17.12.1983
Efri deild: 35. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2036 í B-deild Alþingistíðinda. (1722)

140. mál, lántaka vegna flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli

Stefán Benediktsson:

Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að mér kemur málflutningur hins styrkta stjórnarliðs allur dálítið kynlega fyrir sjónir. Ég hef hér gert að aðalefni míns málflutnings spurninguna um kostnað þessarar byggingar. Bara til þess að það fari ekki fram hjá neinum hef ég ekki einu orði minnst á hvort þetta er of stór eða of lítil bygging, ég hef sagt hana of dýra. Og hvað viðvíkur því að erfitt sé að gera sér grein fyrir kostnaði slíkrar bygginga fyrir fram þá viðurkenni ég alveg að aldrei er hægt að gera slíkt algerlega. Það er líka á vissan hátt óheppilegt að leggja öll sín spil á borðið í þeim efnum fyrir fram ef maður ætlar að ná út hagkvæmum samningum um uppbyggingu slíkra mannvirkja. En þær kostnaðaráætlanir sem menn gera, sérstaklega með tilliti til þess að taka lán til þeirra, hljóta að verða að byggjast á raunsæi. Og ef mönnum var í þessu tilviki í raun og veru virkilega hugleikið að byggja hagkvæma byggingu hefðu þeir t.d. getað leitað til fleiri aðila en þess eina ráðgjafa sem stjórnað hefur allri ráðgjöf á þessu sviði og reynt að kynna sér hvort ekki væru hugsanlega einhverjir þeir ágallar á þeim áættunum sem fyrir liggja sem lagfæra mætti og þar með ná niður kostnaði þessarar byggingar. Því að það hlýtur að vera mikið hagsmunamál að þessi bygging sé ekki of dýr.

Arðsemi flugstöðvarinnar hef ég heldur ekki í raun og veru dregið í efa að því leyti að ég tel alveg hægt að gera hana arðsama. Þar eru uppi vissar áætlanir t.d. um verslanarými og annað þess háttar sem ég fel mjög hyggilegar áætlanir en aftur á móti er spurning um hvort það verslanarými er t.d. nægilega stórt. Hv. 3. þm. Suðurl. benti á að það er ekki stærra en það er í núverandi flugstöð. Það er spurning hvort ekki má hugsa fyrir stærri hluta hússins undir þetta verslanarými þannig að ekki þurfi að taka fé til rekstrar þessarar stöðvar sem í dag er notað til að standa undir kostnaði við flugumsjón.

Ég er reiðubúinn að taka undir með hv. 2. þm. Vesturl. og ég hefði meira að segja hugsanlega verið til í að standa að samþykkt þessarar lánsfjáráætlunar fyrir flugstöðina ef fyllilega væri tryggt að byggingarkostnaður flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli væri endurskoðaður, sem ég veit að mun leiða til lækkunar hans, og að þeir fjármuni.r sem þar fengjust væru síðan notaðir til annarrar uppbyggingarstarfsemi á landinu, á flugvöllum sem margir hverjir þurfa miklu brýnna á þessu fjármagni að halda en flugstöðin á Keflavíkurflugvelli í dag.

Hv. 6. landsk. þm. gerði að umtalsefni að menn hefðu ekki gagnrýnt það hvers vegna ekki væri byggður nýr flugvöllur í Keflavík. (EG: Ég sagði að þeir sem gagnrýndu að þessi flugstöð væri hluti af vígbúnaðarkeðju hlytu að krefjast: þess að byggður yrði nýr flugvöllur því að flugvöllurinn væri hluti í vígbúnaðarkeðju ef eitthvað væri.) Það sem ég get tekið til mín af þessum orðum skal ég reyna að leiðrétta. Ég minntist á að hluti af hönnunarforsendum þessarar byggingar væri miðaður við það hlutverk sem henni er ætlað á stríðstímum. Flugvöllur breytir ekkert um útlit eða byggingu hvort sem um friðar- eða stríðstíma er að ræða þannig að mér er sama hvoru megin hryggjar hann liggur, hann kemur að fullu gagni fyrir okkur eftir sem áður. En þeir hlutar byggingarinnar sem hannaðir eru með þá starfsemi í huga sem stríðstímar krefjast koma okkur ekki að gagni á friðartímum. Því held ég að menn geti í raun og veru ekki mælt á móti. (Gripið fram í: Ekki að ógagni.) Til að geta fullyrt að þeir komi manni ekki að ógagni þurfa menn að hafa kynnt sér málið mjög vendilega. Ég veit af minni reynslu að hv. 6. landsk. þm. getur ekki nema hann hafi einhver alveg sérstök leynisambönd inn í utanrrn. — hafa kynnt sér þetta mál betur en ég.

Ég verð reyndar að viðurkenna að mér kemur þessi viðkvæmni þm. dálítið undarlega fyrir sjónir. Þó að það hafi verið flokksbróðir þeirra sem á sínum tíma hóf hönnun þessarar byggingar finnst mér það ekki snerta þá ýkja mikið í dag. Sama gildir um stjórnarliðið. Þetta er framkvæmd sem stendur á ákveðnum grunni sem lagður var á þeim stutta stjórnartíma sem Alþfl. réði hér ríkjum og urðu þar ákveðin áfangaskipti í þessari hugsun allri. (Gripið fram í: Það er miklu eldra.) Nei, samningar um hönnun þessarar byggingar voru gerðir í stjórnartíð Alþfl. og þess vegna finnst mér að stjórnarliðið þurfi heldur ekki endilega að taka gagnrýni á þessa byggingu svona óstinnt upp. Einhvern tíma hefðu menn nú látið að því liggja að eitthvað sem andstæðingar þeirra í stjórnmálum hefðu gert væri alrangt og alvont en í þessu tilfelli virðast menn samþykkja það alveg fyllilega. — [Fundarhlé.]