17.12.1983
Efri deild: 36. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 2053 í B-deild Alþingistíðinda. (1747)

50. mál, tímabundið vörugjald

Lárus Jónsson:

Virðulegi forseti. Aðeins örfá orð út af þessu máli.

Hæstv. fjmrh. hefur marglýst yfir því að hann muni beita sér fyrir því að endurskoða tollskrá og álagningu vörugjalds, sem hér er til umr., og fleiri óbeina skatta. Ég treysti því að út úr þeirri endurskoðun komi það, að verstu hnökrarnir verði sniðnir af álagningu þessa gjalds.

Undanfarna mánuði hafa skattar verið mikið lækkaðir. Tekjutap ríkissjóðs er einnig mikið af öðrum ástæðum. Þegar þjóðartekjur minnka og hætt er eyðslu umfram efni og leitast er við að ná jöfnuði í viðskiptum við útlönd minnka tekjur ríkissjóðs eðli málsins samkvæmt mjög mikið, þar sem ríkissjóður hefur miklar tekjur af eyðslu og kannske aldrei meiri en þegar umframeyðslan er sem allra mest.

Það mun koma í ljós við 3. umr. fjárlaga, sem áætlað er að verði hér á mánudaginn, að svigrúm til skattalækkana er eins og sakir standa því miður ekki meira en hefur verið notað. Ég tel einsýnt að byggja þurfi fjárlagaáætlun á lögum um tekjuöflun sem gilda allt fjárlagaárið. Ég er því andvígur till. hv. þm. Eyjólfs Konráðs og mun því greiða atkv. gegn till. hans, þess ágæta vinar míns, að þessu sinni.