tvær mínútur tvisvar sinnum.

Mikið er undir því komið að við getum haldið okkur við þessi ákvæði þingskapa. Með tilliti til þess hafa forsetar þingsins kvatt á sinn fund alla formenn þingflokka þar sem þetta mál hefur verið rætt. Þar hefur verið algjör samstaða um það að við leituðumst öll við að framfylgja sem best þessu ákvæði þingskapa svo að störf Alþingis megi fara sem best fram. Þess er vænst að framkvæmd þessi megi ganga snurðulaust en það verður barið í bjölluna undanbragðalaust ef ástæða er til að halda mönnum við þingsköp.