17.12.1983
Efri deild: 35. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2045 í B-deild Alþingistíðinda. (1726)

140. mál, lántaka vegna flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli

Tómas Árnason:

Virðulegi forseti. Ekki veit ég nú hvort ég get tekið undir með hv. seinasta ræðumanni um tröllslegt landsfag á Suðurnesjum, en móðir mín, sem var uppalin í Keflavík, dáðist oft að útsýninu til Snæfellsness og Snæfellsnesfjalla frá Keflavík.

Ég skal ekki hafa mörg orð um þetta mál, sem þó er merkilegt mál á margan hátt. Ég vil þó segja að Alþb. hefur nú verið í ríkisstjórn landsins árum saman, fjögur til fimm ár undanfarið. Á þessu tímabili hafa verið byggð mannvirki á Keflavíkurflugvelli sem eru margfalt dýrari en flugstöðin sem á að fara að byggja og þeir hafa setið samt.

Tilefni þess að ég kvaddi mér aftur hljóðs var ræða hv. 4. þm. Vesturl., þar sem hann gerði boð eftir mér til að ræða um aðskilnaðarmálin. Ég hafði lagt áherslu á að við í Framsfl. hefðum m.a. stutt þetta mál til að reyna að aðskilja athafnir hersins þarna suðurfrá og venjulegt farþegaflug og vöruflutninga Íslendinga í lofti.

Hann minntist á Lóranstöðina á Snæfellsnesi og gagnrýndi að framsóknarmenn og Alþýðuflokksmenn hefðu viljað byggja hana þar sem hún er byggð nú í stað þess að byggja hana inni á sandi. (SkA: Í tvennu lagi.) Svo bætti hann við í lokin að nú væri stöðin orðin úrelt og yrði sennilega lögð niður og þá væri ekki hægt að nota mannvirkin sem þar eru. Ég kem þessu ekki heim og saman, annars vegar að gagnrýna það að hagnýta mannvirki sem varnarliðið hefur byggt og svo hins vegar að vilja hafa þau mannvirki inni á Sandi til þess að hægt sé að nota þau þegar þessi starfsemi er lögð niður. Ég heyrði að þm. sagði „Hver hugsar skakkt?“ og ég vil endurtaka það: Hver hugsar skakkt?